Morgunblaðið - 15.01.2022, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 15.01.2022, Qupperneq 29
daga á Framnesi þar sem amma saumaði búninga eða föt fyrir alls konar tækifæri, prinsessuk- jóla, álfabúninga eða hvað það sem vantaði þann daginn. Minn- ingar um fjöruferðir þar sem alltaf fannst ógrynni af fallegum steinum sem fylltu alla vasa. Minningar um ferðir upp í króa- brot í berjamó með nesti eða tína lyng til eða gera skreytingar. Minningar úr eldhúsinu, ylurinn frá ofninum og lyktin af nýbök- uðum lummum. Minningar úr gullabúinu við Torflækinn. Amma Stína talaði svo fallegt mál og hún kunni að fara svo vel með það, samdi ljóð og vísur og söng og spilaði á orgelið eða harmonikkuna. Það var erfitt að sjá á eftir ömmu Stínu, þessari skemmti- legu, fróðu og flinku konu hverfa inn í annan heim síðustu árin en nú hefur hún fengið hvíldina sem hún þráði og það veit ég að hann afi Skúli hefur tekið vel á móti sinni konu með rembingskossi. Í firðinum heima skærast þér sólin fannst skína, þar skjól veita fjöllin um hjartkæru byggðina þína. Og myndin þín skýr hún mun fylgja mér ókomnu árin, ég aftur fæ brosað í gegnum sakn- aðartárin. (KSE) Takk fyrir allt, elsku amma Stína. Þín Harpa Rún Björnsdóttir. Margar eru minningarnar um ömmu Stínu á Framnesi. Elsku amma Stína sem sinnti barna- börnum og barnabarnabörnum af mikilli alúð, þótt við værum oft hin mestu óargadýr þegar við komum mörg saman. Amma Stína var mikil listakona og mörgum hæfileikum gædd. Ég er svo heppin að elska handverk eins og amma. Við áttum saman ótal stundir þar sem hún kenndi mér að sauma út, hekla, prjóna, skapa steinalistaverk, mála á textíl og svo ótalmargt fleira. Ég var þó misgóð og misþol- inmóð, sérstaklega við að læra að hekla og prjóna. Amma sat róleg með mér, hún var með endalausa þolinmæði og leyfði mér ekki að gefast upp. Þetta eru stundir sem hafa nýst mér vel og minningarnar munu ylja mér það sem eftir er ævinnar. Því miður erfði ég ekki lagni hennar ömmu við að semja texta. En þegar kom að því að skrifa um ömmu Stínu, skáldið sjálft, fannst mér ekki annað við hæfi en að reyna að hnoða sam- an litlu kvæði. Kvæðið um ömmu Stínu: Þín hlýja sál gaf faðmlög mörg, þolinmæðin endalaus. Frá textasmíð til handverka, þú skapaðir það sem enginn gat. Fallega frúin, frá Framnesi, fallin ert frá. Amma mín, þú kenndir mér margt. Takk fyrir allt. Takk fyrir gullabúið, sönginn, kleinurnar og þolinmæðina, besta hrísgrjónagrautinn og þolinmæðina, ullarfötin, fjöruferðirnar, berjamóana og þolinmæðina, lagkökurnar, kakóið, sögurnar og þolinmæðina, faðmlögin, hlýjuna og þolinmæðina, öll skiptin sem þú bjóst um mig, takk fyrir þolinmæðina. Þolinmæði þín var engri lík, takk fyrir allt. Takk fyrir að skapa okkur, afkomendum þínum, heimili þar sem okkur líður vel og elskum að koma saman. Enn og aftur, takk fyrir allt. Sofðu rótt, elsku amma Stína. Þín Maríanna. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022 ✝ Andrés Pétur Jónsson fædd- ist á Hellissandi 4. janúar 1938. Hann lést á Heilbrigð- iststofnun Vest- urlands, Akranesi, 10. desember 2021. Andrés var son- ur hjónanna Jóns Bjarnasonar Odds- sonar, f. 6.6. 1905, d. 7.7. 1972, og Sól- veigar Andrésdóttur, f. 2.5. 1905, d. 25.12. 1990. Hann var fjórði í röðini af sjö börnum þeirra hjóna. Jenný, f. 22.9. 1926, d. 15.1. 2004. Aðalsteinn Elías, f. 27.9. 1928, d. 30.11. 2012. Ingibjörg Benedikta, f. 29.3. 1930, d. 6.10. 2018. Andrés Pétur. Kristín Jóna, f. 4.10. 1939. Jóhann Gunnar, f. 13.3. 1942, d. 16.1. 1947. Jóhann Gunnar, f. 8.9. 1947. Fyrri kona Andrésar var Lilja Hrafndís Halldórsdóttir, f. 21.10. 1940, d. 31.3. 1977. En saman áttu saman fimm börn. ir, eiga þau þrjá drengi. Alda, f. 25.8. 