Morgunblaðið - 04.02.2022, Side 18

Morgunblaðið - 04.02.2022, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2022 ✝ Gunnlaugur Geirsson fædd- ist í Reykjavík 30. janúar 1940. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Grund 21. janúar 2022. Foreldrar hans voru hjónin Hall- fríður Kristín Björnsdóttir hús- móðir, f. 1900, d. 1978, og Geir Gunnar Gunn- laugsson, bóndi í Eskihlíð og síðar í Lundi í Kópavogi, f. 1902, d. 1995. Systkini Gunnlaugs eru Frið- rika Gunnlaug, f. 1935, og Geir Gunnar, f. 1945. Gunnlaugur kvæntist Rósu Magnúsdóttur 28. des. 1963, f. 1940, d. 1983. Börn Gunnlaugs og Rósu eru: 1) Geir Gunnar, f. 1966, synir: Gunnlaugur, f. 1994, og Bene- dikt, f. 2003. 2) Björn, f. 1968, dætur: Rósa, f. 1992, Anna María, f. 2000, og Amalía, f. 2005. Sonur Rósu: Dagur Björn, f. 2020. 3) Magnús Gylfi, f. 1969. 4) Aðalsteinn, f. 1973, dætur: Emilía, f. 1997, Sigrún Helena, f. 2003, og Rósa Birgitta, f. 2005. Sambýliskona Gunnlaugs frá 1989 til dánardægurs Gunn- stúdentsprófi árið 1960. Þá hóf hann nám í læknadeild Háskóla Íslands og lauk embættisprófi frá læknadeild árið 1967. Starf- aði kandídatsárið og næstu ár á Íslandi sem unglæknir. Á námsárum sínum í Banda- ríkjunum starfaði Gunnlaugur á þremur spítölum: Medical Col- lege of Virginia hospitals í Rich- mond, Virginia, New England Deaconess Hospital í Boston, Massachusetts og Strong Mem- orial Hospital, Rochester, New York. Þegar til Íslands var komið hóf Gunnlaugur störf við Rannsóknarstofu Háskólans við frumurannsóknir, auk þess að starfa fyrir Krabbameinsfélag Íslands sem yfirlæknir árið 1976. Þar starfaði Gunnlaugur til ársins 1987, en sama ár stóð hann að stofnun rannsókn- arstofu í frumumeinafræði og að rannsóknarstofu í vefja- meinafræði árið 1991. Árið 1986 tók Gunnlaugur við embætti sem prófessor í réttarlækn- isfræði við Háskóla Íslands, þar sem hann starfaði út sinn starfs- feril. Meðal annarra verkefna sem Gunnlaugur tók að sér var ráðgjöf á vegum WHO á Filipps- eyjum og störf í Kosovo á veg- um stríðsglæpadómstólsins í Haag. Gunnlaugur sinnti ýms- um trúnaðarstörfum, þ. á m. sem fulltrúi í læknaráði og sem formaður Félags norrænna réttarlækna. Útför Gunnlaugs fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 4. febrúar 2022, og hefst athöfnin klukkan 13. laugs er Malín Ör- lygsdóttir, f. 1950. Hennar börn og stjúpbörn Gunn- laugs eru: 1) Örlyg- ur Smári, f. 1971, börn: Malín, f. 1998, Gunnar, f. 2002, og Jakob, f. 2002. Dóttir Mal- ínar: Emma, f. 2020. 2) Bergþór Smári, f. 1974, dæt- ur: Heba, f. 2000, og Hrönn, f. 2009. 3) Unnur Smári, f. 1980, börn: Tómas, f. 2005, Davíð, f. 2008, og Freyja Malín, f. 2011. Gunnlaugur ólst upp við sveitastörf í Eskihlíð í Reykja- vík, en um 1960 var býlið flutt í Lund í Kópavogi. Í mennta- skólanum kynntist Gunnlaugur Rósu, sem varð konan hans. Árið 1970 flutti fjölskyldan til Bandaríkjanna, þar sem Gunn- laugur hóf sérnám í líffæra- meinafræði og dvöldu þau þar til ársins 1974. Haustið 1984 kynntust Gunn- laugur og Malín og urðu lífs- förunautar