Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 04.02.2022, Page 29

Morgunblaðið - 04.02.2022, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2022 Sýning ljósmyndarans Elíasar Arn- ars, Árstíðir birkisins, hefur verið opnuð í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Á sýningunni eru tólf innrammaðar ljósmyndir teknar af íslensku birki á ólíkum árstíðum. Sýningin er í tilkynningu sögð eins- konar „samþætting á landfræði- legum og heimspekilegum nálg- unum á trjátegund sem hefur spilað stórt hlutverk í menningu, sögu og umhverfi á Íslandi“. Elías Arnar er sjálfstætt starf- andi ljósmyndari, landvörður og landfræðinemi við Háskóla Íslands. Verk hans eru sögð sækja inn- blástur í landfræðileg fyrirbæri sem varpa ljósi á samspil manns og náttúru. Birki Hluti einnar myndar Elíasar Arnars á sýningunni í Skoti Ljósmyndasafnsins. Sýna myndir Elías- ar Arnars af birki Söngvaskáldið Svavar Knútur kemur í dag, föstudag, fram á Síðdegistónum í Hafnarborg ásamt hljómsveit og hefjast leikar kl. 16. Hljómsveitina skipa Ingibjörg Elsa Turchi á bassa, Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir á trommur og Andrés Þór á gítara. Í tilkynningu frá Hafnarborg segir að boðið verði upp á sannkallaða söngvaskálda- veislu en hljómsveitin mun leika mörg af helstu lögum Svavars sem hafa notið vinsælda. Aðgangur er ókeypis og grímuskylda. Síðdegistónar Svavars Knúts Svavar Knútur Eftir eins árs töf vegna heimsfarald- urs kórónuveirunnar verður næsti myndlistartvíæringur í Feneyjum, sá 59., opnaður almenningi 23. apríl næstkomandi. Feneyjatvíæring- urinn er viðamesta og fjölbreytileg- asta sýning sem sett er upp á sam- tímamyndlist í heiminum með reglulegum hætti. Hún stendur í meira en hálft ár og flykkjast mynd- listarunnendur alls staðar að til að skoða. Tvíæringurinn skiptist í tvo meginþætti. Annars vegar aðalsýn- inguna, sem hverju sinni lýtur stjórn sýningarstjóra sem leggur línur og velur listamenn, og er sú sýning á tveimur stöðum, í Arsenale, fyrrver- andi skipasmíðastöð og vopna- geymslum Feneyinga, og í ítalska skálanum í sýningagarðinum Giard- ini. Hins vegar eru svokallaðir þjóð- arskálar sem nú verða um 80 talsins. Í þeim eru settar upp sýningar á verkum myndlistarmanna sem eru fulltrúar landa sinna; flestir þjóðar- skálarnir eru í Giardini-garðinum og við Arsenale en einnig er fjölda þeirra að finna í leiguhúsnæði út um borgina. Á mörgum undanförnum tvíæringum hefur íslenski skálinn verið settur upp á ólíkum stöðum í borginni en að þessu sinni verður verk Sigurðar Guðjónssonar, full- trúa Íslands, í sýningarskála við Arsenale, sem tryggir sýningunni mikla aðsókn. Fimm þjóðir munu nú taka þátt í tvíæringnum í fyrsta skipti: Namibía, Nepal, Úganda, Óman og Kamerún. 180 í fyrsta sinn í Feneyjum Ítalski sýningarstjórinn Cecilia Alemani sem starfað hefur um árabil í New York stýrir aðalsýningu tvíæringsins að þessu sinni. Áherslur hennar við valið á sýn- inguna voru kynntar í vikunni og bera þess merki að valið átti sér stað í miðjum heimsfaraldri. Í samtali við hana í The New York Times kemur fram að vegna faraldursins hafi hún í stað þess að þeytast milli landa að hitta listamenn þurft að heimsækja vinnustofur um 400 listamanna á netfundum. Og hún segir það hafa verið áberandi að listamenn sem hún hafi rætt við séu að reyna að takast á við stór og krefjandi vandamál á þessum óvissutímum, eins og spurn- ingar um tilgang lífsins, ójafnrétti og ástand jarðar. Konur og listafólk sem skilgreinir sig kynsegin eru í miklum meiri- hluta þeirra 213 sem eiga verk á sýn- ingunni sem Alemani setur saman. Í tilkynningu segir hún það endur- spegla markvissa endurskoðun á þeirri sýn að karlmenn séu fyrir miðju í listasögunni og samtíma- menningu. Þá einkennir það val Alemani að mikill meirihluti sýn- enda hefur ekki verið áberandi á þekktustu myndlistarhátíðum eða kunnustu listasöfnum; meira en 180 listamannanna hafa ekki átt verk áð- ur á Feneyjatvíæringnum. Gestir á tvíæringnum munu því kynnast verkum fjölmargra listamnanna í fyrsta sinn. Alemani skiptir sýningu sinni upp í þrjá meginhluta. Einn hverfist um það hvernig líkamar geta tekið breytingum, annar um samband ein- staklinga og tækni og sá þriðji um samband manna og jarðar. Inn í þessa þrjá meginhluta fellir sýning- arstjórinn síðan fimm minni, sögu- legar sýningar sem hún kallar „tímahylki“ en í þeim verða verk eft- ir um 90 listamenn sem er ætlað að sýna áhrif á hugmyndir samtíma- listamannanna. Í „tímahylkjum“ má einkum sjá verk eftir konur, þar á meðal eftir Leonor Fini, Dorotheu Tanning og Hannah Höch. Konur og kynsegin sýnendur verða áberandi í Feneyjum - Ástand heimsins og áhyggjur sýnenda munu setja svip á Feneyjatvíæringinn Morgunblaðið/Einar Falur Í Arsenale Frá fjölbreytilegri aðal- sýningu síðasta Feneyjatvíærings. Sigurður Guðjónsson myndlistar- maður verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum að þessu sinni. Íslenski skálinn verður við hjarta sýningarsvæðisins, við Arsenale-sýningarhöllina, og setur Sigurður þar upp viðamikinn myndbandsskúlptúr sem hann kallar Perpetual MOTION. Í til- kynningu frá Kynningarmiðstöð ís- lenskrar myndlistar segir að verk- ið snúist um ljóðræna könnun á efniskennd við mörk skynjunar. Áhrifamiklar innsetningar Sig- urðar, sem byggjast iðulega á myndvörpun og hljóði, hafa vakið mikla athygli og hlaut hann Ís- lensku myndlistarverðlaunin árið 2018. Bók og verk um feril Sig- urðar kemur út við opnun íslenska skálans í apríl, í samstarfi Listasafns Reykjavíkur og Distanz Publ- ishing. Sýningar- stjóri íslenska skálans er Mó- nica Bello og hefur hún unn- ið náið með Sigurði að þróun verk- efnisins. Bello hefur frá árinu 2015 gegnt stöðu sýningarstjóra og list- ræns stjórnanda hjá CERN, evr- ópsku kjarnorkurannsóknarstofn- uninni í Genf. Í störfum sínum sem sýningarstjóri hefur Mónica Bello beint sjónum sínum að tækni- og vísindamenningu nútímans. Margbrotin ljóðræn könnun SIGURÐUR GUÐJÓNSSON SÝNIR Í ÍSLENSKA SKÁLANUM Sigurður Guðjónsson/BERG Contemporary Vörpun Stilla úr Feneyjaverki Sigurðar Guðjónssonar, Perpetual Motion. Sigurður Guðjónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.