Morgunblaðið - 08.02.2022, Síða 15

Morgunblaðið - 08.02.2022, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022 Aðdráttarafl Lóndrangar á Snæfellsnesi eru konfekt í augum ljósmyndara, að sumri sem vetri, þó að þeir séu um leið dálítið ógnvænlegir hraundrangar út við sjó. Kristinn Magnússon Nú er hálf öld liðin frá því að umhverfis- mál komu fyrst fyrir almenningssjónir sem viðfangsefni er varðar framtíð alls mannkyns. Árið 1972 birtist mönn- um rit Rómarsamtak- anna Limits to Growth sem brátt kom einnig út í íslenskri þýðingu undir heitinu Endi- mörk vaxtarins. Að samtökunum stóð hópur ein- staklinga úr öllum heimsálfum, kvaddur saman af ítalska iðnjöfr- inum Aurelio Peccei. Einnig kom út þetta sama ár rit svissneska verk- fræðingsins Ernsts Baslers sem á þýsku bar heitið Strategie des Wachstums eða Forsendur vaxtar. Þar var kynnt hugmyndin um sjálf- bærni (Sustainability, á þýsku Nach- haltigkeit) sem grundvöllur fyrir farsælli framtíð. Á þessu sama ári, 1972, efndu Sameinuðu þjóðirnar til fyrstu stóru ráðstefnunnar um manninn og umhverfi hans í Stokk- hólmi undir kjörorðinu Only one earth. Þar var deilt um veigamikil atriði en þó grunnur lagður að því starfi Sameinuðu þjóðanna sem skil- aði á Ríó-ráðstefnunni 20 árum síðar stóru alþjóðasamningunum um loftslag og lífríki. Margföldun mannfjöldans Ein af stórum breyt- um síðustu 100 árin er gífurleg aukning mannfjölda. Um er að ræða fjórföldun á þess- um tíma, frá 2,5 upp í um átta milljarða þeg- ar á yfirstandandi ári. Þótt fátækasti hluti þjóða heims búi við hungurmörk leggur hann sitt til um við- komu. Stærsti þátt- urinn til að ná sæmilegu jafnvægi í fólksfjölda er tvímælalaust að bæta hvarvetna réttarstöðu kvenna þann- ig að konur öðlist vald yfir eigin lík- ama og fjölskyldustærð. Þrátt fyrir réttarbætur ganga þær umbætur víða alltof hægt og því gera spár um þróun fólksfjölda ráð fyrir að hann vaxi a.m.k. upp í 11 milljarða í lok þessarar aldar sem eykur óhjá- kvæmilega á þann vanda sem við er að fást. Ógnin af hlýnun loftslags Umræðan á síðasta ári um lofts- lagssamning Sameinuðu þjóðanna er mönnum væntanlega í fersku minni. Þar náðist ákveðinn áfangi á 26. árs- fundi samningsaðila í nóvember sl. í Glasgow. Til upprifjunar má nefna að sameiginleg meginniðurstaða þeirra 197 ríkja sem þar áttu hlut að máli var að leitast skuli við að tak- marka meðaltalshlýnun við 1,5°C og að ná kolefnishlutleysi sem víðast fyrir eða um miðja öldina. Ísland hefur sett sér slíkt markmið ekki síðar en árið 2040. Hjá hverju aðild- arríki og alþjóðlega verður horft til þess hvernig til tekst frá ári til árs sem og um þá aðstoð við þróunarríki sem fyrirheit eru gefin um. Veiru- faraldurinn sl. tvö ár hefur vissulega skyggt á alþjóðaumræðu um vand- ann af völdum hlýnunar, en hann minnir hins vegar stöðugt á sig með æ voveiflegri hætti. Eðlilega hafa skuggalegar horfur og óvissa mest áhrif á þá sem nú eru að vaxa úr grasi. Framganga Gretu Thunberg hefur vakið alheims- athygli og hreyfingin Fridays for future minnir reglulega á hvað í húfi er. Upplýsingar sem Fréttablaðið hafði 1. febrúar sl. eftir Kristjáni Vigfússyni, sérfræðingi við við- skiptadeild Háskólans í Reykjavík, um kvíða ungs fólks vegna loftslags- málanna eiga ekki að koma á óvart og þær styðjast við alþjóðlegar kannanir. Hann benti þar réttilega á að stjórnvöld verði hér að bregðast við með auknum krafti og segir: „Við erum kannski að tala um stærsta markaðsbrest sem mannkynið hefur staðið frammi fyrir. Hið kapítalíska hagkerfi ræður ekki við verkefnið. Það er þörf á aukinni miðstýringu. Ríkið þarf að stíga fastar inn og setja sérstaklega fyrirtækjum fast- ari skorður.“ Hraðfara fækkun tegunda Samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni frá 1992 hefur verið nokkuð í skugga út af áhyggjunum vegna þróunar lofts- lagsmála. Þessi samningur fær nú hins vegar æ meiri athygli, ekki síst í ljósi fækkunar og útdauða fjöl- margra tegunda lífvera. Af um átta milljónum lífverutegunda, dýra og plantna er nú um ein milljón talin í útrýmingarhættu vegna áhrifa manna á umhverfi jarðar. Hátt í 200 ríki eru aðilar að þessum samningi, sem Ísland gerðist formlegur aðili að og lögfesti árið 1994. Lengi vel var ákvæðum hans hins vegar lítill gaumur gefinn hérlendis. Árið 2010 samþykktu aðildarríki samningsins heimsmarkmið um net verndaðra svæða og um viðkvæm vistkerfi sem mikilvæg eru fyrir líffræðilega fjöl- breytni. Nýlega voru síðan á 15. ráð- stefnu aðildarríkja þessa samnings (COP-15) sett fram 21 áhersluatriði til að keppa að á næstu árum; verða þau væntanlega til umræðu í Genf í næsta mánuði og til staðfestingar aðildarríkja á framhaldsfundi í Kína síðar á þessu ári. Þessar áherslur varða m.a. víðtækar friðlýsingar á sjó og landi og baráttu gegn dreif- ingu framandi innfluttra tegunda, sem alaskalúpína er þekktast dæmi um hérlendis. Fulltrúar fjögurra ráðuneyta hafa unnið að undirbún- ingi á afstöðu og framlagi Íslands til þessara tillagna. Hefur m.a. verið kallað eftir mati Náttúrufræðistofn- unar og Hafrannsóknastofnunar á stöðu og þróun lífríkis á landi og sjó við Ísland með hliðsjón af samningn- um. Að þessari vinnu þarf að gefa aukinn gaum. Umhverfisvernd og stjórnmálastefnur Saga síðasta mannsaldurs sýnir okkur að ráðandi öfl í flestum ríkjum heims hafa ekki reynst læs á það umhverfi sem máli skiptir fyrir framtíð og velferð mannkyns sem hluta af lífríki jarðar. Hugmyndin um manninn sem herra jarðarinnar, æðri öðrum lífverum, hefur reynst svikult veganesti. Auðsöfnun á kostnað umhverfis og almannahags hefur leitt Homo sapiens í þá blind- götu sem hann nú er staddur í. Þetta blasti við sjáandi einstaklingum fyr- ir 50 árum og nú er ekki seinna vænna að ná áttum. Eftir Hjörleif Guttormsson »Hugmyndin um manninn sem herra jarðarinnar, æðri öðrum lífverum, hefur reynst svikult veganesti. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Mannkyn í tvísýnni glímu við eigin umhverfisáhrif

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.