Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 04.02.2022, Page 22

Morgunblaðið - 04.02.2022, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2022 Smáauglýsingar Bækur Bækur Bílskúrssala Opið laugardag og sunnudag kl. 10-16 Dvergholti 11, Hafnarfirði sími 898 9475 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Lok á potta Eigum til lok á flest alla potta á lager. Td. stærðir 200x200, 210x210, 220x220, 235x235, kringlótt lok og átthyrnt lok. HEITIRPOTTAR.IS Sími 777 2000 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Zumba Gold 60+ kl. 10.30. Kraftur í KR kl. 10.30, rútan fer frá Vesturgötu 7 kl. 10.10, Grandavegi 47 kl. 10.15 og Aflagranda 40 kl. 10.20. Bingó kl. 13.30, spjaldið kostar 250 kr. Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari upplýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir. Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Sími 411 2600. Boðinn Pílukast kl. 10. Línudans fyrir byrjendur kl. 14.15 og fyrir lengra komna kl. 15. Sundlaugin er opin kl. 13.30-16. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Morgunleikfimi með Halldóru á RÚV kl. 9.45-10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Opin Listasmiðja kl. 13-15.45. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Smiðjan opin kl. 13-16. Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa. Kl. 9-11.30 postulíns- málun. Kl. 9-11 botsíaæfing. Kl. 13-15.30 tréskurður. Kl. 14-15 sögur og fræði. Kl. 20 félagsvist. Gullsmári 13 Opin handavinnustofa kl. 9-12. Qi-gong heilsueflandi æfingar kl. 10. Ljósmyndaklúbbur kl. 13. Bingó kl. 13. Korpúlfar Pílukast með Eggerti og félögum kl. 9.30. Morgunleikfimi kl. 9.45. Gönguhópur Korpúlfa kl. 10, gengið frá Borgum og inni í Egilshöll. Brids Korpúlfa hefst á ný í dag kl. 12.30 í Borgum og hann- yrðahópur kl. 12.30 í Borgum.Tréútskurður á Korpúlfsstöðum í umsjón Davíðs kl. 13. Grímuskylda á viðburðum og sóttvarnir í heiðri hafðar. Allir hjartanlega velkomnir. Seltjarnarnes Kaffikrókur alla morgna kl. 9-11.30. Syngjum saman við undirleik Bjarma Hreinssonar í salnum á Skólabraut kl. 13. Kaffi- sopi á eftir. Allir velkomnir. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Ath. Grímuskylda er á uppboðum Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Vallarás 2, Reykjavík, fnr. 205-3357 , þingl. eig. Ragnar Eyþórsson, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg, Vallarás 2, húsfélag, Arion banki hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 8. febrúar nk. kl. 10:00. Vogatunga 20, Mosfellsbær, fnr. 233-1465 , þingl. eig. Heiða Steingrímsdóttir, gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 8. febrúar nk. kl. 11:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 3. febrúar 2022 Nauðungarsala alltaf allstaðar mbl.is - $*& $!,')"#+(%") ✝ Otto Tulinius vélvirkja- meistari fæddist á Akureyri 18. mars 1939. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Hlíð 15. jan- úar 2022. For- eldrar hans voru Carl Daníel Tul- inius, f. 12. mars 1905, d. 25. nóv- ember 1968, og Halla Tulinius, f. 17. október 1914, d. 21. september 1999. Otto átti tvo bræður. Þeir eru Hörður Tulinius, f. 12. apríl 1936, d. 21. ágúst 1989 og Guðmundur Þórarinn Tulinius, f. 19. ágúst 1943. Eftirlifandi eiginkona Ot- tos er Agnes Tulinius Svavarsdóttir, f. 30. október 1941. Foreldrar hennar voru Svavar Helgason, f. 26. des- ember 1912, d. 24. apríl 1978 og Helga Ingimarsdóttir, f. 25. nóvember 1914, d. 23. ágúst 2008. Börn Ottos og Agnesar eru: 1) Svavar Tul- inius, f. 4. júní 1960, eig- inkona hans Þórhalla Hall- dórsdóttir, f. 10. mars 1960. 