Morgunblaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022 Einhverra hluta vegna voru Hollendingar afskaplega lítið nefndir til sögunnar áður en Evr- ópukeppnin í handbolta fór af stað í fyrradag. Flestir reiknuðu með því að þeir myndu lítið skipta sér af baráttu Íslands, Ungverjalands og Portúgals um tvö sæti í milli- riðlinum. Enda hafa Hollendingar aldrei gert vart við sig á stórmótum og voru í fyrsta skipti á EM fyrir tveimur árum. En það snarbreyttist í fyrra- kvöld þegar lærisveinar Eyja- mannsins yfirvegaða Erlings Richardssonar skelltu heima- mönnum í fyrsta leik. Eftir glæsilegan sigur á Portúgal í gærkvöld er íslenska liðið vissulega sigurstranglegt fyrir viðureigina gegn Hollandi annað kvöld. Það er ómögulegt að átta sig á því hvort Hollendingar séu orðnir eins góðir og úrslitin gegn Ung- verjum gefa til kynna eða hvort þetta var bara þeirra besti dagur á meðan þeir ungversku fóru á taugum á heimavelli. En eftir fyrstu umferðina í riðlinum eru þau tvö lið sem voru fyrir ofan samkvæmt styrkleika- lista stigalaus í tveimur neðri sætunum. Það örugga varðandi leikinn gegn Hollandi er að Guðmundur Guðmundsson vanmetur ekki Erling og hans menn. Gummi vinnur alltaf sína heimavinnu og er varkár að eðlisfari. Og er van- ur að benda okkur fréttamönn- um á þegar „auðveldir“ mótherj- ar eru á næstu grösum að um mjög góða og erfiða andstæð- inga sé að ræða. Eftir sigur Hol- lands á Ungverjalandi trúi ég því ekki að neinn af lærisveinum Guðmundar geri sig sekan um hið minnsta vanmat annað kvöld. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is EM 2022 Kristján Jónsson Víðir Sigurðsson Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið rætt um og ritað með sívaxandi þunga að leikur Íslands og Portú- gals í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópumótsins í Búdapest myndi nánast ráða úrslitum fyrir íslenska liðið í riðlinum. Ísland vann sannfærandi sigur, 28:24, sem var í raun aldrei í teljandi hættu eftir að liðið náði að komast í 14:10 undir lok fyrri hálfleiksins. Í raun var það vel gert hjá Portúgöl- um að ná að lágmarka tapið við fjög- ur mörk eins og leikurinn þróaðist á lokakafla leiksins þegar Ísland hefði getað bætt við sex marka forskot sem af og til var komið á markatöfl- una þegar leið á leikinn. Góður leikur í vörn og sókn gefur vissulega fyrirheit um að nú eigi Ís- land alla möguleika á að komast áfram og í milliriðil. Jöfn og þétt frammistaða liðsheildar, þar sem Gísli Þorgeir Kristjánsson og Sig- valdi Björn Guðjónsson voru einna fremstir meðal jafningja og þeir Aron Pálmarsson og Ómar Ingi Magnússon afar drjúgir, lofar góðu fyrir framhaldið. Að byrja Evrópumótið á þennan hátt er sannarlega glæsilegt og ljóst að miðað við þennan leik stóðust Guðmundur Guðmundsson og hans menn þær sívaxandi væntingar sem til þeirra hafa verið gerðar á loka- sprettinum fyrir mótið. En þetta eru samt „bara“ tvö stig og sigur Hollendinga á Ungverjum í fyrrakvöld sýnir að íslenska liðið á fyrir höndum tvo úrslitaleiki í viðbót um að komast áfram úr riðlinum. Sem er bókstaflega galopinn eftir þessa fyrstu umferð. Eins og staðan er núna virðast allir geta unnið alla og það eru mikil slagsmál fram und- an um stigin í þeim fjórum leikjum sem eftir eru í B-riðli annað kvöld og á þriðjudagskvöldið. Hvert einasta mark gæti þar ráðið úrslitum ef liðin taka upp á því að vinna hvert annað á víxl. Þurfti mikla þolinmæði Íslensku leikmennirnir þurftu að halda einbeitingu í vörninni í Búda- pest í gærkvöld. Portúgalar tóku sér góðan tíma í sóknarloturnar og biðu eftir því að geta komið boltanum inn á líkamlega sterka línumennina. Vörnin kallaði því á þolinmæðis- vinnu. Þolinmæðin var fyrir hendi og Portúgal tapaði boltanum átta sinn- um í fyrri hálfleik án þess að ljúka sóknum með skoti á markið. Björg- vin Páll Gústavsson var aðeins með skráð þrjú varin skot í fyrri hálfleik þrátt fyrir að hann fengi ekki nema tíu mörk á sig. Svo virtist sem baráttuandinn væri lítill hjá leikmönnum Portúgals