Morgunblaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022
Karlalið Kanada í knatt-
spyrnu er nú hársbreidd frá því
að komast á HM 2022 sem fram
fer í Katar í lok þessa árs. Kan-
ada komst síðast á HM 1986 í
Mexíkó.
Síðan þá hefur liðið ekki átt
miklu láni að fagna. Ef undan er
skilinn sigur í Gullbikarnum,
keppni liða frá Norður- og Mið-
Ameríku, árið 2000 hefur Kan-
ada lítið sem ekkert getað um
nokkurra áratuga skeið.
Það er allt saman að breytast
enda hefur Kanada verið liða
sterkast í undankeppni Norður-
og Mið-Ameríku. Liðið er enn
taplaust eftir 11 umferðir í und-
anriðlinum þar sem það hefur
unnið sjö leiki og gert fjögur
jafntefli og þarf aðeins einn sig-
ur til viðbótar til þess að tryggja
sér sæti á HM.
Þetta hefur ekki gerst af
sjálfu sér en fyrir utan það að
fjöldi öflugra leikmanna á við
Alphonso Davies og Jonathan
David eru að koma upp hefur
enski þjálfarinn John Herdman
lyft grettistaki þegar kemur að
spilamennsku liðsins.
Knattspyrnusamband
Kanada leitaði ekki langt yfir
skammt þegar Herdman var ráð-
inn þjálfari karlaliðsins árið 2018
því hann stýrði sterku kvennaliði
Kanada um sjö ára skeið þar
sem liðið vann til brons-
verðlauna á Ólympíuleikunum
2012 og 2016.
Sem þjálfari karlaliðsins er
Herdman með tæplega 74 pró-
sent sigurhlutfall og leiddi liðið
upp í 40. sæti á styrkleikalista
FIFA á dögunum. Liðið hefur
aldrei komist jafn ofarlega á list-
anum.
Ég er í það minnsta farinn að
hlakka til að sjá Kanada spila á
HM í Katar.
BAKVÖRÐUR
Gunnar Egill
Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Reykjavíkurmót kvenna
Valur – Þróttur R................................... (0:2)
_ Leikur Vals og Þróttar var flautaður af í
hálfleik vegna slæmra veðurskilyrða. Þá
var staðan 2:0 fyrir Þrótt.
_ Valur 12, Þróttur R. 10, Víkingur R. 10,
Fjölnir 9, KR 3, Fylkir 0, Fram 0.
Spánn
Athletic Bilbao – Espanyol...................... 2:1
Staða efstu liða:
Real Madrid 23 16 5 2 48:20 53
Sevilla 23 13 8 2 34:16 47
Real Betis 23 12 4 7 41:27 40
Barcelona 22 10 8 4 36:25 38
Atlético Madrid 22 10 6 6 38:30 36
Villarreal 23 9 8 6 38:23 35
Real Sociedad 22 9 8 5 22:21 35
Athletic Bilbao 23 8 10 5 23:18 34
Rayo Vallecano 22 9 4 9 27:24 31
Holland
B-deild:
Jong Ajax – Jong PSV............................. 2:0
- Kristian Nökkvi Hlynsson kom inn á í
hálfleik hjá Jong Ajax.
4.$--3795.$
Olísdeild karla
FH – HK ............................................... 33:24
Stjarnan – Haukar ............................... 29:33
Staðan:
FH 14 10 2 2 398:350 22
Haukar 14 10 2 2 421:382 22
Valur 13 9 2 2 375:328 20
Stjarnan 14 8 2 4 416:402 18
ÍBV 13 8 1 4 387:386 17
Selfoss 13 7 1 5 342:335 15
Afturelding 13 4 4 5 371:365 12
KA 13 6 0 7 367:375 12
Fram 12 4 2 6 339:343 10
Grótta 12 3 1 8 314:326 7
Víkingur 14 1 0 13 312:401 2
HK 13 0 1 12 342:391 1
%$.62)0-#
ÓL 2022
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ireen Wüst frá Hollandi skráði
nafn sitt á spjöld sögunnar í gær
þegar hún sigraði í 1.500 metra
skautahlaupi á Vetrarólympíuleik-
unum í Peking.
