Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 04.02.2022, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 04.02.2022, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þau óvæntu tíðindi bár- ust frá Þýskalandi í fyrra- dag, að stjórnvöld þar hefðu ákveðið að svipta rúss- nesku ríkisstöðina Russia Today útsendingarleyfi fyrir þýskumælandi stöð sína, en stöðin hefur þótt vera áberandi áróðursmiðill fyrir Kremlverja á síðustu árum. Hin uppgefna ástæða var sú, að stöðin hefði ekki sótt um gilt útsendingarleyfi í Þýskalandi, en útsendingar hennar innan Evrópu munu hafa verið á grundvelli leyfis sem gefið var út í Serbíu. Rússnesk stjórn- völd brugðust sem von var hart við, og sökuðu Þjóðverja um að hafa framið „árás á málfrelsið“. Bönnuðu þau svo snarlega út- sendingar þýsku rásarinnar Deutsche Welle í Rússlandi. Tíðindin af banni RT í Þýska- landi voru ekki síst óvænt, þar sem Þjóðverjar hafa hingað til látið undir höfuð leggjast að grípa til aðgerða af nokkru tagi gegn Rússum, á sama tíma og flestir bandamenn þeirra eru að reyna að koma í veg fyrir að þeir ráðist á Úkraínu. Hafa Þjóðverjar því vandlega forðast allt sem gæti orðið til þess að húsbóndinn í Kreml ákvæði að loka fyrir jarðgassendingar sínar, sem Þjóðverjar eru nú orðnir háðir eftir áralöng mis- tök í orkumálum sem ekki sér fyrir endann á. Það er jafnvel rangt að tala um aðgerðaleysi í þessum efn- um, því þýsk stjórnvöld hafa gengið svo langt að meina bandamönnum sínum, sem keypt hafa þýsk vopn, að selja þau áfram til Úkraínumanna, jafnvel þótt ljóst sé að þar sé þörf á öllum þeim tækjum sem geta fælt Rússa frá því að hefja þar innrás. Þessi skammarlega afstaða Þjóðverja hefur ekki bara graf- ið undan samstöðu vesturveld- anna, einmitt þegar hennar var mjög þörf, heldur hefur hún einnig orðið til þess að sósíal- demókratar, sem unnu sigur í síðustu þingkosningum, eru aftur orðnir minni en kristilegu flokkarnir í þýskum skoðana- könnunum. Þá hefur Olaf Scholz, sem varla er búinn að vera í kanslarastólnum í þrjá mánuði, hrapað í vinsældum heima fyrir, samhliða því sem hann er nánast horfinn af sjón- arsviðinu. Vissulega mun það hrökkva skammt að loka fyrir útsend- ingar RT vegna „tæknilegs galla“ ef svo má að orði komast, en það er þó vonandi til marks um að þýsk stjórnvöld átti sig á því að ekki dugi lengur að stinga höfðinu í sandinn og vona að Úkraínudeilan hverfi. En þá er stóra spurningin hvort það sé nóg að þýsk stjórnvöld standi með vestur- veldunum. Ýmis teikn eru á lofti um að Rússar séu lítt hræddir við þær refsiaðgerðir, sem vesturveldin hóta nú að muni knésetja rúss- neska bankakerfið, ákveði Rússar að ráðast inn í Úkraínu. Vasilí Nebenzya, sendiherra Rússa hjá Sameinuðu þjóð- unum, sagði fyrr í vikunni að Rússar hefðu lært á undan- förnum árum að lifa með við- skiptaþvingunum, þar sem þeir hefðu misst tölu á öllum þeim aðgerðum sem gripið hefði ver- ið til. Þau ummæli geta eflaust flokkast sem digurbarkalegt tal af hálfu sendiherrans, en at- hygli vekur þó, að Rússar telja sig eiga hauk í horni, þar sem Kínverjar eru. Til marks um þá miklu samstöðu, sem nú ríkir á milli Rússa og Kínverja, má nefna, að í dag mun Pútín Rúss- landsforseti heimsækja Xi Jinping, forseta Kína, vegna opnunarhátíðar Ólympíu- leikanna, og hyggjast forset- arnir senda frá sér sameigin- lega yfirlýsingu um „stöðuna í alþjóðamálum“. Hið óopinbera bandalag Kín- verja og Rússa sást einnig skýrt þegar Kínverjar stóðu einir með Rússum í því að reyna að koma í veg fyrir að Úkraínumálið endaði á dagskrá öryggisráðsins, og heraflar ríkjanna hafa á síðustu miss- erum stóraukið samstarf sitt, líkt og sást á sameiginlegri flotaæfingu þeirra í lok janúar, þar sem Íran var boðið að vera með, sem er nú ekki beinlínis til þess fallið að auka tiltrú um- heimsins á félagsskapnum. Kínverjar gætu því hæglega