Morgunblaðið - 04.02.2022, Page 16

Morgunblaðið - 04.02.2022, Page 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2022 Ójöfnuður í tengslum við krabba- mein og vinna gegn honum er í brennidepli í dag, á alþjóðlegum degi krabbameina. Ójöfnuður í tengslum við krabba- mein fyrirfinnst hér á landi, líkt og annars staðar. Hann birtist með margvíslegum hætti og getur orsakast af kostnaði, takmörkunum á endurgreiðslukerfi, skorti á upplýsingum, mismunandi heilsulæsi og fleiru. Svo eitthvað sé nefnt getur kostn- aður til dæmis verið hindrun fyrir þátttöku í skimunum. Mjög takmörk- uð niðurgreiðsla ferðakostnaðar fylgdarmanna fólks sem lengst þarf að sækja krabbameinsmeðferð getur gert það að verkum að sjúklingar geta ekki haft með sér aðstandanda, þrátt fyrir óumdeilt mikilvægt hlut- verk þeirra í meðferð. Að stjórnvöld hafi enn ekki hrint í framkvæmd skimun fyrir krabba- meinum í ristli og endaþarmi eykur líkur á að þessi mein þróist frekar hjá þeim hópum í samfélaginu sem síður hafa frumkvæði að því að nýta fyrir- byggjandi ristilspeglanir. Í Áttavitanum, rannsókn Krabba- meinsfélagsins, kom fram að karlar leita mun síðar til læknis með ein- kenni sem síðar voru rakin til krabbameina en konur, sem getur haft áhrif á batahorfur. Í sömu rannsókn kom í ljós að körlum er síður en konum ráðlagt að hafa einhvern með sér í viðtöl við heilbrigðis- starfsfólk. Ljóst er að fólk sem flytur hingað til lands að utan getur staðið höllum fæti á marg- an hátt vegna tungumálaörðugleika, minna tengslanets og minni þekk- ingar á kerfinu. Í nýrri rannsókn Krabbameinsfélagsins eru vísbend- ingar um minni þátttöku kvenna af erlendum uppruna en annarra í skim- unum. Fyrir þennan hóp og aðra við- kvæma hópa er samfella í þjónustu og skýrir verkferlar algert lykilatriði. Ójöfnuður í tengslum við krabba- mein hefur lengi verið áhyggjuefni hjá Krabbameinsfélaginu og það hef- ur unnið gegn honum með ýmsum hætti. Tilraunaverkefni um gjald- frjálsa skimun er eitt dæmi. Sjúkling- um og aðstandendum býðst ókeypis ráðgjöf hjúkrunarfræðinga, félags- ráðgjafa og sálfræðinga í Reykjavík og á fjórum stöðum á landsbyggðinni, auk símaráðgjafar og fjarviðtala, líka á pólsku. Á vegum félagsins hefur fólk utan af landi aðgang að átta íbúð- um í Reykjavík. Sjálfboðaliðar félags- ins bjóða upp á akstur í meðferð fyrir þá sem eiga erfitt með að komast á milli staða. Sérstakur stuðnings- hópur fyrir konur af erlendum upp- runa er starfandi og sífellt meira fræðsluefni félagsins er á pólsku. Reykleysisnámskeið fyrir pólsku- mælandi fólk er einnig í bígerð. Í rannsóknum félagsins er í auknum mæli varpað ljósi á ójöfnuð í tengslum við krabbamein. Þátttaka í starfi aðildarfélaga um allt land er fólki að kostnaðarlausu og mörg félaganna styðja við félags- menn sína með endurgreiðslu kostn- aðar, til dæmis vegna dvalar fjarri heimili. Sóknarfærin til að draga úr ójöfn- uði í tengslum við krabbamein eru mörg og ekki bara í heilbrigðiskerf- inu. Fjölbreyttar stjórnvaldsaðgerðir skipta miklu og má nefna árangurs- ríkar aðgerðir í tóbaksvörnum. Til að viðhalda þeim góða árangri sem hér hefur náðst varðandi krabbamein og bæta hann enn frekar er nauðsynlegt að viðurkenna ójöfn- uð og vinna gegn honum hvar sem hann er að finna. Markmiðið verður að vera að tryggja að hvergi halli á ákveðna hópa, hvort sem um er að ræða lifnaðarhætti sem auka líkur á krabbameinum eða