upp frá því til dán- ardægurs Gunnlaugs. Námsferill Gunnlaugs hófst í Grænuborg, Skóla Ísaks Jóns- sonar, Austurbæjarskóla og þaðan í Menntaskólann í Reykjavík, þar sem hann lauk Á kveðjustund hugsa ég til bróður míns með þakklæti og kærleika. Hann kom í heiminn þegar ég var fimm ára og ég man vel þegar mér var sagt að ég væri orðin stóra systir. Mér fannst ég vaxa töluvert, ég átti lítinn bróður sem ég gat montað mig af. Næstu sex sumur var ég í sveit og að hausti sá ég hvað honum hafði farið fram. Hann var svo duglegur og skýr, fallegi drengurinn með dökku augun og þykka mjúka hárið. Hann var allra yndi. Ég átt- aði mig á því smátt og smátt að hann væri mér fremri að mann- kostum, íhugull, greindur og ró- legur og fór vel með gullin sín. Uppáhaldssöguna hans samdi mamma. Hún hét „Strákurinn sem mölvaði útvarpið“ og var um strák sem skemmdi alla hluti til að gá hvað væri innan í. En strák- urinn sá að sér, gerði við allt sem hann hafði skemmt og varð sóma- maður. Mér þótti þetta ótrúleg saga, að stráknum tækist að laga allt sem hann hafði brotið og bramlað en Gunnlaugur trúði því að það væri hægt að gera brotna hluti heila aftur. Hann átti líka bjartsýni, þessi skynsami maður sem hafði orð fyrir að vera óþarf- lega áhyggjufullur. Bróðir minn átti að baki langa starfsævi. Hann valdi sér ábyrgð- armikið ævistarf sem reyndi á mannkosti, ekki síður en mennt- un. Í blóma lífsins missti hann Rósu sína frá fjórum ungum son- um. Það var þyngsta raunin. Gunnlaugur og Malín fóru að búa saman fyrir um 36 árum með börnum þeirra beggja. Allt mynd- arfólk sem hefur hlotið góða menntun og á glæsilega afkom- endur. Heilsan sveik illa síðustu árin og þá hófst barátta við illvígan, ólæknandi sjúkdóm. Ég bar gæfu til að vera með bróður mínum í dagdvöl í Múlabæ síðustu mánuði og kynnast því góða atlæti sem þar var. Við fengum tækifæri til að tala saman í rólegheitum því hann átti orðið erfitt um mál og það tók tíma að finna orðin og röddina. Alla daga var eitthvað gert til að hressa hugann og finna viðráðanleg verkefni, allir fengu athygli, virðingu og vinsemd. Þar var hjálp sem kom sér vel fyrir hann og okkur sem vildum stuðla að velferð hans en höfðum ekki þekkingu til. Malín hans stóð lengstu og erfiðustu vaktirnar gegnum þessi sjö þungbæru ár og fyrir það var hann innilega þakk- látur. Þegar hann fór í hvíldarinn- lögn á Grund stuttu eftir nýár komu vinir úr Múlabæ með það sem hann hafði ánægju af til dægradvalar og heimsóttu hann fram á síðasta dag. Þegar við systkinin vorum saman í skötu- veislu í Múlabæ á Þorláksmessu vorum við aldeilis að njóta dags- ins. Og ég hefði viljað sjá hann bróður minn á ballinu í vetur þeg- ar hann dansaði glaður við döm- urnar sem buðu honum upp hver af annarri. En við vissum að hverju dró. Við vorum þó ekki viðbúin, aðeins farin að hugsa fram á afmælið hans þegar hann sofnaði frá okkur. Ég dáðist að þér alla tíð, bróðir minn. Þú varst afburðamaðurinn hógværi. Þú sýndir mér bróður- kærleik og virðingu alla tíð, þú stækkaðir mig. Ég elska kveðj- una