1984, í sambúð með Gunn- ari Hjálmarssyni og eiga þau saman fimm börn og eitt barna- barn. Alls eru því afkomendur Andrésar orðnir 63 talsins. Andrés vann mörg störf um ævina. Var sjómaður, vann við beitningar, vann á Keflavík- urflugvelli á uppbyggingartíma og við byggingu á Gufuskálum á Snæfellsnesi en lengst af var hann við vinnu hjá Hraðfrysti- húsi Hellissands eða frá 13 ára aldri til rúmlega sjötugs eða í tæp 60 ár. Starfaði hann þar sem vélstjóri og verkstjóri, hafði umsjón með löndunum, ók vörubíl hjá frystihúsinu að auki var Andrés mjög handlaginn og gekk hann til margra starfa innan sem utan frystihússinns. Hann var mikill hestamaður og hélt hross og fé ásamt konu sinni Jensínu við Hellissand og ræktaði þar góðan stofn sem enn er ræktaður af syni hans Jóni Bjarna. Mörgum gæðastundum eyddi Andrés við ferðamennsku með Jensínu. Útför Andrésar fer fram frá Ingjaldshólskirkju í dag, 15. janúar 2022, klukkan 14. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat Halldór Pétur, f. 30.11. 1958, og á hann fjögur börn, sjö barnabörn og eitt langafabarn. Sólveig, f. 28.5. 1961, d. 8.8. 2009, átti hún eina dótt- ur og þrjú barna- börn. Jón Bjarni, f. 6.5. 1962, og á hann á þrjú börn og fimm barna- börn. Páll, f. 5.11. 1963, maki Hekla Nordstrand og eiga þau saman níu börn og fimm barna- börn. Halldóra Kristín, f. 5.3. 1965, á hún fimm börn og átta barnabörn. Eftirlifandi kona hans er Jensína Guðmundsdóttir, f. 22.2. 1957, frá Magnússkógum í Dalabyggð. Dóttir hjónana Guð- mundar Halldórssonar, f. 16.8. 1905, d. 4.5. 1993, og Ólafar Jónasdóttur, f. 16.7. 1921, d. 19.8. 2006. Andrés og Jensína eiga sam- an tvö börn. Atli, f. 27.11. 1981, maki Marta Joy Hermannsdótt- Addi mágur minn er fallinn frá. Jensína systir mín fann hann á Hellissandi fyrir 42 árum. Þá var hann ekkjumaður og átti 5 börn. Aldursmunurinn var 19 ár og þótti mér hann mikill. Ekki spurði litla systir mín mig neinna ráða um val á mannsefni enda ákveðin kona sem vissi hvað hún vildi. Addi var harðduglegur maður með mikla seiglu. Hann glímdi við hjartveiki í áratugi en lét það ekki aftra sér í erfiðisvinnu eða tómstundum. Aldrei sá ég Adda skipta skapi, brosið var einlægt og hlýtt. Áhugamál þeirra hjóna voru mörg. Þau áttu hesta og kindur allt fram á síðasta ár. Þau höfðu gaman af ferðalögum bæði erlendis og innanlands, þar sem veiðigræjurnar voru alltaf með í för. Við hittumst oft á æskuheim- ili okkar systra í Magnússkógum og var þá stundum farið í vötnin á Ljárskógafjalli að veiða silung. Eftir eina slíka ferð kenndi Addi mér að flaka fisk. Honum leist ekkert á aðfarir mínar við verkið. Á því hafði hann örugg og góð tök og bý ég að þeirri kennslustund enn í dag. Addi varð fyrir mörgum áföll- um á lífsins leið en samleið hans með systur minni varð þeim báð- um til mikillar gæfu. Ég kveð mág minn með trega í hjarta og votta Jensínu, börnum hans og öllum afkomendum sam- úð mína. Ingibjörg S. Guðmundsdóttir. Í dag er jarðsunginn frá Ingj- aldshólskirkju Andrés Jónsson. Það má með sanni segja að Andr- és Jónsson sé samofinn sögu Hraðfrystihúss Hellissands þar sem frystihúsið var stofnað um svipað leyti og Andrés fæddist. Hann starfaði mestan sinn aldur hjá hraðfrystihúsinu, að undan- skildum nokkrum árum á sjó. Hann gegndi mörgum störfum í þágu fyrirtækisins, lengst af var hann vélgæslumaður, verkstjóri og einnig keyrði hann vörubíl fyrirtækisins, hann sá um að landa úr bátunum okkar og var einnig á lyftara fyrirtækisins. Reynsla mín af honum var afar góð, hann var húsbóndahollur og var alveg sama hvað hann var beðinn um, hann gekk til allra starfa strax, enda var leti ekki til í hans orðabók. Það var mikið áfall fyrir Andr- és þegar hann missti fyrri konu sína Dídí rétt rúmlega fertuga frá fimm börnum. Um 1980 var ver- tíð í fullum gangi, mikið um að vera og aflabrögð góð. Þá hringdi ég í Andrés og sagði honum að nú væri ekki gott, miðstöðvarlögnin í verbúðinni á Bárðarásnum væri biluð og kalt væri í húsinu, hvort hann gæti ekki komið og lagað þetta fyrir mig. Öll herbergin