2) Halla Kristín Tulinius, f. 26. nóvember 1962, eig- inmaður hennar Guðjón 2006 þegar fyrirtækið var selt. Eftir það var hann með þjónustu fyrir kælitæki, stað- sett í bílskúrnum í Birkilundi þar til hann hætti alveg að vinna árið 2014 þá 75 ára gamall. Otto ólst upp í Hafn- arstræti 18 (Tuliniusarhús- inu). Þar byrjuðu þau Agnes búskap sinn en þau giftust 31. desember 1959. Fjölskyldan flutti 1965 í Vanabyggð 10a og 1987 í Birkilund 17. 2015 fluttu Agnes og Otto í Bre- katún 2. 1993 byggðu þau bú- stað í Lundsskógi í Fnjóska- dal. Otto var virkur í skáta- hreyfingunni sem barn og fullorðinn. Hann stundaði skíði, frjálsar íþróttir og bad- minton. Golf var aðalíþrótt hans seinni árin, sem hann spilaði bæði á Akureyri og Lundsvelli. Otto hafði mikinn áhuga á veiði og stundaði bæði stang- og skotveiði. Otto var félagi í Kiwanis í nokkur ár. Otto og Agnes ferðuðust mikið bæði innan lands og ut- an. Útför Ottos fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 4. febrúar 2022, kl. 13. Streymt verður á Jarðarfarir í Ak- ureyrarkirkju – beinar út- sendingar. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlát Ingvi Geirmunds- son, f. 22. sept- ember 1959. 3) Þórey Tulinius, f. 23. desember 1964, eiginmaður hennar Guð- mundur Að- alsteinn Sigurðs- son, f. 6. desember 1963. 4) Otto Karl Tulinius, f. 21. mars 1972, eig- inkona hans Sigrún Finns- dóttir, f. 23. ágúst 1967. 5) Hlynur Tulinius, f. 12. maí 1975, eiginkona hans Rósa Hrefna Gísladóttir, f. 17. júní 1978. Afabörnin eru 17 og langafabörnin 18. Otto gekk í Barnaskóla Ak- ureyrar og Gagnfræðaskólann þaðan sem hann tók gagn- fræðapróf. Otto sótti vélstjóranámskeið 1956-1957. Hann fór á sjó en fann að það átti betur við hann að vinna í landi. Hann lærði vélvirkjun í Iðnskólanum 1958-1959 og tók starfsnámið í Vélsmiðjunni Odda. Þar vann hann til ársins 1982 en þá stofnaði hann ásamt tveimur félögum fyrir- tækið Kæliverk sem sérhæfði sig í kæli- og frystitækjum. Þar starfaði hann til ársins Í dag fylgjum við pabba síð- asta spölinn. Óteljandi góðar minningar koma upp í hugann þegar horft er til baka. Pabbi var traustur og áreiðanlegur og gerði allt fyrir fólkið sitt. Hann var mikill fjölskyldumaður og hafa hann og mamma alla tíð lagt mikið upp úr samveru- stundum fjölskyldunnar. Það er í raun frekar skrýtið að hugsa og tala um pabba án þess að mamma komi einnig upp í hug- ann enda voru þau eitt allt frá því ég man fyrst eftir mér, deildu áhugamálum, fóru með okkur börnin í ótal ferðalög og veiðiferðir að ógleymdum öllum dýrmætu stundunum sem við áttum saman í bústaðnum. Þá hafa barnabörnin og barna- barnabörnin alltaf átt greiðan aðgang í afa- og ömmufaðm. Elsku pabbi minn, þú hefur svo sannarlega markað líf mitt og átt stóran þátt í því hver ég er í dag. Öll góðu gildin sem þú lagðir inn hjá mér strax í barn- æsku hafa fylgt mér og fest í sessi. Svo mikið að drengirnir mínir hafa þau einnig í sínu far- teski. Það er svo fallegt hversu stoltir þeir verða þegar nefnt er hversu líkir þeir eru þér að svo mörgu leyti. Við deildum saman áhuga- málum, veiddum fugl og fisk, spiluðum golf og fylgdumst með enska boltanum og formúl- unni þótt ég hafi nú stundum fengið á tilfinninguna að þú hafir meðvitað valið þér lið sem voru erkifjendur þeirra sem ég hélt með. En það gerði um- ræðuna bara fjöruga og skemmtilega. Fjölskylduútilegurnar og veiðiferðirnar í Selá