Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2022 _ Björgvin Páll Gústavsson, lands- liðsmarkvörður í handknattleik, skýrði frá því á samfélagsmiðlum í gær að skorað hafi verið á sig að gefa kost á sér sem borgarstjóraefni í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Kveðst hann hafa fengið óvænt símtal frá þjóðþekktum einstaklingi kvöldið sem hann kom heim frá Evrópumótinu í Búdapest. „[E]r ég efni í næsta borgarstjóra í Reykjavík? Ég hreinlega veit það ekki. Ef ég tæki slaginn þá væri það einna helst til þess að taka þátt í byltingu er kemur að málefnum barna. Það að merkja X við B, fyrir Björgvin og börn- in er eitthvað sem hljómar allavega vel,“ skrifaði hann meðal annars. _ Franski knattspyrnumaðurinn Paul Pogba snýr aftur í leikmannahóp Man. Utd þegar liðið tekur á móti Middles- brough í 4. umferð ensku bikarkeppn- innar í kvöld eftir að hafa verið frá í þrjá mánuði vegna meiðsla. „Paul verður hluti af hópnum. Hann gæti jafnvel verið í byrjunarliðinu,“ sagði Ralf Rangnick, stjóri United, á blaðamannafundi í gær. _ Forráðamenn knattspyrnuliðs Vestra reyndu að fá Eið Smára Guð- johnsen, Ólaf H. Kristjánsson eða Heimi Hallgrímsson til að taka við lið- inu eftir að Jón Þór Hauksson ákvað að hætta og taka boði Skagamanna um að þjálfa þá. Samúel Samúelsson, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Vestra, staðfesti þetta við 433.is í gær. „Ég vissi fyrir fram að þetta væri lang- skot en ég vildi láta á það reyna. Metn- aður okkar er mikill,“ sagði Samúel við 433.is. Þjálfararnir þrír eru allir án starfs um þessar mundir en höfnuðu allir boði Vestra. _ Jóhann Berg Guðmundsson lands- liðsmaður í knattspyrnu verður ekki með Burnley gegn Watford í botnslag liðanna í ensku úrvalsdeildinni sem fram fer annað kvöld. Sean Dyche knatt- spyrnustjóri Burnley skýrði frá því í gær að Jóhann hefði fengið botn- langabólgu fyrr í vikunni og hann þurfti að fara í aðgerð á sjúkra- húsi af þeim sökum. Eitt ogannað KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: TM-hellirinn: ÍR – Þór Þ ..................... 18.15 Ljónagryfjan: Njarðvík – KR ............. 20.15 1. deild karla: MVA-höllin: Höttur – Hrunamenn..... 19.15 Akranes: ÍA – Haukar.......................... 19.15 Ice Lagoon-höll: Sindri – Fjölnir ........ 19.15 1. deild kvenna: Kennaraháskóli: Ármann – ÍR............ 19.15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Grill 66-deildin: Ásvellir: Haukar U – Hörður ................... 20 Varmá: Afturelding U – Þór..................... 20 Víkin: Berserkir – Vængir Júpíters ........ 20 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Hertz-höllin: Grótta – ÍR..................... 19.30 Kaplakriki: FH – Valur U.................... 19.30 REYKJAVÍKURLEIKAR Listskautar í Skautahöllinni í Laugardal kl. 15 til 20. Pílukast í Bullseye kl. 19.45 til 21. Í KVÖLD! Egyptaland tryggði sér í gærkvöldi sæti í úrslitaleik Afríkumótsins í knattspyrnu með því að slá heima- menn í Kamerún út eftir víta- spyrnukeppni í undanúrslitunum. Kamerúnar klúðruðu þremur af fjórum vítaspyrnum sínum og þar af varði Grabaski í marki Egypta tvær þeirra. Egyptar skoruðu hins vegar úr öllum þremur spyrnum sínum og unnu 3:1. Egyptaland og Senegal mætast í úrslitaleik móts- ins á sunnudag þar sem Liverpool- mennirnir Sadio Mané og Mohamed Salah munu etja kappi. Salah og Mané báðir í úrslit AFP Vítabani Grabaski