þína: „Sæl, systir“ og sakna þín til æviloka. Öllum ástvinum þínum sendi ég samúðarkveðjur og blessunar- óskir og þeim sem studdu þig í baráttunni. Þín systir, Friðrika (Rikka). Elsku besti bróðir minn. Heimili okkar í æsku var í Eskihlíð A þar sem nú er Konu- kot og veitir þeim skjól er á þurfa að halda. Við nutum líka skjóls í Eskihlíð A þrátt fyrir að þröngt væri um okkur, því margt var um mann- inn. Þar voru líka stríðshrjáðir einstaklingar sem að stríði loknu komu til landsins til að lifa og starfa fjarri rústum og eymd. Þrátt fyrir þrengsli var yfrið nóg væntumþykja sem við nutum, þótt ekki væri kósíkvöld í boði enda þau þá ekki fundin upp. Þú varst ötull í störfum við bú- skapinn og stundir milli stríða fóru í að læra fyrir skólann. Námsárangur þinn bar þess ekki merki að hafa liðið fyrir bú- skaparannir, þvert á móti varstu alltaf í fremstu röð. Það verður tæpast sagt að lífið hafi farið um þig mjúkum hönd- um, 43 ára misstir þú konu þína, Rósu Magnúsdóttur, frá fjórum sonum. Það var ekki siður í þann tíð að flíka tilfinningum sínum, bera sorgir sínar á torg, heldur byrgja þær með sér í hljóði. Þetta var erfitt. Sólargeisli í líf þitt var Malín Örlygsdóttir sem í 36 ár hefur verið þín stoð og stytta og nú síð- ustu ár borið með þér þungann af þessum illvíga sjúkdómi sem hrjáði þig hin síðustu ár. Við Hjördís áttum oft góðar stundir saman í kaffi á Öldugöt- unni, hefðu mátt vera miklu fleiri. Það er því miður meinloka margra að vera fullvissir um að vera eilífir, að það gefist nægur tími til að rækta vina- og ættar- tengsl seinna í „eilífðinni“ og gleyma sér svo við daglegt verald- legt amstur. Og verða svo á stundum sem þessum harkalega varir við að öllu er skammtaður tími, stundum án uppsagnar- frests. Þessi hræðilegi sjúkdómur, sem smám saman hefti tjáningar- hæfni þína og fjarlægði þig frá öðrum, skildi þig eftir einan með sjálfum þér vanmegnugum til að taka þátt í samskiptum við þína nánustu, svipti þig lífsgæðum sem þú vissulega áttir skilið að fá að njóta eftir að hafa skilað farsælu ævistarfi. Það var þér unun að leita á náð- ir J.S. Bach. Ég minnist dýrð- legra stunda með þér í Flórens þegar við gengum inn í kirkju þar sem orgeltónlist Bachs var leikin. Í þessari fornu kirkju gaf upplif- unin, hvelfingin, hljómburðurinn, líkneski dýrlinganna og snilli alls handbragðs þar sterklega í skyn að nær komast dauðlegir menn ekki almættinu. Á þessari kveðjustund velkjast í huga mér annars vegar léttir vegna lausnar sem þú hefur hlotið frá þeirri kvöl sem þessi illi sjúk- dómur lagði á þig og svo sorgin yfir því að þurfa að sjá á eftir þér hverfa inn í þessa miklu óræðu móðu, sem skilar engum aftur. Kæru bróðursynir, stjúpbörn og Malín, hér að neðan eru nokkr- ar línur um sorgina eftir föður okkar Geir G. Gunnlaugsson sem var okkur alltumlykjandi kær- leikur. Sorgin Hún byrgir lífsins björtu hlið það blæðir úr hjartasárum. Er fækkar vina- og frændalið þá fyllast augun tárum. Gunnar bróðir og fjölskylda, Vallá. Góður vinur og samstarfsfélagi til margra