Fréttablaðið - 08.04.2022, Side 1
6 9 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 8 . A P R Í L 2 0 2 2
Alþjóðadagur
Rómafólks
Merkilegt
einkasafn
Tímamót ➤ 28 Menning ➤ 32
Vinsæli fjórhjóladrifni rafbíllinn
Audi e-tron 50 Pro-line Verð frá 9.690.000 kr.
Stillanleg loftpúðafjöðrun, íslenskt leiðsögukerfi og fjarhitun.
Búnaður bifreiða til sölu getur verið ólíkur þeirri sem sýnd er á mynd.
Laugavegi 172, 105 Rvk. www.hekla.is/audisalur
Eigum nokkra lausa til afhendingar strax
lyaver.is
Heimsending
um land allt
Peysufatadagurinn var hjá nemendum Kvennaskólans í Reykjavík í gær. Stignir voru gamlir dansar og nemendur klæddu sig í peysuföt. Samkvæmt hefð hafa nemendur á öðru ári klætt sig upp á og
tekið þátt í fögnuðinum en vegna Covid-faraldursins eru það nemendur í þriðja bekk sem taka þátt í ár. Þeir misstu af sínum peysufatadegi í samkomutakmörkunum í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
LÖGREGLUMÁL „Það var ekki ætlun
löggjafans að slaka neitt á kröfunum
heldur þvert á móti að auka þær,“
segir Karl Gauti Hjaltason, fyrrver-
andi alþingismaður.
Karl Gauti hefur kært lögreglu-
stjórann á Vesturlandi til ríkissak-
sóknara fyrir að hætta rannsókn á
talningarmálinu frá því í haust.
Karl Gauti segir dómstóla að skera
úr um refsinæmi meintra brota í
kosningum. SJÁ SÍÐU 2
Kærir lögregluna í
talningarmálinu
Einn fjárfestanna sem keyptu
í Íslandsbanka hefur áhyggjur
af verðinu sem ríkið fékk fyrir
hlutinn. Óþarfi hafi verið að
gefa svo mikinn afslátt. Sið-
fræðingur segir fjármálaráð-
herra ekki getað afsakað sig
með því að hafa ekki vitað af
kaupum föður síns.
VIÐSKIPTI Fjárfestar sem tóku þátt
í útboðinu á hlut ríkisins í Íslands-
banka eru margir ósáttir við að listi
yfir kaupendur hafi verið opinber-
aður. Jakob Valgeir Flosason, einn
fagfjárfestanna, sem keypti fyrir
tæpan milljarð króna segir það
skiljanlegt. Hann segist hafa meiri
áhyggjur af verðinu sem ríkið fékk
fyrir hlutinn. Það hafi verið algjör
óþarfi að gefa svona mikinn afslátt.
„Að mínu mati hefði ríkið átt
að selja til fárra en öf lugra kjöl-
festufjárfesta, eins og talað var um
í upphafi,“ segir Jakob.
„Í staðinn voru það aðallega líf-
eyrissjóðirnir sem pressuðu verðið
niður í þessar 117 krónur á hlut.
Ég veit það fyrir víst að ríkið hefði
getað selt á genginu 122 ef þeir hefðu
einbeitt sér að þeim sem voru til-
búnir til að borga meira.“
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra hefur legið undir harðri
gagnrýni síðan listinn var gerður
opinber, en faðir hans Benedikt
Sveinsson er einn af kaupendunum.
„Það fer ákaflega illa saman þegar
um ræðir ráðherrastöðu, fjölskyldu-
tengsl og viðskipti, sérstaklega
þegar um ræðir sölu ríkiseigna sem
sonur kaupanda heldur utan um,“
segir Henry Alexander Henrysson
siðfræðingur. Henry segir að Bene-
dikt hefði átt að vita að ekki væri
við hæfi að kaupa bréfin. Bjarni geti
ekki heldur afsakað sig með því að
hann hafi ekki vitað af kaupunum.
Bjarna hafi borið að ræða við
pabba sinn og nánustu fjölskyldu um
að láta tækifærið eiga sig, kaupa ekki
bréf í bankanum vegna kringum-
stæðna. Bjarni beri því vissa ábyrgð.
Í þinginu er kallað eftir rannsókn
á málinu en þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins segist ekki hræðast hana.
SJÁ SÍÐU 6
Fjárfestarnir ósáttir við nafnbirtingu
Karl Gauti
Hjaltason,
fyrrverandi
alþingismaður
Ég veit það fyrir víst að
ríkið hefði getað selt á
genginu 122 ef þeir
hefðu einbeitt sér að
þeim sem voru tilbúnir
til að borga meira.
Jakob Valgeir Flosason,
fjárfestir