var hetja Egypta þegar hann varði tvær vítaspyrnur. Karlalið Breiðabliks í knattspyrnu mætti B-liði enska úrvalsdeildar- félagsins Brentford á Atlantic- æfingamótinu í gærkvöldi. Damir Muminovic kom Blikum á bragðið eftir hálftíma leik og Krist- inn Steindórsson tvöfaldaði foryst- una á 65. mínútu. Tristan Crama minnkaði muninn fyrir Brentford B á 77. mínútu en þar við sat og góður 2:1-sigur Breiðabliks staðreynd. Næsti leikur Blika á mótinu er á sunnudaginn gegn Elíasi Rafni Ólafssyni og félögum í Midtjylland, sem tapaði 0:1 fyrir Zenit í gær. Blikar unnu B-lið Brentford Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason Sterkur Damir Muminovic skoraði annað marka Blika í gærkvöldi. ÓL 2022 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Skíðagöngumaðurinn Snorri Ein- arsson er líklegastur til afreka af ís- lensku keppendunum fimm á Vetrar- ólympíuleikunum 2022 sem verða settir í Peking í dag. Snorri, sem er 35 ára gamall, er eini keppandinn frá Íslandi sem náði svokölluðu A-lágmarki fyrir leikana í ár en hinir fjórir keppendurnir; þau Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir, Sturla Snær Snorrason, Kristrún Guðnadóttir og Isak Stianson Ped- ersen, náðu öll B-lágmörkum og fengu keppnisrétt í gegnum kvóta- sæti. Snorri er á leið á sína aðra Ólymp- íuleika og líklega þá síðustu á ferl- inum en hann er fæddur og uppalinn í Noregi. Hann á norska móður og ís- lenskan föður en hann æfði lengi vel með norska landsliðinu áður en hann ákvað að keppa fyrir Íslands hönd árið 2016. Hans sterkustu greinar eru langar göngur en Snorri keppir í 15 km göngu með hefðbundinni aðferð, 30 km skiptigöngu, 50 km göngu með frjálsri aðferð og í liðakeppni í sprettgöngu ásamt Isak Stianson á leikunum. Snorri hafnaði í 56. sæti í 15 km göngu með frjálsri aðferð á Vetrar- ólympíuleikunum 2018, og í sama sæti eða því 56. í 30 km skiptigöngu. Honum tókst ekki að ljúka keppni í sinni sterkustu grein, 50 km göngu með hefðbundinni aðferð. Snorri er sem stendur í 221. sæti heimslistans í lengri vegalengdum og í 505. sæti í sprettgöngu. Hann náði sínum besta árangri á ferlinum og jafnframt besta árangri sem Íslend- ingur hefur náð í skíðagöngu á HM 2019 í febrúar í Seefeld í Austurríki þegar hann hafnaði í 18. sæti í 50 km göngu. Þarf að hitta á góðan dag Skíðamaðurinn Sturla Snær Snorrason keppir í svigi og stórsvigi á leikunum en hann er einnig á leið á sína aðra Ólympíuleika líkt og Snorri. Sturla, sem er 27 ára gamall, hefur verið fremsti alpagreinamaður landsins undanfarinn áratug en hann byrjaði að æfa skíði þegar hann var fimm ára gamall. Hann náði sínum besta árangri á ferlinum á Asíubikarmóti í Yong- Pyong og Bears Town í febrúar 2020 þegar hann hafnaði í 15. sæti af 75 keppendum í svigi sem er jafnframt hans sterkasta grein. Sturla keppti einnig í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í Peyon- Chang árið 2018 þar sem hann náði ekki að ljúka keppni. Hann þurfti svo að hætta við keppni í svigi vegna meiðsla en Sturla er í 183. sæti heimslistans í svigi og til alls líklegur í greininni þegar hann hittir á góðan dag. Þá er hann í 1.470. sæti heims- listans í stórsvigi. Sterk í öllum alpagreinum Skíðakonan Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir er á leið á sínu fyrstu Ólympíuleika en hún hefur verið bú- sett í Åre í Svíþjóð undanfarin ár þar sem hún hefur æft og