voru full af vertíðarfólki, meðal íbúa voru tvær blómarósir úr Dölum, önnur þeirra var Jensína Guðmundsdóttir frá Magnúsar- skógum sem var mjög ákveðin að láta laga hitann strax. Andrés kom við annan mann og byrjuðu þeir að brjóta upp gólfin, þetta tók nokkra daga, en Jensínu varð ekki kalt. Upp frá þessari heim- sókn í Bárðarásinn náði hann í Jensínu og bjó með henni þangað til yfir lauk. Andrés var mjög passasamur með það sem honum var treyst fyrir. Síðustu árin sá hann um gömlu húsin á Sandi. Það kom fyrir að ég fyndi ekki lyklana mína að gömlu húsunum, ég kom þá til hans og bað um lyklana; ekki að ræða það að ég fengi þá, hann bæri ábyrgð á öllu draslinu sem var þar inni. Hann hafði gaman af rollu- stússi og var með rollur alveg undir það síðasta. Oft á tíðum, þegar annirnar voru miklar, var hver tími nýttur til að sinna roll- unum, kom hann beint úr fjár- húsunum niður í salthús og mátti rekja slóðann eftir hann. Nú á haustdögum var ég í göngutúr, þá kom ég við hjá hon- um. Karlinn var orðin fótafúinn og slæmur fyrir hjarta, en haus- inn í lagi. Þá sagði hann við mig „ég get enn rifið kjaft“ og ef hon- um mislíkaði eitthvað við mínar gjörðir fékk ég að heyra það um- búðalaust. Að lokum vil ég þakka Andrési fyrir vel unnin störf og tryggð við fyrirtækið síðastliðin 70 ár og votta ég Jensínu og fjölskyldu dýpstu samúð. Hvíl í friði kæri vinur. Ólafur Rögnvaldsson. Andrés Pétur Jónsson Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Sálm. 6.3 biblian.is Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar okkar ástkæru ÞORGERÐAR MARÍU GÍSLADÓTTUR íþróttakennara. Starfsfólki Báruhrauns þökkum við hlýlega umönnun. Einstakar þakkir fær Fimleikafélagið Björk fyrir alla vinsemd og virðingu. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Jónsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elsku mannsins míns, pabba okkar, tengdapabba og afa, JÓHANNS GUNNARS JÓHANNESSONAR, Herjólfsgötu 38. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki taugalækningadeildar Landspítala (B2) fyrir hlýhug og einstaka umönnun. Sóley Guðrún Sveinsdóttir Jóhannes R. Jóhannsson Vilborg Ólöf Sigurðardóttir Sveinn Líndal Jóhannsson Þórhildur Rún Guðjónsdóttir Alda Hrönn Jóhannsdóttir Gestur K. Pálmason Bára Hildur Jóhannsdóttir Arnar Ægisson og barnabörn Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, BJÖRNS STEINDÓRS HARALDSSONAR, löggilts endurskoðanda, frá Húsavík. Margrét Auður Pálsdóttir Haraldur Orri Björnsson Sigríður Ósk Benediktsdóttir Helga Bryndís Björnsdóttir Henrý Örn Magnússon Björn Steindór, Benedikt Arnar, Steinþór Örn, María Birta, Hafsteinn Björn og Sylvía Lind Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, ÁSGEIRS RAFNSSONAR húsasmíðameistara frá Grenihlíð 3, Varmalandi í Borgarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi fyrir einstaka hlýju, alúð og góða umönnun á erfiðum tíma. Eins færum við lögreglumönnunum sem heiðruðu minningu hins látna með nærveru sinni í fullum skrúða, sem og björgunarsveitarmeðlimum, okkar innilegustu þakkir. Þetta framtak hlýjaði. Rebekka Guðnadóttir Guðni Rafn Ásgeirsson Freyja Guðjónsdóttir Jóhanna Ásgeirsdóttir Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason Ásgeir Yngvi Ásgeirsson Linda Rún Pétursdóttir Davíð Ásgeirsson Íris Gunnarsdóttir og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EGGERT JÓN JÓNSSON, Gullsmára 8, Kópavogi, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 5. janúar. Útförin fer fram frá Kópavogs- kirkju þriðjudaginn 18. janúar klukkan 13. Streymi verður frá athöfninni á hlekknum streyma.is. Laufey Guðbjartsdóttir Kristín Ágústsdóttir Brad Egan Magnús Einarsson Denise Einarsson Magnús G. Eggertsson K. Sunna Reynisdóttir Guðrún S. Eggertsdóttir Ómar I. Eggertsson Íris E. Thompson Helga Ó. Eggertsdóttir Pétur Þ. Hafþórsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.