ára, Gunnlaugur Geirs- son, er látinn. Fregnin kom óvænt þótt ég hafi vitað að heilsu Gunn- laugs hafði hrakað síðustu ár. Gunnlaugur var mikils metinn læknir, hann var brautryðjandi í frumumeinafræðirannsóknum á Íslandi og starfaði við það lengi vel hjá Krabbameinsfélagi Ís- lands og einnig í sjálfstæðum rekstri í mörg ár. Hann var árið 1991 einn stofnenda Vefjarann- sóknarstofunnar, sem er rann- sóknarstofa sjálfstætt starfandi meinafræðinga og hefur starfað í yfir 30 ár. Gunnlaugur vann þar að vefjarannsóknum í rúman ára- tug frá stofnun stofunnar. Rannsóknarstofa Háskólans í meinafræði sem síðar varð meina- fræðideild Landspítalans varð samt sem áður meginstarfsvett- vangur Gunnlaugs. Eftir sér- fræðinám í meinafræði á virtum sjúkrahúsum í Bandaríkjunum starfaði hann á Landspítalanum frá árinu 1974 í hlutastarfi ásamt því að verða svo yfirlæknir Frumurannsóknarstofu Krabba- meinsfélagsins frá upphafi árs 1976. Í starfi sínu á Landspítalan- um sá hann m.a. um að greina vefjasýni sem send voru frá tann- læknum og hann varð dósent við tannlæknadeild Háskóla Íslands. Gunnlaugur var skipaður pró- fessor í réttarlæknisfræði við Há- skóla Íslands í ársbyrjun 1986 og varð jafnframt réttarmeinafræð- ingur á Landspítalanum. Í því starfi sinnti hann margvíslegum verkefnum fyrir lögregluyfirvöld í landinu og var virkur í norrænu samstarfi réttarmeinafræðinga. Hann var „réttarmeinafræðingur Íslands“ í tæplega 20 ár, á þeim tíma þegar réttarmeinafræðin þróaðist frá því að vera hliðar- grein við almenna meinafræði yfir í að vera alveg sjálfstæð sérgrein innan læknisfræðinnar. Mikið mæddi á Gunnlaugi í þessu starfi. Hann sá m.a. um að þróa starfs- greinina innanlands og kom að samningu laga og reglugerða á sviði réttarmeinafræði. Að vera í forsvari fyrir réttarmeinafræði í heilu landi er krefjandi starf fyrir einn mann. Ég minnist Gunnlaugs sem skemmtilegs og mjög viðkunnan- legs starfsfélaga. Hann var fjöl- fróður, með áhuga á mörgu í okk- ar samfélagi og einnig af erlendum vettvangi. Hann hafði áhuga á bókmenntum og var mik- ill tungumálamaður. Hann lagði t.d. áherslu á að læra ítölsku, sem nýtt tungumál, á efri árum. Það er mikill söknuður að elskulegum og góðum manni, Gunnlaugi Geirssyni, og votta ég aðstandendum hans innilega sam- úð. Með kveðju frá meinafræði- deild Landspítalans. Jón Gunnlaugur Jónasson yfirlæknir. Gunnlaugur B. Geirsson ✝ Óskar Kon- ráðsson raf- virkjameistari fæddist 12. apríl ár- ið 1945 í Skerja- firðinum. Hann lést á Deild 2 á Heil- brigðisstofnun Norðurlands vestra á Sauðárkróki 25. janúar 2022. Foreldrar hans voru Konráð Jóns- son frá Kagaðarhóli í Austur- Húnavatnssýslu, f. 13.10. 1891, d. 19.8. 1974 og Sigurbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir frá Rútsstöðum í Svínadal, f. 27.9. 1917, d. 8.5. 