ákveðið að taka á sig að létta af Rússum þeim þjáningum sem refsiaðgerðir vesturveldanna gætu fært þeim, sér í lagi í ljósi þess að þeir sæta nú færis að „endurheimta“ Taívan, með hervaldi ef þörf er á. Allt sem veikir samstöðu og baráttuþrek vesturveldanna hjálpar Kín- verjum að ná því markmiði. Ambrose Evans-Pritchard, viðskiptaritstjóri Daily Tele- graph, bendir á í nýlegum pistli að hótanir um viðskiptaþving- anir hafi því lítinn fælingar- mátt á Rússa. Það eina sem dugi í þeim efnum sé að gera yfirvofandi innrás eins kostn- aðarsama og mögulegt er, og skipti vopnasendingar til Úkra- ínu þar höfuðmáli. Haldi þýsk stjórnvöld vopnasölubanninu áfram og framlag þeirra til samstöðunnar verður það eitt að svipta sjónvarpsstöð útsend- ingarleyfi verður það að teljast heldur lítilfjörlegt fyrir ríki sem vill vera þungamiðjan í Evrópu. Hafa þýsk stjórnvöld séð að sér eða ætla þau að láta aðgerðir gegn RT nægja?} Það eina sem dugar? F rá því að hvalveiðar í atvinnuskyni hófust á nýjan leik árið 2006 hafa verið veiddar nokkur hundruð langreyðar og talsverður fjöldi af hrefnum. Þessar veiðar hafa verið umdeildar þar sem að annars vegar sjónarmið eru uppi um að þessar veiðar þjóni ekki þjóð- hagslegum hagsmunum Íslands og hins vegar sjónarmið um að það komi ekki öðrum við en Íslendingum hvort við kjósum að leyfa veiðar á stofnum sem eru ekki í útrýmingarhættu. Það sem er óumdeilt er að þessar veiðar hafa ekki haft mikla efnahagslega þýðingu fyrir þjóðarbúið á síðustu árum. Síðustu þrjú ár hafa engin stórhveli verið veidd en ein hrefna var veidd árið 2021. Fátt bendir til þess að það sé efnahagslegur ávinningur að því að stunda þessar veiðar, þar sem þau fyrirtæki sem hafa til þess leyfi hafa getað veitt hval síðustu ár en hafa ekki gert það. Ástæður þessa geta verið nokkrar en kannski einfalda skýringin sú að viðvarandi tap af þessum veiðum sé líklegust. Rökstuðning þarf ef leyfa á hvalveiðar Núverandi veiðiheimildir gilda út árið 2023. Að óbreyttu verður því engin veiði heimil á hvölum frá árinu 2024. Sýna þarf fram á að það sé efnahagslega réttlætanlegt að end- urnýja veiðiheimildir. Í sögulegu samhengi hafa þessar veiðar haft neikvæð áhrif á útflutningshagsmuni landsins. Orðsporsáhættan sem fylgir því að viðhalda þessum veið- um áfram er talsverð þó að hún sé illmælanleg. Sem dæmi má nefna varð truflun á sölu á fiski og samningum sagt upp í aðdraganda þess að hvalveiðum í atvinnuskyni var hætt árið 1989. Þegar hvalveiðar hófust á nýjan leik árið 2006 voru viðbrögð hófstilltari en Bandaríkjamenn mótmæltu auk þess sem Whole Foods-keðjan hætti að markaðssetja íslenskar vörur í versl- unum sínum um tíma. Japanir veiða nú sjálfir sitt hvalkjöt Þó að hvalveiðar við Íslandsstrendur séu sjálfbærar í þeim skilningi að ekki sé verið að ganga um of á stofnstærð þá er hæpið að halda því fram að veiðarnar séu sjálfbærar í félags- legum eða efnahagslegum skilningi. Japanir hafa verið stærstu kaupendur á hvalkjöti en neysla á því fer minnkandi ár frá ári. Því ætti Ísland að taka þá áhættu að viðhalda veiðum sem hafa ekki skilað efnahagslegum ábata til þess að selja vöru sem lítil eftirspurn er eftir? Japanir gengu úr Alþjóðahvalveiði- ráðinu í byrjun árs 2019 og veiða nú sjálfir hvali í sinni lög- sögu, en áður höfðu þeir veitt hvali á alþjóðahafsvæðum í nafni vísindarannsókna. Að óbreyttu er því fátt sem rök- styður það að heimila hvalveiðar eftir árið 2024. Á þessu ári verður unnið mat á mögulegum þjóðhagslegum og samfélagslegum áhrifum slíkrar ákvörðunar. Svandís Svavarsdóttir Pistill Hvalveiðar Höfundur er matvælaráðherra. svandis.svavarsdottir@anr.