Morgunblaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hallveig Rúnarsdóttir sópran- söngkona og píanóleikarinn Árni Heimir Ingólfsson hyggjast stytta bið tónlistarunnenda eftir sumrinu með tónleikum í Tíbrár-röðinni í Salnum í Kópavogi í kvöld, þriðju- dag, sem hefjast kl. 19.30. Efnis- skrána segja þau vera „innblásna af sumri og ást“. Fyrir miðju verður þekktur sönglagaflokkur eftir Alban Berg frá fyrstu árum 20. aldar sem einkennist „af fjölbreyttri tjáningu og ljóðrænni dýpt“. Einnig flytja þau lög eftir Richard Strauss og „létt, skemmtileg og fögur“ lög úr Broadway-söngleikjum eftir Gersh- win og Weill í glæsilegum og sjald- heyrðum útsetningum. „Okkur langaði að setja saman efnisskrá sem innihéldi einstakan ljóðaflokk eftir Berg, Sieben frühe Lieder, Sjö snemmsöngva, en hann fjallar mikið um sumar og ást. Við prjónuðum fína efnisskrá kringum flokkinn,“ segir Hallveig. Hún bætir við að þau Árni Heimir hafi fyrst flutt þennan ljóðaflokk í Norræna húsinu árið 2014 og seinna á há- degistónleikum Íslensku óperunnar. „Þetta er stórkostleg tónsmíð og nú fannst okkur kominn tími til að flytja hana aftur. Þetta er viðamikið og margslungið verk sem vex með manni og mjög gaman að koma aftur að því. Núna finnst mér röddin líka vera alveg tilbúin til að takast á við verkið. Þegar við fluttum hana fyrst þá dansaði hún svolítið á línunni,“ segir Hallveig og hlær. Hún bætir svo við að þetta verk Bergs þarfnist einfaldlega ákveðinnar stærðar í röddinni. „Hún kemur með aldri og þroska. Maður breytir um efnisskrá eftir því sem röddin stækkar og breikkar. Núna er til að mynda að byrja að skoða Wagner í fyrsta skipti. Ég hef ekki verið tilbúin í það fyrr. Svo er ég að fara að syngja Requiem eftir Verdi í fyrsta skipti, á tónleikum með Fílharmóníu sem er búið að fresta nokrum sinnum í far- aldrinum en verða í Langholtskirkju 10. apríl. Það er rosalega skemmti- legt að sjá nú að ég er tilbúin til að takast á við slík draumaverkefni.“ Eins og fyrr segir flytja Hallveig og Árni Heimir á tónleikunum fleiri verk tengd Vínarskólanum svokall- aða, eftir Strauss, auk laga úr Broadway-söngleikjum eftir Kurt Weill og Gershwin. „Þetta eru í sjálfu sér ekki lík tón- skáld, en lögin fjalla um vor og ást,“ segir Hallveig. „Weill er þó frá þýska málsvæðinu og hóf sinn feril í Berlín á sama tíma og Berg starfaði í Vínarborg. En við Árni völdum líka verk á efnisskrána út frá því að við elskum söngleikjatónlist og hún gef- ur spennandi kontrast í prógramm- ið. Við byrjum á Kurt Weill, þá kem- ur Strauss, fyrir miðju er þessi mikli flokkur eftir Berg – svo endum við á Gershwin.“ Hallveig segir að lögin eftir Weill og Gershwin séu í útsetningum bandaríska píanóleikarans Teds Taylor. „Þessi lög eru upphaflega skrifuð fyrir hljómsveit og píanóút- skriftirnar eftir þeim eru mis- merkilegar. Þessar eftir Taylor eru hins vegar mjög flottar og Árni fær nóg að gera!“ Aftur hlær Hallveig. „Ég hef verið að syngja þessa söngleikjatónlist Gershwins síðan ég var krakki; ég hélt á sínum tíma heila Gershwin- og Cole Porter- tónleika á lagningardögum í MH með Karli Olgeirssyni. Þá vorum við í djassstuði en mér hefur alltaf þótt gaman að syngja fjölbreytilega tón- list.“ Lærði mikið af Ellu Fitzgerald Swing hefur því staðið Hallveigu nærri og hún segir að þegar hún var við nám í Guildhall í London hafi djasskennari hennar verið áfjáður í að hún myndi skipta yfir í djassinn. „Ég er alin upp af foreldrum mín- um og Ellu Fitzgerald. Stundum hef ég sagt að ég hafi ekki lært „músi- kalitet“ jafn mikið af neinum tón- listarmanni og Ellu. Hún hefur verið minn helsti skóli hvað það varðar og ég hef hlustað mikið á hana síðan ég var krakki. Við Árni Heimir höfum eiginlega alltaf einhverja söngleikja- tónlist á okkar efnisskrám. Og það er mjög fín leið til að skapa jafnvægi, á móti öðrum verkum sem kannski eru aðeins þyngri en líka geggjuð tónlist.