Morgunblaðið - 08.02.2022, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ríkiskaup hafa fyrir hönd forsætis-
ráðuneytisins óskað eftir tilboðum í
að nýta æðardún við Hrafnseyri við
Arnarfjörð. Ekki er vitað með vissu
hversu mörg hreiður eru á svæðinu
en áætlað er að hægt sé að tína allt
að 3-8 kíló af dúni á Hrafnseyri á ári
hverju. Áætla má að fyrir hvert kíló
fáist um 200 þúsund krónur.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ríkiskaupum hafa fleiri en einn aðili
lýst áhuga á að nýta þessi gæði. Því
hafi verið ákveðið að bjóða nýting-
una út þó svo að verkefnið sé ekki
útboðsskylt samkvæmt lögum.
Samningur til fimm ára
Í auglýsingu um útboðið segir að
til að gæta jafnræðis gagnvart
áhugasömum aðilum hafi verið
ákveðið að bjóða út nýtingu dúnsins
á gagnsæjan og opinberan hátt þar
sem stuðst verði við almennar meg-
inreglur opinberra innkaupa og
hlutlæg viðmið við val á rekstrar-
aðila. Tilboð verða opnuð á hádegi
24. febrúar.
Hrafnseyri við Arnarfjörð er
ríkisjörð í umsjón forsætisráðuneyt-
isins. Æðarvarpið liggur við ós
árinnar sem liggur á milli Hrafns-
eyrar og Auðkúlu. Girt er meðfram
veginum og niður í fjöru. Varpið er
að hluta á aflögðum flugvelli sem
liggur með fjöruborðinu. Nýr
rekstraraðili þarf að gera varp-
svæðið tilbúið um miðjan apríl.
Hann þarf m.a. að verja það fyrir
rándýrum meðan á varptímanum
stendur og þar til fuglinn hefur yfir-
gefið hreiðrið, að því er fram kemur í
auglýsingunni.
Rekstraraðili hirðir arð af dún-
tekjunni gegn fastri þóknun til land-
eiganda og er stefnt að því að gera
samning til fimm ára, með mögu-
leika á þriggja ára framlengingu,
sem verði undirritaður fyrir 1. apríl
2022.
Bjóða út nokkur kíló af æðardúni
- Fleiri en einn lýstu áhuga á að nýta
varp á Hrafnseyri - Á gömlum flugvelli
Morgunblaðið/Bogi Þór Arason
Hlunnindi Æðarkolla með unga, en dúnninn í hreiðrinu er verðmætur.
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Undirbúningur á rannsókn á ómann-
úðlegum starfsháttum vöggustofa hef-
ur verið í kyrrstöðu frá því í október á
síðasta ári og hafa vilyrði borgarstjóra
ekki gengið eftir. Árni H. Kristjánsson,
sagnfræðingur og einn þeirra sem hafa
barist fyrir því að rannsókn verði gerð
á þessu máli, telur svör borgarstjórnar
um tafirnar ekki standast og segir
hann afsakanirnar fyrirslátt.
Sjö mánuðir eru liðnir frá því að
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri til-
kynnti að Reykjavíkurborg myndi
ráðast í rannsókn á ómannúðlegum
starfsháttum vöggustofa sem voru
starfræktar í borginni á árunum 1949
til 1973, en sú ákvörðun var tekin í
kjölfar þess að fimm menn sem voru
vistaðir sem börn á vöggustofunum
vöktu athygli á ómannúðlegum
starfsháttum sem þar voru viðhafðir.
Í lok september fóru fimmmenn-
ingarnir á fund með Þorsteini Gunn-
arssyni borgarritara þar sem fram
kom að rannsóknarnefnd yrði skipuð
ekki síðar en um miðjan október.
Hafði borgarritari þegar fengið for-
greiningu hjá Borgarskjalasafni á
þeim heimildum sem eru til staðar og
hafði borgin tryggt fjármagn í rann-
sóknina. Var þá ekkert því til fyrir-
stöðu að rannsókn gæti hafist, að
sögn Árna.
Ekkert breyst frá því í júlí
Fjórir mánuðir eru liðnir frá fund-
inum og hefur rannsóknarnefnd ekki
verið skipuð. Virðist undirbúningur
rannsóknarnefndar vera í kyrrstöðu.
„Staðan er í rauninni þannig að það
hefur ekkert breyst frá því í júlí í
fyrra. Málið er ekkert komið lengra
hvað varðar stofnun rannsóknar-
nefndar.“
Að sögn Árna eru afsakanir borg-
arstjórnar fyrir töfum rannsóknar
tvíþættar. Annars vegar hafi borgar-
ráð ekki samþykkt rannsókn vegna
tæknilegra atriða sem varða meðal
annars persónuvernd. Hins vegar
hafi því verið haldið fram að ríkið
muni koma til með að taka þátt í rann-
sókninni.
Hann telur þó upplýsingarnar ekki
standast en hann hafi fengið þær upp-
lýsingar frá forsætisráðuneytinu að
málið væri ekki á borði ríkisins. Þá seg-
ir hann persónuverndarsjónarmiðin
heldur ekki standast skoðun þar sem
til sé fordæmi fyrir rannsóknum á
barnaheimilum á vegum vistheimila-
nefndar. Í þeim rannsóknum hefðu
sömu persónuverndarsjónarmið verið í
gildi og því ættu þau ekki að vera fyr-
irstaða. Segir Árni framvindu málsins
hafa verið mikil vonbrigði.
