Morgunblaðið - 15.01.2022, Síða 43

Morgunblaðið - 15.01.2022, Síða 43
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Íslenskt hipphopp þrífst alla jafna vel í dag og meg- instraumsrapparar starfa ár- ið um kring. Tónlistin er alls ekki jafn viðkvæm fyrir duttlungum tískunnar og áður en þegar fyrstu íslensku rappbylgjunni lauk ca. 2003 tók við sæmilegasta þurr- katíð árin á eftir. Nöfn og nöfn en engin heildstæð sena. Hipphoppið er hins vegar orðið það stórt á heimsvísu að ekki er hægt að tala lengur um senu sem er hverf- ulleika undirorpin. Líkt og er- lendis er hipphoppheimurinn óhagganlegur þó að vissu- lega sé hægt að greina nokkrar og ólíkar senur innan hans. Og þegar maður horfir yfir íslenska sviðið sjáum við popprappara, gáfnarappara, „Soundcloud“-rappara og svo framvegis. Tveir af helstu neðanjarðarröppurunum okkar gáfu þannig út nýtt efni fyrir stuttu og ég ætla að gera það að sérstöku umtalsefni hér. Fyrst ber að nefna nýja plötu frá Countess Malaise, Maldita. Eftir að hafa komið frá sér stök- um lögum lengi vel í gegnum Soundcloud og álíka efnisveitur gaf hún út breiðskífu í fullri lengd haustið 2019. Stemningin á þeirri plötu er myrk, erfið, grimm og út- gangspunkturinn í senn hetju- legur og afdráttarlaus. Textar um geðveilu, kynjausla, ofbeldi og femínisma. Valdeflandi verk á marga vegu og það vel heppnað að platan var tilnefnd til Norrænu tónlistarverðlaunanna árið eftir (by:Larm). Nýja platan, Maldita, kom út síðasta haust og þar er höggvið í svipaðan knérunn. Hart og hrátt yfirbragð, kraftur og ástríða en líka mýkt og fegurð, sjá hið dá- yndislega „Anticipation pt. 2“ og líka „All by myself“ þar sem Countess gengur ansi nærri sér og setur hlutina skammlaust upp á borðið. Víst að greifynjan lætur ekki setja sig í einfalt box og fjöl- breytt flæðið er styrkur. Upptökustjórnandi Maldita er Lord Pusswhip en hann læddi og út frá sér nýju efni á dögunum. Pusswhip hefur lengi verið virkur í neðanjarðarsenunni og gefur reglubundið út efni. Þessi plata, Lord Pusswhip Is Rich, kom út síðasta nóvember en hefur verið í vinnslu síðan árið 2015. Platan er lokahluti af þríleik sem byrjaði með fyrstu plötu hans, Lord Pusswhip is Wack, árið 2015 og var fylgt eftir með safnplötunni Lord Pusswhip is Dead árið 2017. Platan var samin á ferðalögum Pusswhips í gegnum Evr- ópu og Bandaríkin á seinustu ár- um – nánar tiltekið í Reykjavík, Berlín, Lundúnum, Amsterdam, Los Angeles og New York. Ekki amalegt að hafa haft færi á að dýfa sér í svona sköpunarglöð svæði enda bera útgáfurnar og samstarfsmenn því vitni, al- þjóðlegt samstarf rennur í gegn- um verkin þar sem góð netteng- ing nægir oft til að búa til einhverja snilld í sameiningu. Meðal gesta á plötunni eru Ís- landsvinurinn Left Brain sem gerði garðinn frægan með hljóm- sveitinni Odd Future, rapparinn Trippjones frá New York, söng- konan Avice Caro frá Lundúnum og tónlistarmaðurinn Dviance frá Frakklandi. Platan fer líka efnislega yfir víðan völl – allt frá rappi og dans- tónlist yfir í hávaða og sveimtón- list. Þægilegar, ósungnar stemm- ur þar sem vírað andrúmsloftið gefur eiginlega aldrei neitt öryggi til kynna, maður veit aldrei hvert farið verður með mann næst hljóðrænt séð. Er það vel. Platan er fyrsta útgáfan í nýrri plötuútgáfu Lord Pusswhip sem ber heitið Heavy Knife Records og „mun leggja áherslu á framúrskarandi íslenska tónlist“, eins og segir í tilkynningu. Snúið, skælt og skrítið Greifynjan Countess Malaise lætur ekki setja sig í einfalt box. Ljósmynd/Anna Maggý » Víst að greifynjan lætur ekki setja sig í einfalt box og fjölbreytt flæðið er styrkur Countess Malaise og Lord Pusswhip gáfu út plötur í fyrra en bæði hafa verið áberandi í íslensku neðanjarðar- rappi. Þríleikur Nýjasta plata Lord Pusswhip er lokahluti þríleiks. MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ 95% BESTA SPIDER-MAN MYNDIN TIL ÞESSA ! SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI EIN ALLRA BESTA MYND STEVEN SPIELBERG OBSERVER THE GUARDIAN 93% NÝÁRSMYNDIN 2022 RALPH FIENNES GEMMA ARTERTON RHYS IFANS HARRIS DICKINSON DJMON HOUNSOU TOTAL F ILM T H E K I L L E R I S O N T H I S P O S T E R CHICACO SUN-TIMES TOTAL F ILM THE WRAP SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.