keppt. Hólmfríður, sem er 24 ára gömul, keppir í svigi, stórsvigi og risasvigi á leikunum, og hún er sterk í öllum greinum. Hún er í 322. sæti í risasvigi á heimslistanum, í 543. sæti í svigi og í 558. sæti í stórsvigi en hún náði sín- um besta árangri í stórsvigi á ferl- inum þegar hún hafnaði í 11. sæti í Klövsjö í Svíþjóð í desember 2018. Þá náði hún sínum besta árangri í svigi þegar hún hafnaði í 3. sæti á móti í Rogla í Slóveníu í mars 2021. Sínum besta árangri í risasvigi náði hún svo í Nakiska í Kanada þegar hún hafn- aði í 19. sæti í desember 2019. Reynslunni ríkari Líkt og áður hefur komið fram mun hinn norsk-íslenski Isak Stian- son Pedersen keppa í liðakeppni í sprettgöngu ásamt Snorra Einars- syni og þá mun hann einnig keppa í sprettgöngu á leikunum. Isak, sem er 24 ára gamall, er fæddur í Aalesund í Noregi en hann á íslenska móður og norskan föður. Isak er á leið á sína aðra Ólympíu- leika en hann tók einnig þátt á leik- unum í Suður-Kóreu árið 2018 þar sem hann hafnaði í 55. sæti í sprett- göngu og komst ekki áfram í úrslitin. Hann hefur verið einn fremsti sprettgöngumaður landsins undan- farin ár og náði sínum besta árangri á ferlinum á norska meistaramótinu í Konnerud við Drammen í Noregi í janúar 2020 þegar hann hafnði í 24. sæti. Hann er sem stendur í 406. sæti heimslistans í greininni. Kristrún Guðnadóttir er á leið á sína fyrstu Ólympíuleika en hún keppir í sprettgöngu kvenna. Kristrún, sem er 24 ára, náði sín- um besta árangri á ferlinum á heims- meistaramótinu í Seefeld í Aust- urríki í febrúar 2019 þegar hún hafnaði í 65. sæti í sprettgöngu. Hún er margfaldur Íslandsmeist- ari í sprettgöngu og er sem stendur í 376. sæti heimslistans í greininni. Kristrún verður einmitt fánaberi íslenska hópsins á setningarathöfn- inni í dag ásamt Sturlu Snæ en líkt og á Ólympíuleikunum í Tókýó í Jap- an í sumar verða fánaberar hvers lands tveir, ein kona og einn karl. Íslenski hópurinn mun að öllum líkindum ganga inn á leikana um miðbik athafnarinnar þar sem inn- gangan raðast eftir kínverska staf- rófinu. Þrír reynslunni ríkari eftir leikana í Suður-Kóreu - Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir og Kristrún Guðnadóttir taka þátt í fyrsta sinn Ljósmynd/SKÍ Alpagreinar Sturla Snær Snorrason. 6. feb.: Snorri Einarsson – 30 km ganga .................... 07.00 7. feb.: Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir – Stórsvig 02.15 8. feb.: Kristrún Guðnadóttir – Sprettganga............. 08.00 8. feb.: Isak Pedersen Stianson – Sprettganga ......... 08.00 9. feb.: Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir – Svig ....... 02.15 11. feb.: Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir – Risasvig 03.00 11. feb.: Snorri Einarsson – 15 km ganga .................... 07.00 13. feb.: Sturla Snær Snorrason – Stórsvig ................. 02.15 16. feb.: Sturla Snær Snorrason – Svig ........................ 02.15 16. feb.: Snorri og Isak – Sprettganga liðakeppni...... 09.00 19. feb.: Snorri Einarsson – 50 km ganga .................... 06.00 _ Íslenskar tímasetningar, tímamismunur er 8 tímar. Dagskrá Íslendinganna Ljósmynd/SKÍ Alpagreinar Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir. Ljósmynd/SKÍ Skíðaganga Snorri Einarsson. Ljósmynd/SKÍ Skíðaganga Kristrún Guðnadóttir. Ljósmynd/SKÍ Skíðaganga Isak Stianson Pedersen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.