Fréttablaðið - 08.04.2022, Blaðsíða 32
Hann einbeitti sér að
því að eiga verk eftir
sem flesta listamenn,
var ekki að fókusa á
ákveðna stefnu eða
ákveðið tímabil heldur
á verk frá 1900 til
dagsins í dag.
Hjá Fold uppboðshúsi á Rauð-
arárstíg stendur yfir vefupp-
boð á verkum úr einkasafni
breska listaverkasafnarans og
fyrrverandi kjörræðismanns
Íslands í Hong Kong, Anthony
J. Hardy. Uppboðinu lýkur
11. apríl.
Afar fágætt er að boðið sé upp safn
eins manns, en Anthony Hardy hefur
safnað íslenskri myndlist frá árinu
2006 og telur safn hans í heild meira
en 250 verk. Sá hluti verkanna sem
nú verður boðinn upp og er til sýnis
var á lokaðri sýningu í Gallerí Fold
sumarið 2019.
„Anthony ákvað að hætta að safna
listaverkum á áttræðisafmælisdegi
sínum árið 2019. Þá fannst honum
komið nóg, enda söfnunin búin að
standa í áratugi,“ segir Jóhann Ágúst
Hansen, framkvæmdastjóri Gall-
erís Foldar. Spurður hvers vegna
Anthony Hardy hafi byrjað að safna
íslenskri myndlist segir Jóhann:
„Hann var kjörræðismaður Íslands í
Hong Kong og hefur alltaf haft mik-
inn áhuga á að kynna Ísland fyrir
íbúum Hong Kong. Við það bætist
að hann er mikill listaverkasafnari
og íslenska safnið er bara brotabrot
af heildarsafni hans.“
Kynning á íslenskri list
Hardy keypti um 90 prósent íslensku
verkanna hjá Gallerí Fold. „Hann
gekk hér inn og þannig kynntumst
við honum. Árið 2006 byrjaði hann
að safna íslenskum verkum fyrir
alvöru því hann vildi setja upp stóra
sýningu í Hong Kong til að kynna
íslenska list. Hann einbeitti sér að
því að eiga verk eftir sem flesta lista-
menn, var ekki að fókusa á ákveðna
stefnu eða ákveðið tímabil heldur
á verk frá 1900 til dagsins í dag, svo
íbúar í Hong Kong gætu séð sem fjöl-
breyttasta mynd af íslenskri mynd-
list.
Anthony hefur gott auga fyrir
myndlist og verandi útlendingur
sem hefur ekki alist upp við verk
íslenskra listamanna þá kemur
hann fordómalaus að borðinu. Hann
keypti stundum myndir sem við
hefðum kannski ekki mælt með, en
vegna þess hversu glöggt auga hann
hefur fyrir myndlist þá eru verkin
sem hann keypti mjög góð, þótt við-
komandi listamenn séu ekki í hópi
virtustu listamanna okkar.“
Haldnar hafa verið tvær stórar
sýningar á verkum úr safneign Har-
Glöggt auga
Hardys
Jóhann Ágúst
Hansen
segir Hardy hafa
glöggt auga fyrir
myndlist.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Meðal mynda
er verk Kristjáns
Davíðssonar af
Halldóri Lax-
ness.
Verkin á upp-
boðinu eru
helmingur
af íslenskum
verkum í eigu
Hardys.
Anthony Hardy er sagður ljúfur og
blíður maður. MYND/AÐSEND
kolbrunb@frettabladid.is
Bubbi Morthens fær sextíu heldri
bakraddasöngvara á laugardaginn
þegar hann stígur á svið í Lang-
holtskirkju með Senjórítukórnum.
Tónleikunum hefur verið frestað
þrisvar sinnum en allt er þegar
þrennt er og nú er lag. Bubbi tekur
nokkur lög með kórnum en einn-
ig syngur kórinn lög eftir hann en
án hans. Kórstjóri er Ágota Joó og
eru útsetningarnar aðallega eftir
hana og hljómsveitarstjórann, Vil-
berg Viggósson. Með honum leika
Róbert Þórhallsson á bassa og Einar
Scheving á trommur.
Tónleikarnir verða laugardaginn
9. apríl og hefjast klukkan 16. ■
Bubbi með Senjórítum
Hinn eini sanni
Bubbi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
dys. Sú fyrri var haldin í Hong Kong
haustið 2013. Gefin var út vegleg
bók með verkunum á sýningunni
Straumar Íslands þar sem list-
fræðingurinn Aðalsteinn Ingólfs-
son skrifaði um safneign Hardys.
Síðari sýningin var haldin í Gallerí
Fold árið 2019 og þá stóð galleríið
fyrir útgáfu á glæsilegri bók með
myndum frá sýningunni Straumar
Íslands II.
Myndir í Hong Kong
Myndirnar sem eru nú á uppboði
í Gallerí Fold eru helmingurinn af
safni Anthony Hardy. Hinn helming-
urinn er í Hong Kong og er einnig til
sölu. „Við erum að vandræðast með
að koma þeim verkum til Íslands,
þetta eru rúmlega hundrað verk sem
þyrfti að borga virðisaukaskatt af og
það er veruleg fjárhæð. Það stendur
í vegi fyrir að við fáum verkin heim
eins og er,“ segir Jóhann. „Þarna eru
meðal annars þriggja metra breiðar
sjómannamyndir eftir Scheving,
f lott og verðmæt verk sem eiga
heima á Íslandi.“
Spurður hvernig maður Hardy sé
segir Jóhann: „Ljúfur er fyrsta orðið
sem kemur upp í hugann. Hann er
sterkefnaður og hefur setið til borðs
með kóngafólki og frægu fólki en
sem karakter er hann ljúfur og blíður
maður sem ber hag fjölskyldu sinnar
og Íslands fyrir brjósti.“
Þess má geta að ljósmyndir af
öllum verkunum á uppboðinu má
finna í bókinni Straumar Íslands II.
Eintak af bókinni fylgir með hverri
seldri mynd á uppboðinu. ■
kolbrunb@frettabladid.is
Á morgun, laugardaginn 9. apríl,
kl. 14.00 er opnun á einkasýningu
Þorra Hringssonar í Gallerí Fold.
Þorri er fæddur árið 1966. Hann býr
og starfar bæði í Reykjavík og Aðal-
dal. Hann stundaði nám í Myndlist-
arskóla Reykjavíkur, Myndlista- og
handíðaskóla Íslands og við Jan Van
Eyck Akademíuna í Maastricht, Hol-
landi. Hann hefur tekið þátt í fjölda
einka- og samsýninga hér heima og
erlendis undanfarin 30 ár. ■
Þorri í Gallerí Fold
Eitt af verkum Þorra á sýningunni.
20 Menning 8. apríl 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 8. apríl 2022 FÖSTUDAGUR