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is M ikil eftirspurn hefur verið eftir frystum fiski í Bretlandi síðustu mánuði, sérstaklega sjófrystum afurðum. Friðleifur Friðleifsson, deildarstjóri hjá Ice- land Seafood, hefur lengi starfað að sölu á sjávarafurðum frá Íslandi og segir að á sínum 28 ára ferli hafi hann ekki kynnst annarri eins eft- irspurn eftir sjófrystum afurðum og undanfarið. Mikil verðhækkun Friðleifur segir að mikil eftir- spurn hafi haft drjúgar hækk- anir í för með sér. Hann nefnir dæmi um að verð fyrir sjófrystan þorsk í Bretlandi hafi hækkað um 30% frá byrjun síðasta árs og mikil hækkun hafi orðið síðustu mánuði. Verð fyrir aðrar frystar af- urðir hafi einnig hækkað. Um ástæður þessa segir hann að veiði Norðmanna og Rússa í Bar- entshafi hafi dregist saman. Ekki komi mikið af afurðum frá Kína um þessar mundir, en þar er fiskur frá Noregi og Rússlandi gjarnan þíddur upp, fullunninn og frystur aftur áð- ur en hann fer á markaði, m.a. í Bretlandi. Í Kína séu margar fisk- vinnslur lokaðar vegna kórónu- faraldursins, erfiðleikar séu með flutningsleiðir og verð fyrir flutn- inga hafi hækkað gífurlega. Trúir venjum og hefðum „Í faraldrinum síðustu mánuði hafa Bretar verið trúir venjum og hefðum og borðað fisk og franskar eins og enginn væri morgundag- urinn,“ segir Friðleifur. „Í Bretlandi eru um 11.000 staðir sem sérhæfa sig í fish and chips. Þessir veitinga- staðir eru inni í hverfunum, en aðra skyndibitastaði er frekar að finna á verslunarsvæðum, í verslunar- miðstöðvum og við hraðbrautir. Í faraldrinum hefur aðgengi að stöðum með fisk og franskar verið miklu betra en að hinum stöðunum. Þá voru fiskistaðirnir fljótir að laga sig að veirureglum og takmörkunum og hægt var að sækja matinn á stað- ina eða fá hann afgreiddan í gegnum lúgu. Þannig tókst rekstraraðilum staðanna að viðhalda sínum við- skiptum og jafnvel auka þau og sannarlega hefur verið nóg að gera í sölu á fiski í Bretlandi síðustu sjö mánuði eða svo,“ segir Friðleifur. Minna til Bretlands en vægið mikið í sjófrystum afurðum Útflutningur á sjófrystum af- urðum til Bretlands dróst verulega saman í fyrra, eða sem nemur um 27% bæði í verðmætum og magni. Í raun hefur útflutningur á sjófryst- um afurðum til Bretlands ekki verið minni á þessari öld sé horft til magns á síðasta ári, samkvæmt upp- lýsingum frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Alls voru fluttar út sjófrystar afurðir til Bretlands fyrir tæpa 10 milljarða króna í fyrra samanborið við 14 milljarða króna árið á undan. Þennan samdrátt má að langstærst- um hluta rekja til þriðjungs sam- dráttar í útflutningsverðmætum þorskafurða á milli ára, sem fóru úr 9,4 milljörðum króna í 6,3 milljarða. Eins var samdráttur í ýsu sem nem- ur tæpum 9%. Bæði verð á sjófryst- um þorski og ýsu hækkaði hins veg- ar mikið eftir mitt síðasta ár. Á Radarnum, mælaborði sjávarútvegsins, sem Samtök fyrir- tækja í sjávarútvegi halda úti, má sjá að sjófrystar afurðir vógu að jafnaði um 14% af útflutnings- verðmætum sjávarafurða á öðrum áratug þessarar aldar. Langstærsti hluti sjófrystra afurða eru botn- og flatfiskafurðir, en þær vógu rúm 92% af útflutningsverðmæti sjó- frystra afurða á tímabilinu. Þar veg- ur þorskurinn þyngst, svo karfi og grálúða. Hlutdeild uppsjávarafurða var rúm 7% á tímabilinu, mest síld og svo loðna. Vægi uppsjávarafurða var mun minna undir lok tímabils- ins, meðal annars vegna loðnu- brests. Þrátt fyrir ofangreindan sam- drátt er Bretland langstærsta við- skiptaland Íslendinga fyrir sjófryst- ar afurðir. Vægi Bretlandsmarkaðar í sjófrystum afurðum var um 33% á síðasta ári, en Kína var í öðru sæti með rúm 12%. Hlutdeild Bretlands- markaðar í sjófrystum afurðum var komin í 40% árin 2019 og 2020 en hafði verið 22% fyrir áratug, sam- kvæmt upplýsingum SFS. Bretar sækja í fisk og franskar í faraldri AFP Fiskur og franskar Um 11 þúsund veitingastaðir í Bretlandi bjóða upp á þennan „þjóðarrétt“ Breta og nota gjarnan þorsk af Íslandsmiðum.Friðleifur Friðleifsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.