2010. Systkini Óskars samfeðra voru Ingólfur, f. 1914, d. 1978, Eggert, f. 1920, d. 2008, Jón, f. 1923, d. 2001, Lárus, f. 1928, d. 2008 og Ragnheiður, f. 1932, d. 1997. Sigurjónssyni og eiga þau 3 börn, b) Konráð Jónas, f. 1980, í sambúð með Berglindi Rós Ein- arsdóttur og eiga þau 2 syni, c) Albert Sölva, f. 1985, giftur Ósk Hilmarsdóttur og eiga þau 3 börn. Óskar lærði rafvirkjun og starfaði sem rafvirkjameistari alla sína ævi. Hann starfaði m.a. á Keflavíkurflugvelli, sjálfstætt, hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur en lengst af hjá Hampiðjunni. Óskar gekk í Oddfellowregl- una árið 1982 og tók virkan þátt í starfi hennar. Árið 1992 greinist Óskar með parkinsonsjúkdóminn og var á tímabili mjög virkur í Park- insonsamtökunum og var for- maður félagsins um árabil. Útför hans fer fram frá Sauð- árkrókskirkju í dag, 4. febrúar 2022, klukkan 14 en verður einnig streymt á youtube-síðu kirkjunnar. Hlekkir á streymi: https://tinyurl.com/2p8uebhz https://www.mbl.is/andlat Albræður Ósk- ars eru þeir Gunn- ar, f. 1943, Haukur, f. 1949, og Kjartan, f. 1955. Óskar giftist Jónínu Ósk Jóns- dóttur 1965 og eiga þau saman 3 börn, þau eru: a) Kristín Björg Baldys, f. 14.12. 1963, gift Oleksandr Baldys. Kristín á 3 börn og 4 barnabörn. b) Dagbjört Ósk Óskarsdóttir, f. 13.8. 1965. Dagbjört á 2 dætur og 1 barnabarn. c) Arnar Þór Óskarsson, f. 16.5. 1972. Arnar á 2 börn. Leiðir þeirra skildi. Árið 1975 giftist Óskar eft- irlifandi eiginkonu sinni, Jó- hönnu Jónasdóttur, f. 26.3. 1955. Saman eiga þau: a) Jóhönnu Marín, f. 1977, gift Vigni Má Elsku Óskar, það er sárt að kveðja þig. Þakklæti er mér efst í huga. Takk fyrir að bjóða mig svona hjartanlega velkomna í hópinn, mér þótti svo vænt um að þegar við hittumst fyrst sagð- ir þú að ykkur hefði einmitt vant- að fleiri óskir. Takk fyrir að hleypa mér í hugarfylgsni þín og sýna mér allar bækurnar, allar plöturnar, allar myndirnar og allar skrýtlurnar. Takk fyrir að treysta mér fyrir stráknum þín- um sem ég sá hvað þú varst stolt- ur af. Takk fyrir rúntana, mér fannst þeir æðislegir. Ég dýrk- aði svarta laumuhúmorinn þinn sem minnti mig á afa Silla. Það var svo gaman að skoða vísur með þér að mig langar að kveðja þig með þessum orðum sem minna mig á ríkidæmi þitt og örlæti. Þín verður saknað. Gulli og perlum að safna sér sumir endalaust reyna. Vita ekki að vináttan er verðmætust eðalsteina. Gull á ég ekki að gefa þér og gimsteina ekki neina. En viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina. (Hjálmar Freysteinsson) Ósk Hilmarsdóttir. Okkur langar að minnast Ósk- ars með nokkrum orðum. Hann fæddist í Reykjavík laust fyrir miðja síðustu öld í Reykjavík og ólst þar upp hjá for- eldrum sínum ásamt þremur al- bræðrum en Óskar var næstelst- ur. Það var stór frændgarður sem bjó að mestu norður í Húnavatns- sýslum og voru þeir bræður send- ir þangað í sveit eins og títt var um borgarbörn eftirstríðsáranna. Þeir fóru allir snemma að vinna fyrir sér og leggja til heimilisins. Óskar lærði rafvirkjun og vann við það alla sína starfsævi. Tvítugur var Óskar kvæntur 2ja barna faðir. Hjónabandið ent- ist ekki lengi enda bæði kornung og skildi leiðir um líkt leyti og þriðja barn þeirra fæddist. Óskar kvæntist aftur þrítugur að aldri og lifir seinni konan mann sinn. Þau