Wüst varð með þessu fyrst allra
íþróttamanna til að vinna gull í
einstaklingsgrein á fimm Ólympíu-
leikum, hvort sem er sumar- eða
vetrarleikum.
Með þessu fór hún fram úr
þremur af skærustu stjörnum í
sögu Ólympíuleika, sundmann-
inum Michael Phelps og frjáls-
íþróttamönnunum Carl Lewis og
Al Oerter, sem áður deildu því
með henni að hafa unnið ein-
staklingsgreinar á fernum leikum.
Wüst vann 1.500 m skauta-
hlaupið í þriðja sinn en hún vann
það líka í Vancouver 2010 og í
Pyongchang 2018. Til viðbótar
vann hún 3.000 metra hlaupið í
Tórínó árið 2006 og í Sotsjí árið
2014.
Til viðbótar þessum fimm ein-
staklingsverðlaunum hefur Wüst
líka unnið gull í liðakeppni með
Hollendingum en það gerði hún í
Sotsjí. Í framhaldi af því kaus
fréttastofa Reuters hana íþrótta-
konu ársins í heiminum 2014. Hún
á enn fremur í safni sínu fimm silf-
urverðlaun frá Ólympíuleikum,
fern þeirra í einstaklingsgreinum,
og ein bronsverðlaun. Fyrir vikið
er Wüst sigursælasti keppandi
Hollands á Ólympíuleikum frá upp-
hafi.
Wüst fékk samtals fimm verð-
laun í Sotsjí, tvenn gullverðlaun og
þrenn silfurverðlaun.
Fyrir utan þetta hefur hún unnið
22 meistaratitla á heimsmeist-
aramótum og átta sinnum orðið
Evrópumeistari.
Bæði yngst og elst
Wüst er 35 ára gömul og varð
yngsti sigurvegari Hollands á
Vetrarólympíuleikum þegar hún
vann 3.000 metrana 19 ára gömul
í Tórínó árið 2006. Með sigrinum
í gær er hún líka orðin sá elsti.
Hún þótti ekki sigurstrangleg-
ust fyrir hlaupið í gærmorgun og
var fyrir leikana í sjöunda sæti á
heimslistanum í 1.500 metra
hlaupinu. Heimsmethafanum
Miho Takagi frá Japan var af
flestum spáð sigri en varð að
sætta sig við silfrið. Wüst vann á
nýju ólympíumeti, 1:53,28 mín-
útum, og varð 44/100 úr sekúndu
á undan Takagi.
„Ég veit ekki hvað þetta er.
Ég sé ólympíuhringina og þá
gerist eitthvað magnað,“ sagði
Wüst við fréttamenn eftir sig-
urinn í gær þegar hún var spurð
hvers vegna hún næði alltaf sínu
besta fram á Ólympíuleikum.
Wüst keppir líka í 1.000 metra
skautahlaupinu í Peking og gæti
því enn bætt við verðlaunasafnið,
en síðan mun það líkast til ekki
stækka frekar því Wüst hefur
ákveðið að hætta keppni eftir
farsælan feril í næsta mánuði.
Sé hringina og
þá gerist eitt-
hvað magnað
- Ireen Wüst hefur unnið einstakt
afrek í sögu Ólympíuleikanna
AFP
Sigursæl Ireen Wüst fagnar sögulegum sigri sínum í 1.500 metra skauta-
hlaupinu í Peking í gær. Hún ætlar að hætta keppni í næsta mánuði.
Dagný Brynjarsdóttir, landsliðs-
kona og leikmaður West Ham, hef-
ur verið tilnefnd í kosningu Sam-
taka atvinnuknattspyrnufólks á
leikmanni janúarmánaðar í ensku
úrvalsdeildinni. Dagný er ein af sex
leikmönnum sem koma til greina í
kosningunni en hinar eru Lauren
Hemp og Georgia Stanway frá
Manchester City, Leah Galton frá
Manchester United og þær Natasha
Dowie og Emma Harries, leikmenn
Reading. Það er stuðningsfólkið
sem kýs leikmann mánaðarins á
vefsíðunni 90min.com.
