Morgunblaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022 40 ÁRA Magnús ólst upp í Austurbæ Kópa- vogs, en býr í Foss- voginum í Reykjavík. Hann er heimspek- ingur að mennt frá Háskóla Íslands og lögfræðingur frá Há- skólanum í Reykjavík. Magnús er sjálfstætt starfandi lögmaður .„Ég vinn fjölbreytileg lögfræðileg störf og hef unnið töluvert í málefnum hælisleit- enda.“ Magnús var oddviti Pírata í Norðvestur- kjördæmi fyrir síðustu alþingiskosningar, en náði ekki kjöri. Áhugamál hans eru lengri og skemmri gönguferðir. „Mér finnst það ákaflega gaman. Ég hef líka svolítið verið í stang- og skotveiði, en það hefur verið að minnka.“ Hann gekk á Kilimanjaro með föður sínum árið 2017. FJÖLSKYLDA Eiginkona Magnúsar er Auður Kamma Einarsdóttir, f. 1982, með BS-gráðu í sálfræði og er atvinnuráðgjafi í Hinu húsinu. Börn þeirra eru Einar Sveinn, f. 2012, og Eva Sóllilja, f. 2016. Foreldrar Magnúsar eru Magnús Norðdahl, f. 1956, lögfræðingur hjá ASÍ, og Elín Jónasdóttir, f. 1956, sjálfstætt starfandi sálfræðingur. Þau eru búsett í Kópavogi. Magnús Davíð Norðdahl Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Ekki gefa foreldrum eða fjölskyldu- meðlimum loforð sem þú getur ekki staðið við. Vertu umburðarlyndur og gefðu þeim góð ráð sem til þín leita. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú þarft að huga að framtíðinni og tryggja stöðu þína sem best. Skipuleggðu vinnutímann betur og leitaðu aðstoðar með það sem þarf. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú ert eins og milli steins og sleggju í ákveðnu máli. Þú hefur í mörgu að snúast og skalt fá fólk í lið með þér til að leggja hönd á plóg því þá gengur allt eins og í sögu. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þér hefur vegnað vel og þú nýtur virðingar samstarfsfólks þíns. Græskulaust gaman er þér að skapi og það er sjálfsagt að lífga upp á tilveruna með þeim hætti. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Viljirðu búa við áframhaldandi vel- gengni máttu í engu slaka á. Lagaðu þig að aðstæðum, ef þú áttar þig á því hverju þarf að breyta. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú hefur lagt hart að þér til þess að tryggja þér og þínum öryggi í lífinu. Að- stæður á heimili munu batna og hið sama gildir um sambandið við þína nánustu. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú ert loksins að fá þá viðurkenningu sem þú átt skilið. Framtíð þín er bjartari en þú þorir að vona. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það er mikilvægt að þú gefir þér tíma til hvíldar og slökunar. Láttu ekki brjóta á rétti þínum, sæktu það sem er þitt af öryggi og festu. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Það er auðvelt að bera saman verk sín og meistaranna en að sama skapi alger tímasóun. Stundum þarftu bara að reka þig á til að vera beint í rétta átt. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Taktu þér tíma til þess að tryggja öryggi þitt og þinna sem þú frekast getur. Njóttu kraftsins sem þú finnur fyrir og leyfðu hugmyndunum að flæða. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Farðu þínar eigin leiðir þótt það kosti einhverja áhættu því það er kominn tími til að víkka sjóndeildarhringinn. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Áhrifamiklir aðilar munu vera á önd- verðum meiði við þig varðandi verkefnaval. Gættu þess að vera ekki of smámunasamur. „Að starfa við hjúkrun er mjög gefandi en um leið krefjandi. Starfið og námið tók talsverðum breytingum á langri starfsævi en það var gaman að taka þátt í því og leggja sitt af mörkum. Starfið er stöðug upp- spretta nýrra verkefna og alltaf er verið að læra. Til þess voru sett á laggirnar ótalin námskeið, ráð- stefnur og símenntun og leiðsögn og kennsla nemenda á deildum. Einnig var hugað að stuðningi við starfsfólk sem vinnur við erfiðar aðstæður og verkefni. Það er aldrei ofsagt hvers virði það er að huga að andlegri heilsu og líðan starfsfólks sem vinnur líknarstörf. Í störfum mínum kynnt- ist ég óteljandi hetjum bæði í starfi en ekki síður sjúklingum og aðstand- endum. Ég tel mig gæfusama að hafa kynnst og unnið með svo mörgu frá- bæru fólki. Þetta yljar og gefur góð- ar minningar.“ Áhugamál og félagsmál Helstu áhugamál Ingibjargar hafa verið útivist ýmiss konar. „Við hjónin hlupum með Trimmklúbbi Seltjarn- arness TKS í fimmtán ár sem er ómetanlegt fyrir sál og líkama, margs að minnast þar, hlaup, ferða- lög og skemmtanir. Við starfslok fór ég í golfið, á fjölmörg námskeið, að- allega á Spáni sem er frábært, en er þó aldrei nema byrjandi. Hef samt gaman af því. Við hjónin erum í ins var svigrúm lítið til starfa. Ég kenndi samt heilsufræði við Kvenna- skólann í tvö ár, virta kennslu- stofnun, og starfaði annars með hléum við hjúkrun við Héraðshælið á Blönduósi, einnig sem heilbrigðis- fulltrúi á vegum sýslunefndar Austur-Húnavatnssýslu í nokkur ár. Þarna var ég aftur komin í „sveitina“ þó að aðstæður væru aðrar en við Ísafjarðardjúp og var áhugavert að kynnast þessu landbúnaðarhéraði sem bjó að fornri frægð.“ Frá árinu 1975 starfaði Ingibjörg óslitið við hjúkrun, kennslu og stjórnun til starfsloka 2007. Af stöðu- heitum og verkefnum fyrir utan hjúkrunarstörf á sjúkradeildum Landspítala og Landakotsspítala ber helst að nefna: Hjúkrunarkennari við Nýja hjúkrunarskólann 21.9. 1976 til 1.2. 1978, og hjúkrunarframkvæmda- stjóri St. Jósepsspítala, Landakoti 1.9. 1979 til 1.2. 1990, þar af stað- gengill hjúkrunarforstjóra í eitt ár. „Eitt af skemmtilegum verkefnum sem hjúkrunarforstjóri var að taka á móti páfanum Jóhannesi Páli 2. á Landakoti í heimsókn hans til Ís- lands 4. júní 1989.“ Annað sem Ingi- björg tók sér einnig fyrir hendur á þessu tímabili var að bæta við sig í námi: Hjúkrunarkennarapróf Kenn- araskóla Íslands 1979, B.Sc. í hjúkr- unarfræði HÍ 1987 og diplóma í hag- nýtri jafnréttisfræði HÍ 2011. I ngibjörg Sigrún Guðmunds- dóttir fæddist 8. febrúar 1942 á Ísafirði og bjó þar til 17 ára aldurs. Hún gekk í Barna- og gagnfræðaskóla Ísafjarðar og tók landspróf. „Það var gott að búa á Ísafirði. Félagslíf var mikið, gaman í skátunum og á skíð- um. Í skólanum var mikið og ríkt tón- listarlíf og gaman að syngja bæði í skólanum og á skemmtunum. Það spillti ekki fyrir að ég spilaði á gítar. Þar varð til vinskapur sem aldrei dvínar.“ Ingibjörg flutti til Reykja- víkur ásamt fjölskyldunni 1959. Á sumrin var Ingibjörg ásamt systkinum sínum í sveit í Vogum í Ísafirði, innst í Ísafjarðardjúpi, hjá afa þeirra og ömmu. „Það voru ljúfar stundir og alltaf tilhlökkun á vorin. Þar kynntist ég náttúrunni og dýr- unum, veðri og vindum, einnig sögu og örlögum forfeðra okkar, sjálfs- þurftarbúskap og lífsbaráttu. Þar lærði maður nægjusemi og æðruleysi sem ég hef búið að síðan.