greiningu og meðferð. Í þessu er virk krabbamein- sáætlun lykiltæki. Krabbameins- félagið skorar á heilbrigðisráðherra að hrinda áætluninni í framkvæmd. Útrýmum ójöfnuði varðandi krabbamein Eftir Höllu Þorvaldsdóttur Halla Þorvaldsdóttir »Ójöfnuður í tengslum við krabbamein og vinna gegn honum er í brennidepli í dag, á alþjóðlegum degi krabbameina. Höfundur er framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. halla@krabb.is Um þessar mundir, í það minnsta vestanhafs, er umfjöllun um fjölda- fárssefjun (e. Mass Formation [Psychosis]) í veldisvexti. Þetta ný- yrði er notað yfir það ástand sem meðal ann- ars hefur skapast eftir stanslausan hræðslu- áróður í tengslum við umfjöllun yfirvalda og fjölmiðla um nýju kór- ónuveiruna. Nú er svo komið að stór hluti fólks er ófær um að sjá hættuna sem veiran veldur í réttu ljósi. Þessi tegund veruleikabrenglunar birtist meðal annars hjá málsmetandi fólki sem talar fyrir aðgerðum sem ala á sundrung. Það virðist þó vera að rofa til um þessar mundir og æ fleiri að vakna úr þessari dáleiðslu og eru farn- ir að sjá að við erum ekki í hættu. Í þessi tvö ár sem börnin okkar hafa lifað með Sars-CoV-2-veirunni hafa þau lítið fundið fyrir veikindum af völdum hennar. Í byrjun smituðust fá börn og þegar þau smituðust þá smit- uðu þau mjög lítið út frá sér. Nýjasta afbrigðið, svokallað ómíkron, er greini- lega miklu meira smitandi fyrir börn en á móti kemur að það er mun væg- ara. Á Íslandi eru börn almennt við góða heilsu og sjáum við það á okkar tölfræði að þau ráða vel við þessa veiru. Við verðum að treysta upplýs- ingum okkar varðandi hversu lítil veik- indin eru hjá börnum. Það er ekki boðlegt að benda á upplýsingar frá löndum eins og Banda- ríkjunum hvað veikindi varðar. Það er augljóst að það er enginn ávinn- ingur af bólusetningum barna, hvað þá með úr- eltu efni sem virkar ekki gegn ómíkron. Finnar, Svíar og Englendingar mæla t.d. ekki með því að bólusetja hraust börn eða hreinlega bjóða ekki upp á það. Einnig er vert að benda á að auk þeirra þúsunda íslenskra barna sem vitað er að hafa smitast af Sars-CoV-2 og unnið á veirunni má reikna með að annar eins hópur hafi smitast af henni án þess að vita af því vegna vægra ein- kenna, ekki síst nú á síðustu vikum eft- ir að ómíkron tók að geisa. Eftirfar- andi skilaboð fengu foreldrar í bréfi frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæð- isins vegna seinni sprautu bólusetn- ingar barna sem er fyrirhuguð í byrj- un febrúar: „Athugið að ef barn hefur fengið Covid-19 þá þarf að bíða að minnsta kosti í þrjá mánuði með bólu- setningu“ (leturbreyting mín). En hyggst heilsugæslan bjóða upp á mót- efnamælingu til að ganga úr skugga um að barn hafi ekki óafvitandi þegar smitast af veirunni? Nú er loks verið að vinda ofan af sóttvarnaaðgerðum og þá ekki síst hvað börn varðar. Í mínum huga er það óviðunandi valdníðsla að börn séu sett í sóttkví vegna tengsla við ein- hvern sem mælist með þessa veiru og er jafnvel einkennalaus. Það gengur ekki upp að nota eina tilskipun sem á að gilda fyrir alla óháð mismunandi að- stæðum. Það á að vera á hendi for- eldra með ráðgjöf frá heimilislækni hversu lengi börn eru heima eftir veik- indi. Þar sem árangur af sóttvarna- aðgerðum sem beinast að börnum er augljóslega lítill er það borðleggjandi að afleiðingar aðgerða eru miklu alvar- legri en mögulegur ávinningur og hef- ur það átt við allan