Dagný tilnefnd í
ensku deildinni
Ljósmynd/@westhamwomen
West Ham Dagný Brynjarsdóttir
skoraði tvö mörk í janúar.
Sóknarmaðurinn Sadio Mané frá
Senegal var útnefndur besti leik-
maður Afríkumóts karla í knatt-
spyrnu í fyrrakvöld, eftir að hann
tryggði Senegal sinn fyrsta sigur á
mótinu eftir úrslitaleik gegn
Egyptalandi í Yaoundé í Kamerún.
Úrslitaleikurinn endaði 0:0 en Mané
innsiglaði sigur Senegals í víta-
spyrnukeppni, 4:2. Markvörðurinn
Edouard Mendy hafði áður varið
eina af spyrnum Egyptanna, sem
auk þess skutu í stöng, en snemma í
leiknum sjálfum varði markvörður
Egypta vítaspyrnu frá Mané.
Mané bestur á
Afríkumótinu
AFP
Bestur Sadio Mané varð tvöfaldur
sigurvegari á Afríkumótinu.
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir
náði ekki að ljúka keppni í sinni
fyrstu grein af þremur á Vetraról-
ympíuleikunum í Peking í gær-
morgun en þá keppti hún í stórsvigi
kvenna.
Af 82 keppendum féllu 22 strax í
fyrri ferðinni, þar á meðal Hólm-
fríður Dóra og Mikaela Shiffrin frá
Bandaríkjunum, ein fremsta skíða-
kona heims.
Í seinni ferðinni urðu enn frekari
afföll því þá féllu ellefu keppendur
til viðbótar og því aðeins 49 sem
náðu að ljúka keppni.
Gullverðlaunin fékk Sara Hector
frá Svíþjóð, silfrið fékk Federica
Brignone frá Ítalíu og bronsið hlaut
Lara Gut-Behrami frá Sviss.
Næstu Íslendingar sem keppa á
leikunum í Peking eru Kristrún
Guðnadóttir og Isak Stienson Ped-
ersen sem bæði keppa í sprett-
göngu í dag. Keppnin hefst klukkan
átta að íslenskum tíma en þá er
klukkan sextán síðdegis í Peking.
AFP
Gullið Sara Hector frá Svíþjóð sigraði í stórsviginu í gær.
Hólmfríður féll en
gullið fór til Svía
Sævar Pétursson, framkvæmda-
stjóri KA á Akureyri, tilkynnti í
gær að hann gæfi kost á sér í kjöri
formanns Knattspyrnusambands
Íslands á ársþingi sambandsins sem
haldið verður 26. febrúar.
Þar með verða kosningar á
þinginu en Vanda Sigurgeirsdóttir,
sem tók við sem formaður KSÍ á
aukaþingi sambandsins í október
2021, tilkynnti í síðustu viku að hún
gæfi kost á sér til áframhaldandi
setu sem formaður.
Sævar er 47 ára gamall og hefur
verið framkvæmdastjóri KA frá
2011. Hann lék á sínum tíma með
Breiðabliki, Fram og Val í efstu
deild en einnig með Haukum, KS á
Siglufirði, Tindastóli á Sauðárkróki
og Einherja á Vopnafirði, sem og
með 4. deildar liði Deiglunnar í
Reykjavík. Þá lék hann eitt ár á
Nýja-Sjálandi. Sævar lék 154 leiki í
fjórum efstu deildunum á ferlinum
og þar af 54 í efstu deild.
Sævar sendi frá sér tilkynningu í
gær þar sem hann kvaðst hafa
fengið fjölda áskorana um að bjóða
sig fram og hann hefði ákveðið að
gera það með það að leiðarljósi að
setja fótboltann aftur í fyrsta sætið
hjá KSÍ og efla samskiptin við fé-
lögin í landinu.
Í tilkynningunni var síðan farið
nánar í hans helstu áherslur og þær
má sjá í frétt um framboðið sem
birtist á sérvefnum Íslenski boltinn
á íþróttavef mbl.is í gær.
Sævar býður sig
fram gegn Vöndu
KSÍ Sævar hefur ákveðið að gefa
kost á sér í kjöri formanns KSÍ.