í síðari hálfleik. Eftir að Ísland náði fjögurra marka forskoti, sem svo varð að sex marka forskoti í upphafi síðari hálfleiks, var sem Portúgalar hefðu ekki trú á að þeir gætu unnið. Forföllin í þeirra liði spila þar sjálf- sagt inn í. En Evrópumótið fer af stað á besta mögulega hátt. Nú er næsta mál á dagskrá að fylgja fyrirheit- unum eftir. Stóðust væntingar og vel það í fyrsta leik - Sannfærandi byrjun Íslands á Evrópumótinu í Búdapest og sigur á Portúgal Ljósmynd/Szilvia Micheller Snöggur Gísli Þorgeir Kristjánsson fór oft illa með portúgölsku vörnina í Búdapest í gærkvöld og hér stingur hann sér fram hjá Gilberto Duarte og skorar eitt fjögurra marka sinna í leiknum. MVM Dome, Búdapest, EM karla, B- riðill, 14. janúar 2022. Gangur leiksins: 1:0, 4:3, 6:7, 7:8, 8:10, 10:14, 12:16, 15:20, 17:23, 19:23, 21:27, 24:28. Mörk Portúgals: Rui Silva 4, Victor Iturriza 4, António Areia 3, Fábio Ma- galhaes 3, Leonel Fernandes 3, Da- ymaro Salina 2, Diogo Branquinho 2, Alexandre Cavalcanti 1, Miguel Alves 1, Salvador Salvador 1. Varin skot: Gustavo Capdeville 9, Manuel Gaspar 1. PORTÚGAL – ÍSLAND 24:28 Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Íslands: Sigvaldi Björn Guð- jónsson 5, Bjarki Már Elísson 4, Gísli Þorgeir Kristjánsson 4, Aron Pálm- arsson 4, Ómar Ingi Magnússon 3/1, Ýmir Örn Gíslason 2, Viggó Krist- jánsson 2, Elvar Örn Jónsson 2, Ólaf- ur Guðmundsson 2. Varin skot: Viktor Gísli Hallgrímsson 3, Björgvin Páll Gústavsson 3. Utan vallar: 8 mínútur. Áhorfendur: 6.025. Í BÚDAPEST Kristján Jónsson kris@mbl.is Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmars- son sagði góða tilfinningu fylgja því að ná í tvö stig í fyrsta leik á EM í handknattleik eftir að hafa beðið lengi eftir að spila. „Jú einmitt. Maður iðaði í skinn- inu að fá að byrja eftir að hafa horft á fyrstu leikina í keppninni í gær. Ég er einnig ánægður með hvernig við unnum leikinn. Þetta var liðsheild og við fengum framlag frá mörgum leikmönnum. Ég held að við höfum gert nokkurn veginn það sem við áttum að gera,“ sagði Aron þegar Morgunblaðið náði tali af honum í MVM Dome í Búdapest. Aron segir að þótt nokkuð marg- ir íslensku leikmannanna séu á aldrinum 22-25 ára þá segi það ekki allt því þeir hafi öðlast reynslu með landsliðinu og sterkum fé- lagsliðum. „Við höfum verið með nánast svipað lið í þrjú til fjögur ár. Þessir yngri leikmenn í þessu liði eru eng- ir kjúklingar lengur. Þetta eru menn í toppliðum í Evrópu. Þeir hafa spilað þar í ágætan tíma og eru að ná árangri. Þótt þeir séu ungir þá þurfum við einnig að horfa á reynsluna hjá þessum gæjum og hvað þeir geta. Þeir eru hrikalega góðir en við megum heldur ekki fara fram úr okkur. Engin flugeldasýning Þetta var engin flugeldasýning hjá okkur en mér fannst við gera flestallt rétt, fyrir utan að hraða- upphlaupin vantaði. Við vorum ekki í veseni í vörninni, hvorki sex á móti sex né sjö á móti sex. Í sókn- inni fannst mér við vera agaðir og flottir og komum okkur í góð færi,“ sagði Aron Pálmarsson, sem skor- aði fjögur mörk og var traustur í vörn og sókn. _ Fleiri viðtöl er að finna á EM- vefnum, mbl.is/sport/em_handbolta. Ljósmynd/Szilvia Micheller Fimm Sigvaldi Björn Guðjónsson var markahæstur í íslenska liðinu og var valinn maður leiksins í leikslok. Hér skorar hann eitt markanna. Engir kjúklingar lengur - Aron segir að íslensku leikmennirnir megi ekki fara fram úr sér HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: TM-höllin: Stjarnan – ÍBV .................... L14 Ásvellir: Haukar – Valur........................ L16 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Víkin: Víkingur – ÍBV ....................... L16.30 TM-höllin: Stjarnan U – FH.................. S14 Origo-höllin: Valur U – Grótta.......... S17.30 Sethöllin: Selfoss – Fjölnir/Fylkir.... S17.30 1. deild karla, Grill 66-deildin: Ísafjörður: Hörður – Vængir J......... L17.30 Digranes: Kórdrengir – Afture.U......... L18 UM HELGINA!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.