tímann. Í þessu samhengi má nefna versnandi geð- heilsu barna, lakari menntun, minni hreyfingu og lélegra ónæmiskerfi. Að lokum skora ég enn á ný á heil- brigðisráðherra að biðja börnin okkar afsökunar og hætta strax öllum sótt- vörnum sem snúa að þeim. Börn, sóttvarnaaðgerðir og fjöldafárssefjun Stefnir Skúlason » Þar sem árangur af sóttvarnaaðgerðum sem beinast að börnum er augljóslega lítill er það borðleggjandi að afleiðingar aðgerða eru miklu alvarlegri en mögulegur ávinningur. Höfundur er verkfræðingur. stefnir@prim.is Eftir Stefni Skúlason Þarftu að láta gera við? FINNA.is Í því tómi sem mynd- aðist í Covid- faraldrinum hefur mér orðið tíðhugsað um stöðu Reykjavíkur- flugvallar, enda vann ég þar alla mína starfs- tíð. Reykjavíkur- flugvöllur er undir- staða alls innanlands-, sjúkra- og neyðarflugs. Reykjavík er miðstöð heilbrigðiskerfisins Verðmæti flugvallarins og mikil- vægi felst ekki síst í nálægð hans við borgina. Ótal nefndir hafa verið sett- ar á fót í áranna rás og fjölmargt kunnáttufólk og sérfræðingar til- kvaddir að finna nýjum flugvelli stað til þess að leysa af hólmi núverandi flugvöll. Sá staður hefur ekki fundist og mun aldrei finnast í ásættanlegri fjarlægð frá borginni. Keflavíkur- flugvöllur er þá eini staðurinn sem í boði er. Tæpast getur það talist ásættanlegur kostur og það er kom- inn tími til þess, að menn viðurkenni þá staðreynd. Reykjavíkurflugvöllur er maka- laust vel í sveit settur og hér skal nefna helstu kostina. Hann er búinn tveimur flugbrautum sem þjóna vel ríkjandi vindáttum. Hann var end- urnýjaður fyrir allmörgum árum, yf- irborð og undirbygging brautanna voru endurnýjuð í samræmi við nú- tímakröfur flugvalla og getur hann því þjónað öllu því flugi sem honum er ætlað og höfuðborgarsvæðið þarfnast. Auk þess getur hann verið öruggur varaflugvöllur Keflavíkur fyrir flestallar gerðir farþegavéla sem hann nota og þar með sparað flugrekendum mjög mikinn til- kostnað og aukið öryggi flug- umferðar um svæðið. Aðflug vall- arins er tiltölulega hindrunarlítið, ókyrrð í lofti með minnsta móti, vegna fjarlægðar frá fjöllum. Skyggni og skýjahæð finnst ekki betra á öllu svæðinu. Reykjavíkurflugvöllur er og verð- ur besti og eini kosturinn fyrir mið- stöð innanlandsflugsins, tengiliður landsbyggðarinnar og höfuðborgar- svæðisins. Nú hafa staðið yfir og áætlaðar eru mjög fjárfrekar framkvæmdir við Landspítalann við Hringbraut. Ef að líkum lætur verður hann lands- ins fullkomnasta sjúkrahús. Reykja- vík er og verður miðstöð allrar bráðaþjónustu fyrir allt landið og mun því vægi flugvallarins aukast í framtíðinni. Undirritaður starfaði á árum áður við rekstur sjúkraflugs. Á því tíma- bili voru fluttir um þrjú þúsund sjúk- lingar í sjúkraflugi frá landsbyggð- inni til Reykjavíkur. Mér er minnis- stætt þegar beiðnir bárust um sjúkraflug, þá fylgdu oft áherslur um skjót viðbrögð og að engan tíma mætti missa. Nálægð vallarins við sjúkrahús borgarinnar skipti því sannarlega sköpum um það, hversu fljótt tókst að koma sjúkum og slös- uðum undir læknishendur. Í þessu samhengi vil ég láta í ljós þá skoðun mína, að þyrlur henta ekki til almenns sjúkraflugs, vegna þess m.a. að þær eru of hægfara. Þyrlur af þeirri stærð, þar sem unnt er að hlynna að sjúklingum með nauðsyn- legum hætti um borð, eru dýrar og fjárfrek og þung tæki í rekstri. Afar öflugar flugvélar henta því betur, eins og t.d. þær sem