eiga þrjú börn sem öll voru undir sjálfræðisaldri þegar Ósk- ar varð fyrir því áfalli að greinast með parkinson fyrir 30 árum. Til að byrja með háðu veikindin hon- um ekki mikið og hann gat stund- að sína vinnu næstu 10 árin. Upp úr síðustu aldamótum þegar Óskar hætti að vinna tóku hjónin sig upp og fluttu af mölinni norður á Sauðárkrók þar sem konan hans á rætur. Börnin voru þá að mestu flutt að heiman en voru þó eitthvað hjá foreldrum sínum með annan fótinn fyrstu árin fyrir norðan. Smám saman tók að halla á Óskar vegna veik- inda hans en lengi vel gat hann þó sinnt sínum hugðarefnum og grúski s.s. ættfræði, tónlist o.fl. Sem dæmi þá minnist dóttir okkar hjóna þess að Óskar hafi dregið sig inn í vinnuherbergi sitt þegar við mættum í heim- sóknir til að sýna henni eitthvað áhugavert og minnist hún sér- staklega tónlistaráhuga hans. Þar kom fyrir fjórum árum að Óskar fór á Dvalarheimili á Króknum þar sem hann þurfti orðið sólarhringsumönnun og mikla aðstoð vegna sinna veik- inda. Hann var ekki sáttur við hlutskipti sitt og skapið var á stundum stórt. Honum sveið að geta ekki fylgt sinni nánustu fjölskyldu eftir í leik og starfi síðustu misserin. Á ferðum okkar hjóna um landið komum við gjarna við á Króknum og kíktum til Óskars. Honum leiddist tilbreytingar- laust lífið á dvalarheimilinu og var minnsta félagsskap feginn. Hvítt súkkulaði var í miklu uppáhaldi hjá honum og fylltum við því alltaf á birgðir hans þeg- ar við komum á staðinn, síðast í des. sl. Síðasta árið var honum erfitt, síendurteknar lungnasýkingar því vökvi hrökk gjarna ofan í lungu í stað þess að fara niður vélindað, afleiðing af parkinson. Nánasta fjölskylda vakti yfir honum síðustu vikuna uns hann fékk loks langþráðan frið. Farðu í friði, kæri vin, og frið- ur guðs þig blessi. Þess óska þinn bróðir og mág- kona, Ólafía og Haukur. Margar á ég minningar um þig og gæti ég skrifað nokkrar blað- síður um þær allar en nokkrar af þeim standa upp úr hjá mér og langar mig að segja frá þeim. Á Kárastígnum bakaði mamma oft skúffuköku og á kvöldin eftir erfiðan vinnudag eða skóladag, rétt áður en við fór- um að sofa, fengum við okkur köku. Oftast nær voru það ég, Konni bróðir og þú sem stóðum við eldavélina með köku í annarri og ískalda mjólk í hinni og rædd- um um daginn og veginn. Ég byrjaði að æfa fótbolta 12 ára og man ég eftir að hafa verið að spila á Hlíðarenda með Val og þar stóðst þú og hvattir mig áfram með hrópum eins og „dúndraðu nú í boltann“. Þú studdir mig í boltanum þó að þér hafi leiðst tuðruþrældómurinn, eins og þú orðaðir það, í sjónvarp- inu. Eins studdir þú mig í tónlist- inni en eitt lag stóð þar upp úr sem þú baðst alltaf um þegar ég æfði mig og baðst mig að spila fyrir alla gesti sem komu í heim- sókn, lagið sem í raun mótaði tón- listarstefnu mína: Take Five með Brubeck-kvartettinum. Tónlistin var þér kær og kynntist ég alls konar tónlistarstefnum í gegnum þig, hvort sem það var Ríó Tríó eða Smokie yfir í James Last, Óskar Konráðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.