- Rannsókn borgarinnar á starfsemi vöggustofa ekki hafin
Morgunblaðið/Úr safni.
Rannsókn Hér má sjá vöggustofu Thorvaldsensfélagsins, en dregist hefur
að hefja rannsókn á starfsháttum vöggustofa í borginni.
Telur afsakanir borg-
arinnar fyrirslátt
Lengri útgáfa af fréttinni
er á mbl.is.
mbl.is
Lögreglan á Suðurlandi hefur fengið
afhentar myndbandsupptökur úr ör-
yggismyndavélum sem staðsettar eru
í grennd við Þingvallavatn, til að
mynda frá eigendum frístundahúsa.
Sumar upptökurnar sýna flugvél-
ina, sem fórst í vatninu á fimmtudag,
á flugi, en samkvæmt heimildum
mbl.is náðist augnablikið á mynd þeg-
ar flugvélin fór ofan í vatnið.
Samkvæmt þeim heimildum virtist
sem flugvélinni hefði verið ætlað að
hafa snertingu við vatnið, en það mun
hafa verið ísilagt á þeim tíma.
„Við höfum fengið myndbönd úr
öryggismyndavélum þarna í kring. Á
einhverjum þeirra sjáum við til vél-
arinnar,“ sagði Oddur Árnason yfir-
lögregluþjónn í samtali við mbl.is í
gær.
Sagði Oddur að lögreglan myndi
ekki upplýsa hvað kæmi fram á þeim
upptökum sem henni berast. „Við
ætlum ekki að auglýsa hvað kemur
fram á þeim,“ sagði Oddur og tók
fram að það væri gert til að hafa ekki
áhrif á vitnisburði sem mögulega
ættu eftir að koma fram. Málið væri
til rannsóknar og ekki yrði gerð grein
fyrir einstökum þáttum atburða-
rásarinnar.
Morgunblaðið/Eggert
Þingvallavatn Frá leitinni að vél-
inni á Þingvallavatni um helgina.
Flugvélin sést á
myndbandsupptökum
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála (UUA) hefur hafnað
kröfu hóps eigenda og íbúa tólf
eigna við Einarsnes og Gnitanes í
Skerjafirði um að ákvörðun borg-
arstjórnar um nýtt deiliskipulag
fyrir Nýja-Skerjafjörð verði felld
úr gildi.
Kærendurnir bentu m.a. á að
með fyrirhugaðri uppbyggingu
mundi umferð um Einarsnes
aukast mikið með nýrri byggð og
jafnvel þrefaldast og að hávaði
vegna aukinnar umferðar yrði að
öllum líkindum yfir hámarks-
viðmiðum. Einnig væri nauðsynlegt
að íbúar fengju fullnægjandi kynn-
ingu áður en uppbygging hverfisins
hæfist. Ekki hefði verið komið til
móts við ábendingar um slysahættu
sem fylgdi því að staðsetja fjölfar-
inn hjólreiðastíg við innkeyrslur
margra íbúðarhúsa við Einarsnes.
Borgaryfirvöld bentu m.a. á að
deiliskipulagið uppfyllti öll skilyrði
um fyrirhugaðar mótvægisaðgerðir
vegna hávaða og tillögur um að-
gerðir vegna aukinnar umferðar og
mótvægisaðgerðir væru skýrar og
raunhæfar.
Úrskurðarnefndin bendir á að
við gerð deiliskipulags sé einungs
verið að skipuleggja það svæði sem
fellur innan marka þess. Fram
komi að fara eigi í vinnu við að
breyta núgildandi deiliskipulagi
bæði Skildinganess og Einarsness
þar sem hljóðvist vegna umferðar
yrði tekin fyrir.
Hafna kröfu um ógildingu
vegna Nýja-Skerjafjarðar
- Hópur íbúa kærði
ákvörðun til UUA
Tölvuteikning/Reykjavíkurborg
Nýi-Skerjafjörður Yfirlitsmynd af
hverfinu. Tillaga að nýju deiliskipu-
lagi var samþykkt í apríl 2021.
Lilja Dögg Al-
freðsdóttir,
menningar- og
viðskiptaráð-
herra, sagði á
málþingi í húsa-
kynnum Blaða-
mannafélagsins í
gær að hún
myndi beita sér
fyrir því á þessu
kjörtímabili að
RÚV yrði ekki á auglýsingamark-
aði. Þá sagðist Lilja líta á Dan-
mörku sem fyrirmyndarland hvað
varðar fjölmiðla. Lilja sagðist þó
ekki þar með segja að allar auglýs-
ingar ættu að fara til einkarekinna
eða frjálsra fjölmiðla.
Þá kom einnig fram í máli Lilju
að hún teldi að kerfið varðandi
skattlagningu ætti að vera miklu
sanngjarnara en það er, enda aug-
ljós mismunun þegar skattur er
greiddur þegar auglýst er hjá inn-
lendum aðilum en ekki hjá þeim er-
lendu. Þá biðlaði hún til fjölmiðla
sem væru of „fínir“ fyrir styrki, líkt
og Sýn og Síminn, að skila pening-
unum í ríkissjóð.
RÚV eigi ekki að vera á auglýsingamarkaði
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir