Morgunblaðið - 08.02.2022, Page 13

Morgunblaðið - 08.02.2022, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022 malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í MALBIKUN Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband. Mikið uppnám er í Ísrael eftir að upp komst að lögreglan þar í landi hefur notað hugbúnað, sem smygl- að er í farsíma, til að njósna um fjölda fólks án heimildar dómara. Um er að ræða njósnaforritið Pegasus sem ísraelskt fyrirtæki framleiðir og hefur selt einræð- isstjórnum, lögreglu og leyniþjón- ustum víða um heim. Það var við- skiptadagblaðið Calcalist sem ljóstraði upp um misnotkun lög- reglunnar. Sagði blaðið í gær- morgun að meðal þeirra sem fylgst hafi verið með hafi verið sonur Benjamíns Netanyahu, fyrrum for- sætisráðherra, ýmsir aðgerða- sinnar og háttsettir embættismenn ríkisins. Blaðið hafði áður greint frá því að lögreglan hefði án heimildar notað njósnabúnaðinn til að fylgj- ast með andstæðingum Netanyahu meðan hann gegndi embætti for- sætisráðherra. Ríkislögreglustjóri Ísraels, Kobi Shabtai, kveðst hafa beðið dóms- málaráðuneytið að fela óháðri rannsóknarnefnd að kanna hvað hæft sé í fréttaflutningi blaðsins. Hann sagði að kæmi í ljós að reglum hefði ekki verið fylgt yrði brugðist við því á viðeigandi hátt. Stjórnvöld í Ísrael hafa á und- anförnum mánuðum sætt harðri gagnrýni fyrir að leyfa útflutning njósnabúnaðarins til einræðisríkja, en staðfest hefur verið að hann hefur notaður til fylgjast með and- ófsmönnum víða um heim. Fyrri uppljóstranir um notkun búnaður- ins í Ísrael hafa þegar leitt til þess að fyrirskipuð hefur verið opinber rannsókn á málinu þar í landi. AFP Njósnir Pegasus-forritinu er laum- að í síma þeirra sem fylgst er með. Lögreglan notaði óleyfilegan búnað - Njósnaði um fjölda fólks í Ísrael Enginn tuttugu frambjóðenda í forsetakosning- unum sem fram fóru í Mið- Ameríkuríkinu Kosta Ríka á sunnudaginn náði tilskildum atkvæðafjölda til að hljóta kjör. Frambjóðandi þarf að lágmarki 40 prósent at- kvæða til að verða forseti. Flest at- kvæði fengu Jose Maria Figueres, sem var forseti landsins á tíunda áratugnum, rétt innan við 30 pró- sent, og fyrrum fjármálaráðherra landsins, Rodrigo Chaves, rétt inn- an við 20 prósent. Kosið verður á milli þeirra tveggja í seinni umferð- inni. Samhliða var kosið til þings landsins sem situr í einni málstofu. Flest atkvæði hlaut miðvinstri- flokkurinn PLN sem Jose Maria Fi- gueres leiðir og fær flokkurinn 20 sæti á 57 manna þinginu. KOSTA RÍKA Enginn fékk nægi- legan stuðning Jose Maria Figueres Kínverska tenn- isstjarnan Peng Shuai neitaði því í viðtali við franska íþrótta- blaðið L’Equipe um helgina að hún hefði verið beitt kynferð- islegu ofbeldi. Kannaðist hún ekkert við að hafa fullyrt þetta á kínverska samfélagsmiðlinum Weibo í nóvember í fyrra. Ásakaði hún þar háttsettan yfirmann í Kommúnistaflokknum, Zhang Gaoli, um að hafa þvingað sig. Skrifum hennar var fljótlega eytt og næstu þrjár vikurnar sást hún ekki opinberlega. Eftir þetta hefur hún ekki talað við fjölmiðla nema með fulltrúa frá stjórnvöldum við hlið sér. Svo var einnig nú, sá túlk- aði fyrir hana í viðtalinu. „Þetta er allt einn stór misskilningur,“ full- yrti tennisstjarnan. KÍNA „Þetta er allt einn stór misskilningur“ Peng Shuai Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Emmanuel Macron Frakklandsfor- seti sagði í gær að hann vonaðist til þess að hægt væri að draga úr spennunni vegna Úkraínumálsins, en Macron fór í gær til Moskvu til að ræða við Vladimír Pútín Rúss- landsforseta. Sagðist Macron vilja finna „svar sem væri gagnlegt fyrir Rússland, sem og öll hin ríki Evrópu“. Pútín heilsaði Macron með orðunum „kæri Emmanuel“ og sagði að Rússar og Frakkar deildu áhyggj- um vegna öryggisástands Evrópu. Þá hrósaði Pútín hversu mjög frönsk stjórnvöld hefðu beitt sér til þess að greiða úr þeim áhyggj- um. Macron mun í dag fara til Kænugarðs og ræða þar við Vo- lodymyr Zelenskí, forseta Úkra- ínu, um stöðuna, en Frakkar fara nú með forsæti innan Evrópusam- bandsins. Sagði Dmytro Kuleba, utanríkis- ráðherra Úkraínu, á Twitter-síðu sinni að þeir hefðu nokkur „rauð strik“ þegar kæmi að samningum um deiluna, en þar á meðal væri að ekki yrði gefið eftir fullveldi eða alþjóðlega viðurkennd landamæri Úkraínu og að einungis Úkraínu- menn hefðu rétt á að ákveða utan- ríkisstefnu sína. „Krísuferð“ til Washington Sama dag og Macron fór til Moskvu ákvað Olaf Scholz Þýska- landskanslari að funda með Joe Bi- den Bandaríkjaforseta í Wash- ington-borg, en Scholz mun í næstu viku ræða við leiðtoga bæði Úkraínu og Rússlands. Fréttaskýrendur bæði austan hafs og vestan sögðu í gær að Bandaríkjaferð Scholz myndi gefa honum færi á að laga laskað orð- spor Þýskalands vegna þess hvern- ig þýsk stjórnvöld hafa brugðist við Úkraínudeilunni, og kallaði þýska dagblaðið Münchner Merk- ur ferðalag Scholz „krísuferð“. Sagði Biden að Bandaríkin og Þýskaland væru „í fullkomnum takti“ þegar kæmi að ágengni Rússa í Evrópu sem og þeim áskorunum sem Kínverjar hefðu sett fram. Hét Scholz því fyrir fund sinn með Biden að innrás Rússa í Úkraínu myndi hafa í för með sér „mjög háan kostnað“, og að ríkin tvö hefðu samræmt þær aðgerðir sem ráðist yrði í, kæmi til slíkrar innrásar. Vill draga úr spennunni - Macron fundaði með Pútín og Scholz með Biden - Úkraínumenn setja „rauð strik“ við samningagerð - Scholz segir Rússa munu gjalda innrás dýru verði AFP Úkraínudeilan Macron situr íbygg- inn á svip á fundi sínum með Pútín. Einhver tígulegasti farfugl í Alban- íu er hinn suðræni pelikani. Hafa Albanar verið stoltir af árlegum heimsóknum fuglanna. En nú hefur þeim fækkað um mörg þúsund sem þangað koma og er það rakið til loftslagsbreytinga, ofveiði og ým- issa framkvæmda sem rýra það ósnortna svæði sem pelikanar sækja í. Hér liggur kvenpeningurinn á eggjum sínum á hólma í lóni í þjóð- garðinum Divjaka-Karavasta. Þar er fuglinum óhætt og enn er nægi- legan fisk að finna í vatninu, en fiskur er aðalfæða pelikana. Sér- kennilegt nafnið er komið úr grísku, pelekán, líklega leitt af pélekys, „öxi“, og þá tekið mið af neflagi fuglsins sem er einkennandi fyrir hann. Loftslagsbreytingar og ofveiði í Albaníu taka sinn toll í lífríkinu Pelikönum fækkar verulega AFP

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.