“ Nám og störf Haustið 1957 fór Ingibjörg til náms í MR og varð stúdent úr mála- deild 1961. „Þar myndaðist einnig vinskapur fyrir lífstíð og enn þá höld- um við hópinn okkur til ánægju.“ Síðan tók við tæplega fjögurra ára nám í hjúkrun við Sykepleieskolen Ullevål Sykehus Oslo með útskrift 1965. „Ullevål Sykehus var eitt af stærstu sjúkrahúsum í Evrópu á þeim tíma og námið því fjölbreytt og áhugavert. Þetta var skemmtilegur tími þar sem maður kynntist fólki bæði innan og utan spítalans. Í hjúkrunarstarfinu kynnist maður fólki í margvíslegum aðstæðum og allsstaðar frá í landinu, sem er víð- feðmt og mannlífið fjölbreytt, að maður tali ekki um mállýskurnar. Og ekki var leiðinlegt að sækja skíða- landið við Holmenkollen og víðar og veðurfar stöðugt. Ég á því einnig góðar minningar frá Noregi.“ Þegar heim kom tók við starf á Landspítala en árin 1968-1975 bjó hún á Blönduósi þar sem Bergur maðurinn hennar var skólastjóri. „Með þrjú smábörn, húsmóðurstörf og skyldur vegna starfs eiginmanns- GHR, golfklúbbnum á Hellu, því við eigum sumarbústað í nágrenninu. Við byrjuðum með hann við starfslok og höfum eytt þar mörgum góðum stundum við lagfæringar og vinnu og með fjölskyldu og vinum. Sum- arkvöld á Rangárvöllum eru engu lík. Annars hafa félagsstörf tekið mik- ið af tíma mínum. Ég hef tekið þátt í stjórnmálum með Kvennalistanum og Samfylkingunni síðastliðin tutt- ugu ár. Og fjölskyldan grínast með að enginn hafi stofnað fleiri foreldra- félög en þar er helst að nefna: Stofn- andi og í stjórn Samfoks, Samtaka foreldra og kennara í grunnskólum Reykjavíkur, 1984-1986. Stofnandi og í stjórn Foreldrafélags MR 2000- 2002. Stofnandi og í stjórn FAS, Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra 2000-2010, formað- ur í tvö ár. Ritari í stjórn Lands- samtaka eldri borgara innan Samfylkingarinnar 2007-2013. Börn- in segja að ég muni örugglega stofna foreldrafélag á elliheimilinu!“ Fjölskylda Eiginmaður Ingibjargar er Berg- ur Felixson, fv. framkvæmdastjóri Dagvistar barna í Reykjavík, f. 14.10. 1937. Þau gengu í hjónaband í Reykjavík 13.8. 1966, bjuggu þar til 1968 og fluttu þá á Blönduós. Frá 1975 hafa þau svo búið í Reykjavík, Ingibjörg Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur – 80 ára Gullbrúðkaup Hjónin með barna- börnunum á Túnsbergi árið 2016. Kynnst óteljandi hetjum í starfi Afmælisbarnið Ingibjörg við hjúkr- unarnám við Ullevål Sykehus í Ósló. Mæðgurnar Ingibjörg með Guð- björgu móður sinni heima á Ísafirði. Til hamingju með daginn Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Dagsskammtur inniheldur 1000 mg af glúkósamíni og 200 mg af kondrótíni ásamt engifer, túrmerik, C-vítamíni og rósaldin. C -vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi brjósks. Í þínu liði fyrir þína liðheilsu! Glucosamine & Chondroitin Complex „Ég lenti í bílslysi og fann til í öllum líkamanum, það komu dagar sem voru rosalega erfiðir þangað til ég kynntist Glucosamine og Chondroitin frá Natures aid, ég er töluvert betri og ég gæti ekki mælt meira með þessu liðbætiefni.“ Petra Breiðfjörð Allt að 3 mánaða skammtur í glasi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.