Morgunblaðið - 04.02.2022, Side 28

Morgunblaðið - 04.02.2022, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2022 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór gaf út sína þriðju plötu fyrir tæpum tveimur vikum og nefnist hún Dæt- ur. Síðasta plata Friðriks, Segir ekki neitt, kom út fyrir fjórum ár- um og hafði að geyma samsafn áð- ur útgefinna laga en á nýju plöt- unni eru öll lög ný af nálinni, níu talsins. Vann Friðrik þau með fimm upptökustjórum, þeim Magn- úsi Jóhanni Ragnarssyni, Arnari Inga Ingasyni, Pálma Ragnari Ás- geirssyni, Ásgeiri Orra Ásgeirs- syni og Þormóði Eiríkssyni. Flest laganna samdi Friðrik í samstarfi við aðra en annað gildir um laga- textana því hann er höfundur nær allra. Það sem var efst í huga Sem fyrr segir heitir platan Dætur og leikur blaðamanni for- vitni á að vita hvort þar sé eitt- hvert þema á ferð og hvort þetta sé jafnvel konseptplata. „Nei, í raun alls ekki,“ svarar Friðrik sposkur. Hann hafi einfaldlega þurft að finna plötunni eitthvert nafn rétt áður en hún kom út. Hann segir dætur sínar þrjár líklega hafa verið sér efst í huga þegar hann var að velta fyrir sér titli en sú þriðja fæddist í byrjun árs. „Þetta er allt um einhverjar ástir, örlög og dætur úti í hinum stóra heimi,“ segir Friðrik um plötuna og á þar við yrkisefnin. „Ég er einfaldur maður og setti bara á plötuna titil sem kom upp í hugann á þessum tíma,“ bætir hann við kíminn og segir það skemmtilegasta við titilinn að elsta dóttir hans hafi skrifað hann á plötuumslagið. Yljar með ýmsum hætti – Platan er í hlýlegum brúngul- um tónum, er þetta plata sem yljar? „Ég held að hún ylji á ýmsan hátt. Ég held hún geti yljað þeim sem eru að verða ástfangnir, þeim sem eru í hjartasorg og þeim sem langar bara að fara út og dansa,“ svarar Friðrik. – Kemur þetta þrennt við sögu í lagatextunum? „Já, í raun.“ – Eitt lagið heitir „Týpan“. Hvaða týpa er það? „Þetta er reyndar bara frasa- súpa sem mér finnst skemmtileg,“ segir Friðrik um texta lagsins og að týpan sé samansett úr ýmsum týpum sem hann þekki vel og sannleikurinn síðan skreyttur með skemmtilegum frösum. „Einhver vildi meina, sá ég á netinu, að eftir að þetta lag kom út myndi sala á hortensíum aukast gríðarlega því í textanum syngur sögumaður um að hann hafi fært þessari miklu týpu afskornar hortensíur. Fólki finnst það skemmtilegt, sem er mjög gaman að sjá. Af textunum á plötunni hefur þessi kannski fengið mestu viðbrögðin, af því sem ég hef séð alla vega. Fólki finnst hann eitthvað sniðugur.“ Hreinræktað popp – En tónlistin, er þetta einfald- lega popp eða hvernig myndirðu skilgreina hana? „Já, ég held að við getum ekkert farið í felur með það að þetta er bara mjög hreinræktað popp en samt sem áður er þetta, að mínu mati, nokkuð fjölbreytt plata af því að hún er gerð yfir svo langan tíma. Þetta er í rauninni allt Covid-ruglið, tvö ár sem hún hefur fengið að malla og þar af leiðandi finnst mér hún ólík innbyrðis,“ svarar Friðrik. Hann hafi ekki náð löngum, samfelldum tíma í stúdíói heldur farið í stúdíó þegar hann var í góðum gír. Því telji hann lög- in fjölbreytt þó hljóðheimurinn sé innan ákveðinna marka og ekki út um allt. „En besta lýsingin er nú samt alltaf hreinræktað popp,“ undirstrikar Friðrik. Mikilvægt að hvíla lögin – Heldurðu að það hafi verið gott fyrir plötuna að þú hafir feng- ið þetta langan tíma í að vinna hana? „Já, ég held það, ég held að á endanum hafi þetta komið sér vel og þá líka að eftir að platan var tilbúin – eða komin alla vega 90% inn – fengum við góðan tíma í að hlusta og klára síðustu prósentin. Á seinustu tveimur mánuðunum eða svo sem hún var í vinnslu fannst mér hún koma mjög vel saman. Þá var maður búinn að hafa langan tíma til að hlusta á lögin og hvíla þau, sem mér finnst líka mik- ilvægt, taka þau svo aftur fram og hlusta og taka þá síðustu skrefin. Mér finnst það alla vega gott þann- ig að já, ég held að á endanum hafi það verið jákvætt að fá nægan tíma til að hræra þetta saman.“ – Þú ert oftast einn í textasmíð- inni en fleiri eru jafnan með þér í lagasmíðinni. Finnst þér best að vinna með öðrum við lagagerðina? „Já, mér finnst það bara nauð- synlegt því sjálfur fer ég takmark- að langt í lagaútsetningum og er alls ófeiminn við að viðurkenna að ég hreinlega þarf að fá fólk með mér til að koma lögunum heim og saman. Svo er líka bara fullt af ótrúlega hæfileikaríkum lagahöf- undum sem er gaman að vinna með hérna á Íslandi. Mér finnst bara langskemmtilegast og best að vinna þetta í einhverjum hópi.“ Mætast á miðri leið – Þú ert með nokkra upptöku- stjóra þér til aðstoðar, þeir hafa væntanlega haft ólíka sýn á lögin? „Já, það er klárlega ólík sýn þeirra á milli en samt, einhvern veginn, eru þetta allt strákar sem hafa verið að hrærast í þessu poppi undanfarin ár og vita líka hvað ég stend fyrir. Þeir eru með ólíka sýn en vita samt hvar ég stend og það er mikilvægt að mætast á miðri leið og fá inngjöf frá nýjum mönn- um.“ – Þú getur vonandi fylgt plöt- unni eftir með væntanlegum til- slökunum á sóttvarnareglum og samkomutakmörkunum. Ertu bú- inn að plana eitthvert tónleikahald eða ætlarðu að bíða og sjá til? „Eigum við ekki að segja að ég sé að plana það, maður verður að- eins að sjá hvernig landið liggur. Mér finnst ekki alltaf verða það sem sagt hefur verið að verði en eigum við ekki að treysta því samt að við séum á leiðinni út úr þessu? Jú, ég er að plana tónleikahald, fyrr en síðar,“ svarar Friðrik og segist líklega byrja á einum útgáfutónleikum og sjá svo til. Mun sala á hortensíum aukast? - Þriðja hljómplata Friðriks Dórs, Dætur, komin út - Unnin í kófinu - „Ég held að á endanum hafi það verið jákvætt að fá nægan tíma til að hræra þetta saman,“ segir Friðrik um það langa ferli Ljósmynd/Anna Maggý Hlýleg Ljósmyndin sem prýðir umslag Dætra er í heitum litum. Gísli Örn Garðarsson, Björn Hlyn- ur Haraldsson og Mikael Torfason, handritshöfundar sjónvarpsþátta- raðarinnar Verbúðin, hlutu í fyrra- dag verðlaun Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins fyrir handrit sitt að þáttaröðinni. Verðlaunin voru veitt í sjötta sinn á kvikmynda- hátíðinni í Gautaborg er er verð- launafé 200.000 norskar krónur, jafnvirði um þriggja milljóna króna. Verðlaunin eru veitt fyrir fram- úrskarandi handrit að norrænni dramaþáttaröð en eins og flestir landsmenn ættu nú að vita fjalla þættirnir um lífið í litlu sjávarþorpi úti á landi á níunda áratug síðustu aldar, tilkomu kvótakerfisins