flugfélagið Mý- flug rekur og geta einnig annað flugi til annarra landa þegar þörf krefur, þar með eru taldir líffæraflutningar. Landspítalinn og Reykjavíkur- flugvöllur eru saman í aðalhlutverki og getur hvorugur án hins verið. Það er því umhugsunarvert hversu lengi ríki og Alþingi hafa talað lágum rómi í umræðu um hið mikla hagsmunamál þjóð- arinnar, sem er staða Reykjavíkurflugvallar í nútíð og framtíð. Velt hefur verið á undan sér að taka með afgerandi hætti þá einu réttu ákvörðun sem í boði er, ákvörðun sem nýtur stuðnings þjóðarinnar, en hún er sú að flugvöll- urinn skuli vera áfram þar sem hann er. Meirihluti borgarstjórnar hefur nýtt sér þessa töf til framgangs yfir- lýstrar stefnu sinnar að völlurinn skuli verða burtrækur úr borginni. Til þess er beitt ýmsum aðferðum, þar á meðal kunnuglegum þreng- ingum. Allan þennan tíma hefur völl- urinn verið sem í gíslingu. Öll að- staða fyrir rekstraraðila hefur goldið þessa, engin leyfi fengist til að reisa varanlegar þjónustubyggingar, ein- um skúrnum bætt við annan, stöð- ugar skúraleiðingar og allt hið dapurlegasta. Þrátt fyrir að ekki liggi fyrir nein ákvörðun um úthýs- ingu flugvallarins, hefur meirihlut- anum tekist með tilstuðlan borgar- skipulags að reisa fjölda bygginga innan flugvallarsvæðisins og meira stendur til. Tími er kominn til þess að lands- byggðin rísi upp gegn þessari óheillaþróun. Landsmenn skulu vara sig á hversu lítinn tíma þarf til að draga tennurnar úr ágætum kostum vallarins með auknum byggingar- hraða í kjölfar ruðningsáhrifa fjár- magns. Þess vegna er afar brýn þörf að flýta ákvörðuninni, áður en tekst að vinna vellinum meira ógagn. Snúa sér frekar að uppbyggingu vallarins og snyrta umhverfi hans. Þannig verður hann stolt höfuðborgarinnar Reykjavíkur. Það er ekki mikil reisn yfir því, þegar stjórnmálamenn reyna að slá ryki í augu kjósenda með frösum eins og það að segjast styðja veru flugvallarins, þar til hon- um verður fundinn annar staður, sem reyndar er ekki í boði. Þetta er ekki trúverðug pólitík. Ekki verður hjá því komist að nefna þá stöðu sem uppi verður ef öllu flugi verður vísað til Keflavíkur. Það er ljóst að mjög mörg vandamál verða þá uppi sem snerta farþega og ekki síður flugrekendur. Alla aðstöðu til innanlandsflugs yrði að byggja upp frá grunni, svo sem flugstöð, þjónustubyggingar og sjálfsagt flug- skýli fyrir viðhald og hýsingu flug- véla. Ekki er að efa að mjög aukinn rekstrarkostnaður mun hækka far- gjöld verulega. Keflavíkurflugvöllur getur aldrei orðið miðstöð innanlandsflugs á land- inu, eins og áður sagði og þegar til alls kemur, er ekki ólíklegt að allt innanlandsflug leggist af. Eins og áður kom fram hér, þá blasir við annar og ekki lítill tilbúinn vandi, sá sem snýr að sjúkra- og neyðarflugi í tengslum við Landspít- alann. Hvernig hann verður leystur er vandséð og í raun ótrúlegt að hann skuli búinn til. Flutningur sjúklinga á spítala í Reykjavík ef um bráða- tilfelli er að ræða verður þá tæpast leystur öðruvísi en með þyrlum. Ég ætla mér ekki út á þá hálu braut að blanda mér í þá umræðu. Ég hvet ríkisstjórn og Alþingi til að hraða ákvörðun um þessi mál. Eftir Svein Björnsson » Tími er kominn til þess að lands- byggðin rísi upp gegn þessari óheillaþróun. Sveinn Björnsson Höfundur er fyrrverandi eigandi Flugþjónustunnar ehf. Reykjavíkur- flugvöllur – hugleiðingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.