Morgunblaðið - 15.01.2022, Side 39
er oftast gott veður, en stundum
bærist aðeins hár á höfði og hef ég
kallað mig blíðviðrisbónda. Ég hef
kynnst því að skógræktin er ekki
spretthlaup heldur langhlaup sem
gefur mikla gleði.“
Fjölskylda
Sambýliskona Sævars er Svan-
hildur Edda Thorstensen, f. 23.8.
1951, hjúkrunarfræðingur. Þau búa í
Kópavogi. Foreldrar Svanhildar
voru hjónin Vilmar Thorstensen, f.
26.9. 1913, d. 25.5. 1992, verkamaður,
og Hulda Svanlaugsdóttir, f. 12.10.
1914, d. 12.5. 2011, hjúkrunarfræð-
ingur. Þau bjuggu í Reykjavík. Fyrr-
verandi kona Sævars er Hafdís
Björnsdóttir, ættuð úr Þykkvabæ í
Rangárvallasýslu, f. 26.11. 1949, ljós-
móðir.
Synir Sævars og Hafdísar eru 1)
Geir, f. 17.1. 1974, forstjóri í Reykja-
nesbæ. Maki: Jing Qin, f. 27.6. 1976,
framkvæmdastjóri; 2) dr. Styrmir, f.
20.4. 1976, sálfræðingur í Þýska-
landi. Maki: Aurélie Kley, f. 13.4.
1982, kennari; 3) Hafliði, f. 20.4.
1980, hagfræðingur í Reykjavík.
Maki: M. Beatriz Garcia Martinez, f.
14.5. 1982, samskiptastjóri og þjálf-
ari; 4) Atli, f. 8.3. 1985, viðskipta-
fræðingur í Reykjavík. Maki: Svein-
borg Hafliðadóttir, f. 17.4. 1986,
mannauðsstjóri. Barnabörnin eru
níu.
Systkini Sævars eru Gylfi Sig-
urður Geirsson, f. 8.4. 1953, bifvéla-
vikjameistari, búsettur í Kópavogi;
Jóhanna Geirsdóttir, f. 28.2. 1956,
bókari, búsett í Kópavogi, og Ingi-
björg Geirsdóttir, f. 22.12. 1958, for-
stjóri, búsett í Bláskógabyggð.
Foreldrar Sævars voru hjónin
Geir Runólfsson, f. 2.10. 1926, d. 2.8.
2014, útibússtjóri Landsbanka Ís-
lands, síðast búsettur í Gnípuheiði í
Kópavogi, og Guðrún Sigurðardóttir,
f. 27.11. 1927, d. 9.6. 1976, húsfreyja í
Reykjavík.
í
Sævar
Geirsson
Ásgeir Jónsson
bóndi á Eiði í Hestfirði
í Ísafjarðardjúpi
Sigríður Kristín Jónsdóttir
húsfreyja á Eiði
Ingibjörg Ásgeirsdóttir
bústýra í Rekavík bak Höfn
Sigurður Hjálmarsson
skipstjóri í Rekavík bak
Höfn á Hornströndum
Guðrún Hjálmfríður
Sigurðardóttir
húsmóðir í Reykjavík
Guðrún Ebenesardóttir
húsfreyja í Rekavík bak Höfn
Hjálmar Jóhannesson
skipstjóri í Rekavík bak Höfn
GuðrúnÞorsteinsdóttir
húsfreyja í Neðra-Hreppi
Jón Jónsson
bóndi í Neðra-Hreppi í Skorradal
Elka Jónsdóttir
ljósmóðir og fjárfestir í Reykjavík
Runólfur Jónsson
sjómaður í Reykjavík
Margrét Runólfsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Jón Þorsteinsson
sjómaður í Reykjavík
Ætt Sævars Geirssonar
Geir Runólfsson
bankamaður í Reykjavík
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022
STOFNAÐ 1953
Við hreinsum sparifötin
Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380
„HAFIÐ Í HUGA AÐ ÞAÐ SELST „Í ÞVÍ
ÁSTANDI SEM ÞAÐ ER“ EN EKKI „Í ÞVÍ
ÁSTANDI SEM ÞIÐ VILDUÐ ÓSKA AÐ ÞAÐ
VÆRI“.“
„ÞÚ HLÝTUR AÐ VERA NÝI
LÖGREGLUSTJÓRINN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hugsa vel um
mömmu sína.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GRETTIR, HVAÐ LANGAR ÞIG Í
Í AFMÆLISGJÖF? HUGSAÐU
STÓRT!
AURAR ERU EKKI
VANDAMÁL! KLÓRI
KLÓRI
KLÓRI
KLÓR
ÞAÐ ER BARA EINN KLEINU-
HRINGUR EFTIR! EIGUM VIÐ AÐ
KASTA UPP UM HANN?
TIL
SÖLU
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Kátur mjög er karlinn sá.
Kvað hann bragi snjalla.
Krásum lumar einatt á.
Aldurhniginn valla.
„Hér kemur lausnin eftir smá
heilabrot,“ segir Helgi R. Ein-
arsson.
Jólasveinn um sveitir fer.
Sveinn Víkingur orti.
Matsveinninn í eldhúsi’ er
og yngissveinn í sporti.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una svona:
Jólasveinn er kátur kall.
Kvað Sveinn Elivoga snjall.
Matsveinn eldar ýmsa krás.
Ungur sveinn er Níkulás.
Þá er limra:
Níels á Neðri-Rangá
nótt eina gisti á Langá,
hann illa sá
og sængaði hjá
Sveindísi gömlu af vangá.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Árla morguns mengið káta
mun víst komið flest á stjá.
Hér er létt og lítil gáta
laugardegi þessum á:
Líkamspartar kvenna og kalla.
Köllum þessi fól ódó.
Styrkja þau og styðja alla.
Stundum líka fást úr sjó.
Lausn Helga fylgdu þessar limr-
ur til umhugsunar:
Náungakærleikur
Ef maður þekkir mann
sem margt getur og kann
sjálfsagt er
sýnist mér
í neyð að nýta hann.
En ef hann ekkert kann,
ég á við sama mann,
sérhver sér
þá sjálfsagt er
að hunsa alveg hann.
Nú í svartasta skammdeginu
finnst mér við hæfi að rifja upp
Kristján Fjallaskáld. Fyrst er
Haust:
Fölnar rós og bliknar blað
á birkigreinum;
húmar eins og haustar að
í hjartans leynum.
Myrkur
Myrkur hylur marar-ál,
myrk sig skýin hringa;
myrkur er í minni sál
myrkra hugrenninga.
Kveðið á Sandi
Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima;
nú er horfið Norðurland,
nú á ég hvergi heima.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Veit ég það Sveinki