Morgunblaðið - 15.01.2022, Side 34

Morgunblaðið - 15.01.2022, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022 Hefurðu áhuga á nýsköpun? Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) leita að öflugum aðila til að vinna að nýsköpunarmálum í landshlutanum. Helstu verkefni eru aðstoð við gerð rekstrar- og markaðsáætlana, gerð styrkja- og lánaumsókna, aðstoð við fjármögnun og stofnun fyrirtækja, miðlun upplýsinga um nýsköpun, skipulagning viðburða, umsjón samstarfsverkefna o.s.frv. Sérstök áhersla verður lögð á stuðning við nýsköpunarfyrirtæki á Norðurlandi vestra, eflingu þeirra og fjölgun. Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Haldbær þekking/reynsla af rekstri/verkefnastjórnun. Reynsla af áætlanagerð. Áhugi á nýsköpun. Þekking á styrkja- og nýsköpunarumhverfinu er kostur. Reynsla af störfum sem kalla á tengslamyndun er æskileg. Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Góð almenn tölvukunnátta auk þekkingar á helstu stafrænum miðlunarleiðum, svo sem í gegnum heimasíður og samfélagsmiðla. Framúrskarandi hæfni til að tjá sig í ræðu og riti er nauðsyn. Menntunar og hæfniskröfur: Tekið er á móti umsóknum á ráðningarvefnum alfred.is - Umsóknarfrestur er til 30. janúar 2022 Starfssvæði SSNV nær yfir 7 sveitarfélög frá Hrútafirði í vestri yfir í Skagafjörð í austri. Hjá samtökunum starfa 7 starfsmenn. Samtökin vinna að framkvæmd Sóknaráætlunar Norðurlands vestra, atvinnuþróun og öðrum verkefnum fyrir sveitarfélögin. Á Norðurlandi vestra búa um 7400 manns í fjölskylduvænum samfélögum í nálægð við stórbrotna náttúru. Tómstundastarf er fjölbreytt og menningarlíf gróskumikið. Við viljum endilega fá nýjan starfsmann til starfa sem fyrst. Gert er ráð fyrir að hann sé staðsettur á einni af fjórum starfsstöðvum SSNV, á Hvammstanga, Blönduósi, Skagaströnd eða Sauðárkróki. Málari/umsjónarmaður fasteigna Helstu verkefni: • Málun íbúða félagsins, bæði heilmálun og viðgerðir • Eftirlit með íbúðum og fasteignum • Samskipti við leigutaka og úttektir íbúða við skil • þrif og frágangur íbúða til afhendingar fyrir nýja leigjendur Kröfur: • Menntun og reynsla á sviði húsamálunar • Jákvætt hugarfar og góðir samskiptahæfileikar • Rík þjónustulund • Haldgóð íslenskukunnátta • Hreint sakavottorð • Ökuréttindi Byggingafélag námsmanna á og leigir út til námsmanna um 600 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Félagið er með um 100 íbúðir í byggingu og áformar að byggja um 150 íbúðir til viðbótar á næstu 5 árum. Ennfremur sér félagið um rekstur stúdentagarða Háskólans í Reykjavík þar sem eru yfir 250 íbúðir. Störfin henta bæði konum og körlum og eru bæði kyn hvött til að sækja um. Nú !##u" þú það sem þú $ei%a" að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings að vel takist til. Sérfræðingur óskast í stafvæðingu og endurgerð kvikmynda á Kvikmyndasafni Íslands. Kvikmyndasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á Kvikmyndasafni Íslands. Starfið felst í stafvæðingu og endurgerð kvikmynda af hinum ýmsu miðlunarformum. Sérfræðingurinn skal hafa víðtæka sérþekkingu á sínu sviði og tekur jafnframt þátt í stefnumótun stafvæðingar í samræmi við stafvæðing- aráætlun safnsins. Sérfræðingur aðstoðar við val og miðlun stafræns efnis á vef safnsins. Hæfnikröfur • Háskólagráða BA, BS að lágmarki á sviði kvikmynda- vinnslu eða kvikmyndagerðar sem nýtist í starfi. • Þekking af vinnslu kvikmynda og meðhöndlun upplýsinga á hliðrænu og stafrænu formi. • Gott skynbragð á helstu vinnsluforrit kvikmynda og almennt góð tölvuþekking. • Áhugi og þekking á sögu kvikmyndagerðar. • Framúrskarandi samskiptahæfni og lausnamiðuð hugsun. • Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna nákvæm og vöndum vinnubrögð, lausnamiðaða hugsun og þjónustulund. Kvikmyndasafn Íslands er ríkisstofnun sem heyrir undir Mennta- og menningarmálaráðuneytið. Safnið starfar skv. Kvikmyndalögum nr. 137/2001. Hlutverk safnsins er að safna, skrásetja og varðveita íslenskar kvikmyndir, standa fyrir sýningum á kvikmyndalist, sjá um viðhald á myndum og skapa aðstæður til rannsókna. Safnið varðveitir skilaskylt efni samkvæmt lögum um skylduskil til safna nr. 20/2002. Frekari upplýsingar um starfið Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags um ríkið. Umsóknum ásamt ferilskrá má skila á netfangið kvsi@kvsi.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir um starfið gilda í 6 mánuði Starfshlutfall er 100% Ráðning er frá 1. mars 2022 eða skv. samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 28.01.2022 Nánari upplýsingar veitir Þóra Ingólfsdóttir – thora@kvikmyndasafn.is Sérfræðingur í stafvæðingu og endurgerð kvikmynda á Kvikmyndasafni Íslands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.