um- deilda og ástir og örlög nokkurra aðalpersóna. Þættirnir eru nú sýnd- ir á RÚV og hafa notið mikilla vin- sælda og hlotið mikið lof. Dramatískir, fyndnir og ófyrirsjáanlegir Í umsögn dómnefndar verðlaun- anna segir að þættirnir séu allt í senn dramatískir, fyndnir og ófyrir- sjáanlegir og haldi sínum upphafs- tóni. Í þáttaröðinni séu miklar til- finningar í spilinu og mikið í húfi og ein aðalpersónan, Harpa, sem rek- ur sjávarútvegsfyrirtæki í þorpinu, á undan sinni samtíð. Einnig segir að höfundar séu óhræddir við að reyna á mörk frásagnarlistarinnar en eins og þeir vita sem séð hafa þættina eru þeir bæði hádramatísk- ir og spaugilegir í bland. Í dómnefnd sátu finnska leik- konan Alma Pöysti, ungverski rit- höfundurinn og framleiðandinn Gábor Krigler, norski handrits- höfundurinn og leikstjórinn Julie Andem og sænski blaðamaðurinn og sjónvarpsrýnirinn Mattias Bergqvist. helgisnaer@mbl.is Handrit Verbúðar það besta - Þáttaröðin hlaut verðlaun Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins fyrir besta handrit að dramatískri seríu Ljósmynd/Torleif Hauge, nordiskfilmogtvfond.com Í Gautaborg Mikael Torfason, Nina Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson tóku við verðlaununum í fyrradag. Ítalska leikkonan Monica Vitti er látin níræð að aldri. „Vertu sæl Mon- ica Vitti, vertu sæl drottning ítalskr- ar kvikmyndagerðar. Í dag er sann- arlega sorgardagur, við höfum misst mikinn listamanna og mikilvægan Ítala,“ er haft eftir Dario Francesch- ini, menningarmálaráðherra Ítalíu, í yfirlýsingu sem send var út á mið- vikudag og breska dagblaðið The Guardian greinir frá. Vitti öðlaðist heimsfrægð fyrir frammistöðu sína í kvikmyndinni L’Avventura í leikstjórn Michelang- elos Antonionis sem frumsýnd var árið 1960. Í myndinni leikur hún sálarkvalda konu sem daðrar við elskhuga týndrar vinkonu sinnar. Monica Vitti, sem hét í raun Maria Luisa Ceciarelli, fæddist í Róm 3. nóvember 1931. Hún uppgötvaði ást sína á leikhúsinu í seinni heimsstyrj- öld þegar hún skemmti fjölskyldu sinni með brúðuleikhúsi til að létta þeim stundirnar á erfiðum tímum. „Þegar sprengjurnar féllu, þegar við urðum að leita skjóls í skýlum vorum við litli bróðir minn vön að spinna stutt leikrit til að skemmta öðrum í kringum okkur,“ rifjaði Vitti upp löngu síðar. Vitti útskrifaðist úr Þjóðarleik- listarskólanum í Róm 1953 og hóf feril sinn í leikhúsinu, þar sem hún vakti mikla athygli fyrir kómíska hæfileika sín. Þar sá leikstjórinn Michelangelo Antonioni hana og fóru þau fljótt að vinna saman. „Ég var svo lánsöm að hefja snemma á ferlinum samstarf við mikinn lista- mann, sem var líka andlegur, fullur af lífi og eldmóði,“ sagði Vitti í viðtali í ítalska sjónvarpinu 1982. Walter Veltroni, fyrrverandi menningarmálaráðherra Ítalíu, upp- lýsti fyrst um andlát Vitti í tísti á Twitter og sagði það gert að ósk Robertos Russos, eiginmanns Vitti. Nokkur ár eru síðan Vitti dró sig alfarið úr sviðsljósinu, en hún glímdi við hrörnunarsjúkdóm. Monica Vitti látin 90 ára að aldri - Drottning ítalskrar kvikmyndagerðar AFP Ítalska leikkonan Monica Vitti er þekktust fyrir hlutverk sín í kvik- myndum Michelangelos Antonionis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.