“ Hallveig hefur árum saman glatt tónleikagesti með söng sínum á ólík- um vettvangi, gjarnan með kórum og í óperum, en einsöngstónleikar eru henni ekki síður mikilvægir. „Og ég hef saknað þess í Covid að ná að koma fram á fleiri slíkum, þótt mér hafi tekist að halda eina og eina tónleika, bæði með Árna Heimi og Hrönn Þráinsdóttur við píanóið. Þetta er mjög mikilvægur partur af starfinu og mjög ánægjulegt að vera með í tónleikaröð eins og Tíbrá, sem er einn af stóru póstunum í menn- ingarlífinu. Það er alltaf gaman að syngja í Salnum.“ Tekst á við draumaverkefnin - Efnisskrá Hallveigar Rúnarsdóttur sópransöngkonu og Árna Heimis Ingólfssonar píanóleikara á Tíbrártónleikum er innblásin af sumri og ást - Rómaður sönglagaflokkur Albans Berg fyrir miðju Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Fjölbreytt „Þetta er stórkostleg tónsmíð og nú fannst okkur kominn tími til að flytja hana aftur,“ segir Hallveig Rúnarsdóttir um sönglagaflokkinn eftir Berg en hér eru þau Árni Heimir Ingólfsson á æfingu í Salnum. Museum of the Future, Safn framtíðarinnar, nefnist þessi stórkostlega bygging sem finna má í Dúbaí og verður opnuð almenningi 22. febrúar. Hún er ein þeirra bygginga sem finna má á lista tímaritsins virta National Geographic yfir 14 fallegustu safnbyggingar heims og skyldi engan undra því byggingin er ævintýri líkust. AFP Ein fallegasta safnbygging jarðar Hin goðsagnakennda indverska söngkona, sú dáðasta í heimi Bolly- wood-kvikmynda, Lata Mangesh- kar, er látin, 92 ára að aldri. Hún lést úr Covid-19-sjúkdómnum. Man- geshkar hefur iðulega verið kölluð „næturgalinn í Bollywood“ og lýstu stjórnvöld á Indlandi yfir tveggja daga þjóðarsorg henni til heiðurs. Í minningargreinum indverskra fjölmiða er því haldið fram að fyrir þrjár kynslóðir þarlendra hafi Man- geshkar nánast verið táknmynd söngs og tónlistar, slík hafi áhrif hennar verið. Í 73 ár söng hún opin- berlega en einkum þó inn á upp- tökur laga sem hafa hljómað og verið sungin í kvikmyndum og gaf hún hundruðum leikkvenna söng- rödd á tjaldinu. Mangeshkar mun hafa sungið inn á meira en 1.000 kvikmyndir, auk hljómplatna. AFP Þjóðarsorg Á Indlandi var víða kveikt á kertum í minningu Lata Mangeshkar. Hinn dáði næturgali Bollywood látinn Bandaríski sálarsöngvarinn Syl Johnson er látinn, 85 ára að aldri. Kvikmyndagerðarmaðurinn Rob Hatch-Miller greindi frá andláti Johnsons en hann gerði heimildar- mynd um hann, Syl Johnson: Any Way the Wind Blows, sem frum- sýnd var árið 2015. Mikið safn laga liggur eftir John- son sem fæddist í Mississippi og varð þekktur fyrir framlag sitt til sálartónlistar í Chicago á sjöunda og áttunda áratugnum. Árið 1969 gaf hann út lag sem vakti mikla at- hygli, „Is It Because I’m Black“, en í því fjallaði hann um morðið á mannréttindafrömuðnum Martin Luther King Jr. Annað lag, „Differ- ent Strokes“, af fyrstu plötu John- sons, Dresses Too Short, er þó öllu þekktara því bútar úr því hafa mik- ið verið nýttir í hipphopptónlist og þá m.a. af Wu-Tang Clan, Public Enemy, De La Soul, Ice Cube og Kanye West og Jay-Z. Árið 2011 lögsótti Johnson þá West og Jay-Z fyrir að nota bút úr laginu í leyfis- leysi en sátt náðist í því máli. Sálarsöngvarinn Syl Johnson látinn, 85 ára að aldri Svalur Johnson á Dressed Too Short. Hinn umdeildi hlaðvarpsþátta- stjórnandi Joe Rogan hefur beð- ist afsökunar á skaðlegum og röngum fullyrð- ingum viðmæl- enda sinna um Covid-19 en nú sætir hann harðri gagnrýni fyrir að nota n- orðið yfir þeldökkt fólk. Eins og frægt er samdi Spotify við Rogan um að streyma þáttum hans og var samningurinn upp á um 100 millj- ónir dollara. Nú hefur forstjóri Spotify, Daniel Ek, fordæmt þessi ummæli sem hann segir sýna kyn- þáttafordóma en segir hlaðvarps- þætti Rogans þó áfram munu verða á veitunni. Rogan hefur nú beðist afsökunar í annað sinn og að þessu sinni á þessari notkun sinni á orð- inu ógeðfellda. Hefur hann nú fjar- lægt fjölda þátta úr hlaðvarpi sínu, The Joe Rogan Experience, vegna hinnar hörðu gagnrýni. Ek fordæmir ummæli Rogans Joe Rogan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.