í Vopna- firði þegar ég var strákur eru mér ofarlega í huga. Farið var fótgangandi upp og niður með ánni þar sem ekki var hægt að fara um akandi nema rétt neðst á veiðisvæðinu og aflinn því borinn langa leið. Í minning- unni arkaðir þú „fram á dal“ enda mikilvægt að nýta daginn sem best. Finnst mér eins og ég hafi tekið þrjú skref fyrir hvert skref sem þú tókst. Það var því þreyttur drengur sem lagðist á koddann að kvöldi en engu að síður jafn spenntur fyrir næsta degi. Óbilandi áhuga minn á skotveiði þakka ég þér, pabbi minn, og man ég eins og gerst hafi í gær þegar ég sótti fyrstu rjúpuna fyrir þig. Golfið var þitt áhugamál í seinni tíð og er mér minnis- stætt hversu mikla ánægju það gaf þér þegar mamma fór að spila með þér. Við tókum ófáa hringina saman og naut ég þess heiðurs að spila með þér síð- asta hringinn áður en veikindin tóku yfir. Það kom mér á óvart hversu lengi þú hélst færninni í golfinu þrátt fyrir að hún hefði tapast á svo mörgum öðrum sviðum. Þegar þú varst kominn á dvalarheimilið Hlíð áttum við áfram margar ánægjulegar samverustundir. Minningin um allt sem við brösuðum saman er mér dýrmæt og þú naust þess að fá að taka þátt og að- stoða við hin ýmsu verk á með- an heilsan leyfði. Elsku pabbi, nú hefurðu fengið hvíldina. Minningin um yndislegan föður, afa og langafa mun lifa í hjörtum okkar allra. Við pössum mömmu. Þinn sonur, Otto Karl. Í dag kveðjum við í hinsta sinn elskulegan tengdaföður minn, Otto Tulinius. Ég man eins og gerst hafi í gær þegar ég hitti ykkur Agnesi í fyrsta sinni fyrir 37 árum í Sörlaskjól- inu í Reykjavík. Þar leigði Halla dóttir ykkar íbúð en við vorum nýbyrjuð að draga okkur saman. Ég var svolítið stress- aður fyrir þessum fyrsta fundi en sú tilfinning hvarf á auga- bragði vegna elskulegs viðmóts ykkar. Það var upphaf vináttu okkar sem ekki hefur borið skugga á síðan. Alla tíð var dásamlegt að fylgjast með því hve samstiga og náin þið Agnes voruð. Þið voruð alltaf dugleg að heimsækja okkur, á höfuð- borgarsvæðið og til Vestmanna- eyja og við notuðum hvert tækifæri til að koma norður til ykkar. Síðan komuð þið marg- oft til okkar í Svíþjóð þau 11 ár sem við bjuggum þar. Þið voruð að sjálfsögðu strax mætt þegar við komum heim með börnin okkar frá Kólumbíu. Það var alltaf mikil tilhlökkun að fá ykkur í heimsókn. Þegar ákveð- ið var síðan að flytja heim árið 2000 kom ekki annað til greina en að flytja til Akureyrar þar sem afi og amma bjuggu. Þar bættist fjórða barn okkar í hóp- inn og hefur notið nærveru þinnar allt sitt líf. Þegar heim kom vorum við loksins orðnir nágrannar og vináttan dýpkaði. Alltaf var hægt að stóla á þig varðandi ráð og hjálp með framkvæmdir og viðgerðir, aldrei kom ég að tómum kofunum hjá þér varð- andi slíkt. Ég minnist allra ánægjulegu stundanna í Vana- byggð, Birkilundi og Brekatúni hér á Akureyri. Ekki síður í sumarbústaðnum í Lundsskógi þar sem þið áttuð ykkar ynd- isreit. Ógleymanlegar eru sam- verustundirnar jafnt að sumri sem vetri, sumarfríin, allar verslunarmannahelgarnar og páskarnir. Þú byggðir og hann- aðir þar allt með þarfir Agnesar, barna ykkar, afa- og langafabarna í huga. Í bústaðn- um varst þú í essinu þínu, glað- ur og alltaf í einhverjum fram- kvæmdum. Lékst við afabörnin, reistir barnahús, rólur og sand- kassa, lagðir fótboltavöll, settir upp heitan pott og fleira. Allir aldrar fengu eitthvað fyrir sig og nú njóta langafabörnin þessa alls. Alltaf var nóg að borða hjá ömmu en við grillið og djúp- steikingarpottinn, þar sem hin- ar frægu afafrönskur voru steiktar, réðir þú ríkjum. Afa- brauðið var svo ómissandi í morgunmat. Snyrtimennska, vandvirkni og reglusemi voru þínar ær og kýr. Hver hlutur átti sinn stað, öll verk unnin með þetta í huga. Ég hef reynt að tileinka mér þessa mann- kosti þína gegnum árin. Gaman var að ferðast með ykkur Agnesi bæði innanlands og ut- an. Þú varst alltaf hraustur og vel á þig kominn enda íþrótta- kappi á unga aldri. Það var því mjög erfitt að sjá þig hverfa smám saman inn í heilbilunina, þennan hræðilega sjúkdóm sem rænir fólki frá fjölskyldu og vinum löngu áður en dauðinn knýr dyra. Það hefur verið erf- itt að fylgja Höllu og Agnesi í gegnum þetta langdregna sorg- arferli en nú hefur þú fengið hvíldina, kæri tengdafaðir. Ég bið allar góðar vættir að styrkja Agnesi tengdamóður og alla afkomendur ykkar í sorg sinni. Hvíldu í friði, elsku vinur. Þinn tengdasonur, Guðjón Ingvi. Otto Tulinius - Fleiri minningargreinar um Otto Tulinius bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. ✝ Guðný Björns- dóttir fæddist í Kálfafellskoti í Fljótshverfi Vest- ur-Skaftafellssýslu 30. nóvember 1938. Hún lést á Dvalarheimilinu Sæborg Skaga- strönd 20. janúar 2022. Foreldrar hennar voru Björn Stefánsson, f. 30.9. 1896, d. 7.7. 1988, og Val- gerður Pálsdóttir, f. 7.10. 1909, d. 20.2. 2005. Systkini Guðnýjar eru Páll, f. 1932, d. 2020. Stefán, f. 1934, Sveinn f. 1936, d. 2004. Fyrir átti Björk Evu Dögg, f. 1985, sambýlismaður Jóhann Gunnlaugsson. Börn þeirra eru Ísak Hrafn og Björk Diljá. 2) Birna, f. 1967, maki Slavko Viktor Velemir. Börn þeirra eru a) Helena Mara, f. 1991, sambýlismaður Elvar Geir Ágústsson, fyrir átti Hel- ena Láreyju Möru. b) Stefán, f. 1994, sambýliskona Heiðrún Huld Finnsdóttir. Fyrir átti Birna Sveinþór Ara, f. 1982, maki Sigþúður Jóna Harð- ardóttir. Börn þeirra eru Ísi- dór Sölvi og Ísafold Sól. 3) Stefán, f. 1972, maki Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir. Börn a) Daði Snær, f. 2002, sambýlis- kona Ragnheiður Sunna. b) Stefanía Hrund, f. 2006. c) Sædís Hrund, f. 2012. Útför Guðnýjar fer fram frá Hólaneskirkju á Skaga- strönd í dag, 4. febrúar 2022, kl. 14. Guðjón, f. 1942, Snorri, f. 1944, og Málfríður, f. 1948. Eiginmaður Guðnýjar var Sveinn Sigurbjörn Garðarsson, f. 7.10. 1934, d. 17.2. 2019. Börn Guð- nýjar og Sveins eru: 1) Sigríður Björk, f. 1965, maki Ingvar Þór Jónsson. Börn þeirra eru a) Róbert Björn, f. 1997, sam- býliskona Drífa Katrín Ásthild- ardóttir. b) Valgerður Guðný, f. 2000, sambýlismaður Guð- mundur Andri Tryggvason. Elsku amma mín, mikið sem ég á eftir að sakna þín. Þú varst alltaf svo hlý og góð og mér leið alltaf svo vel í kring- um þig, þú hafðir svo góða nærveru og maður fann alltaf hvað þér þótti vænt um mann. Ég er svo þakklát fyrir það að hafa átt ömmu eins og þig. Það var alltaf svo fínt hjá þér og alltaf mikið af fallegum blómum sem þú hafðir svo gaman af, ég mun vera dugleg að hafa fín blóm heima hjá mér eins og þú og þá mun ég alltaf hugsa til þín amma mín. Þú varst alltaf jafn glöð að sjá mann og þú sýndir öllu svo mikinn áhuga sem maður var að gera, mér þótti svo vænt um það. Ég get ekki lýst því hvað það er sárt að kveðja þig og hversu mikið ég á eftir að sakna þín en ég er óendanlega þakklát fyrir allar góðu stund- irnar sem við áttum saman. Takk amma fyrir alla um- hyggjuna sem þú gafst mér og öllum í kringum þig, ég mun aldrei gleyma því. Valgerður Guðný Ingvarsdóttir. Guðný Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.