Morgunblaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022 Löggiltur heyrnarfræðingur Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Gríptu til þinna ráða Pantaðu tíma í HEYRNAR GREININGU Nánari upplýsingar í síma 534 9600 eða á heyrn.is Allar helstu rekstrarvörur og aukahlutir fyrir heyrnartæki fást í vefverslun heyrn.is Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nöfn umsækjenda um störf sóknar- presta í Víkurprestakalli í Mýrdal og Skálholtsprestakalli voru birt á vef þjóðkirkjunnar um miðja síð- ustu viku. Um starf sókn- arprests í Skál- holtsprestakalli sóttu fimm: Séra Arnaldur Arnold Bárðarson, Árni Þór Þórsson guð- fræðingur, Bryn- dís Böðvarsdóttir guðfræðingur, séra Dagur Fannar Magn- ússon og séra Ingibjörg Jóhanns- dóttir. Séra Arnaldur Arnold, prestur á Eyrarbakka, og séra Ingibjörg eru hjón og segja þeir sem best þekkja til að það sé einsdæmi í kirkjusögu Íslands að hjón sæki um sama prestsembættið. Valnefnd í prestakallinu var snögg til og ákvað að kalla séra Dag Fannar til starfa í Skálholti. Biskup Íslands hefur staðfest ráðningu hans. Dagur Fannar fæddist 10. júlí 1992 og er því 29 ára að aldri. Hann hefur verið prestur í Heydölum í Breiðdal í rúm tvö ár. Eiginkona hans er Þóra Gréta Pálmarsdóttir, foreldrafræðingur og uppeldisráðgjafi að mennt, og eiga þau þrjú börn. Skálholtsprestakall í Suður- prófastsdæmi er á samstarfssvæði með Hrunaprestakalli. Það saman- stendur af átta sóknum þar sem eru 12 kirkjur. Í fésbókarfærslu þakkar Dagur Fannar sóknarbörnum sínum í Hey- dalasókn góðar móttökur og ein- stakan stuðning. Hann kveðst hafa bundist staðnum og sóknarbörnum sterkum böndum sem aldrei muni bresta. Um starf sóknarprests í Víkur- prestakalli sóttu fimm: Árni Þór Þórsson guðfræðingur, Bryndís Böðvarsdóttir guðfræðingur, Edda Hlíf Hlífarsdóttir guðfræðingur og séra Ingibjörg Jóhannsdóttir. Einn umsækjandi óskar nafnleyndar. Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sig- urðardóttir, auglýsti fyrir nokkru eftir prestum í fjögur störf og rann umsóknarfrestur um þau út á mið- nætti 24. janúar sl. Áður hefur verið greint frá því hverjir sóttu um prestsstarf í Egils- staðaprestakalli, og sóknarprests- starf í Þingeyraklaustursprestakalli en töf varð á afgreiðslu mála í seinni tveimur prestaköllunum. Val- ferli mun á næstunni fara fram sam- kvæmt starfsreglum um ráðningu í prestsstörf. Valnefnd prestakalls velur presta og biskup ræður þann umsækjanda í starfið sem valnefnd hefur náð samstöðu um. Hjón sóttu um sama embættið í Skálholti Morgunblaðið/Brynjar Gauti Skálholt Einn mesti sögustaður Íslands og biskupssetur síðan árið 1056. - Séra Dagur Fannar Magnússon prestur í Heydölum var valinn Dagur Fannar Magnússon Alls greindust 1.367 kórónuveiru- smit innanlands sl. sunnudag sam- kvæmt bráðabirgðatölum sem birt- ust á vefnum covid.is. Voru 42 prósent í sóttkví við greiningu. Í gær lágu 30 sjúklingar með Co- vid-19 á Landspítala. Þar af voru 28 með virkt smit og í einangrun. Á gjörgæslu voru 2 sjúklingar sem eru báðir lausir úr einangrun. Ann- ar þeirra var í öndunarvél og hjarta- og lungnavél. Um helgina bættust 20 nýir sjúk- lingar í Covid-hópinn; inniliggj- andi, greindir við innlögn og vegna Covid frá göngudeildinni. Nú eru Covid-sjúklingar á hjarta- deild, meltingar- og nýrnadeild, Vífilsstöðum, fæðingarvakt, bækl- unarskurðdeild, barnadeild, geð- deild, lungnadeild, smitsjúkdóma- deild og gjörgæsludeildinni við Hringbraut. Nýjar reglur Í gær tóku gildi nýjar reglur um einangrun einkennalausra og þeirra sem hafa mjög væg einkenni Covid-sýkingar en þeir eru nú í 5 daga einangrun ef framangreind skilyrði eru uppfyllt. Starfsmenn Landspítala sem snúa aftur til vinnu eftir Covid mega koma eftir 7 daga ef þeir eru hitalausir. 1.367 greindust með kórónuveiru Utanríkisráðuneytið mun verja 250 milljónum króna til að styðja við starfsemi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) til að hraða dreifingu og aðgengi að bóluefnum gegn Covid-19 í þróunarríkjum. Fram kemur á heimasíðu ráðu- neytisins að Ísland hafi tekið virkan þátt í alþjóðlegum aðgerðum til stuðnings baráttu þróunarríkja gegn heimsfaraldrinum og áhrifum hans en auk framlagisins til UNICEF hafi stjórnvöld varið rúmum millj- arði króna til COVAX-bóluefnasam- starfsins. Framlag Íslands til UNICEF er undir formerkjum alþjóðlega bólu- efnasamstarfsins ACT-A en þar gegnir stofnunin lykilhlutverki í því að tryggja að bóluefni sem fjár- mögnuð eru í gegnum samstarfið komist á leiðarenda. Stofnunin sér um flutning á bóluefnum innan þró- unarríkja, tæknilega aðstoð við framkvæmd bólusetninga, stuðning við heilbrigðisstarfsfólk og stofnan- ir, ásamt almenningsfræðslu. UNICEF fær stuðning til að hraða dreifingu bóluefna Ljósmynd/UNICEF Bólusetning UNICEF gegnir lykilhlutverki í því að tryggja að bóluefni sem fjármögnuð eru í gegnum alþjóðlegt samstarf komist á leiðarenda. - Utanríkisráðuneytið veitir 250 milljónir króna til verkefnisins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.