Fréttablaðið - 08.04.2022, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 08.04.2022, Blaðsíða 19
Það virðist ekkert lát vera á auknum vinsældum rafíþrótta. Fleiri og fleiri íþrótta- félög hafa tekið upp á því að bjóða upp á faglegt rafíþróttastarf. Rafíþróttir njóta sívaxandi vinsælda og ELKO hefur sýnt uppbyggingu raf- íþróttasenunnar á Íslandi ötulan stuðning. Þá hefur ELKO gefið út nýjan fræðslu- bækling til að efla heil- brigðan lífsstíl samhliða rafíþróttaiðkun. ELKO hefur lagt ríka áherslu á að bjóða upp á breitt vöruúrval af leikjatölvum og jaðarbúnaði til að geta mætt þörfum bæði byrjenda og þeirra sem eru lengra komnir, segir Arinbjörn Hauksson, markaðsstjóri ELKO. Hann segir ELKO hafa komið að uppbyggingu rafíþróttasenunnar í gegnum sam- starfssamninga sem stuðla að fag- legu rafíþróttastarfi og umfjöllun. Einnig hefur ELKO unnið mikið með rafíþróttafélögum þar sem þau geta bæði keypt eða leigt þann búnað sem þarf til þess að koma upp faglegu rafíþróttastarfi. „Hjá ELKO er hægt að fá allan nauðsyn- legan búnað til að spila tölvuleiki, sama á hvaða tölvu fólk vill spila og hvort það er til afþreyingar eða rafíþróttaiðkunar.“ Ekkert lát á vinsældum Arinbjörn segir það hafa verið virkilega gaman að fylgjast með því hversu faglega hafi verið staðið að uppbyggingu rafíþrótta á Íslandi undanfarin ár. „Það virðist ekkert lát vera á auknum vin- sældum rafíþrótta. Fleiri og fleiri íþróttafélög hafa tekið upp á því að bjóða upp á faglegt rafíþróttastarf og sjáum við ekki annað en að vin- sældir rafíþrótta fari vaxandi með hverju árinu, hvort sem horft er til fjölda iðkenda, áhorf á rafíþrótta- eða tölvuleikjatengt efni eða sölu á vörum í tengslum við rafíþróttir.“ ELKO stuðlar að faglegri uppbyggingu rafíþrótta Aðkoma ELKO að rafíþróttum liggur ekki eingöngu í vöruúr- vali og sölu heldur hefur ELKO lagt ríka áherslu á að styðja við uppbyggingu rafíþrótta með sam- starfssamningum í tengslum við mótahald, fræðslu og skemmtiefni. „ELKO hefur verið stoltur bakhjarl Vodafone deildarinnar frá upp- hafi, nú Ljósleiðaradeildin, ásamt því að við höfum styrkt afþrey- ingar- og skemmtiþætti á borð við Gametíví og hlaðvarpsþætti hjá tölvuleikjaspjallinu svo eitthvað sé nefnt. ELKO kom einnig að því að setja á laggirnar firmamót í rafíþróttum síðastliðið haust sem heppnaðist virkilega vel og skilaði sér í skemmtilegu hópefli fyrir tölvuleikjaspilara innan fjölda fyrirtækja,“ segir Arinbjörn. ELKO og Samfés gerðu með sér spennandi samstarfssamning til tveggja ára á síðasta ári sem snýr að faglegri uppbyggingu á rafíþróttastarfi Samfés. „Þetta er mjög spennandi samstarfssamn- ingur sem ýtir undir frekari upp- byggingu á rafíþróttastarfi Samfés. Samstarfið er kannski fyrst að fara á flug núna um helgina eftir Covid með stóru og veglegu raf- íþróttamóti á vegum Samfés. Sama hvað þú spilar – við spilum með þér  Arinbjörn Hauksson, markaðsstjóri ELKO. MYND/AÐSEND Viðskiptavinum gefst kostur á að prófa rafíþróttabúnað í ELKO í LIndum. MYND/AÐSEND ELKO býður upp á ótrúlegt úrval af rafíþrótta- vörum. Bæklingurinn er unninn í samstarfi við Samfés og Rafíþrótta- samtökin en Arnar Einarsson, fræðslustjóri Rafíþróttasam- takanna og raf- íþróttaþjálfari hjá XY, var fenginn til þess að vinna efni bæklingsins. Nútímaorðabók Tölvuleikjaspilara inniheldur mörg skemmtileg orð. Skannaðu QR-kóða til að finna fræðslubækling ELKO. Samhliða mótinu mun ELKO gefa út veglegan fræðslubækling í tengslum við heilbrigða nálgun á rafíþróttum.“ Fræðslubæklingur fyrir foreldra og iðkendur Fræðslubæklingur ELKO, Raf- íþróttir og heilbrigður lífsstíll, inniheldur fróðleik fyrir bæði tölvuleikjaspilara og foreldra með áherslu á heilbrigða nálgun við rafíþróttir. „Við leggjum mikið upp úr því að vera samfélagslega ábyrgt fyrirtæki og viljum leggja okkar af mörkum til að styðja við faglega uppbyggingu rafíþrótta- starfs. Í gegnum samstarf okkar við fagaðila innan senunnar sáum við tækifæri á að nýta okkar miðla til að koma áfram fróðleik og upp- lýsingum í tengslum við heilbrigða nálgun við rafíþróttir og tölvu- leikjaspilun.“ Með því að auka skilning á efninu má stuðla að jákvæðum samskiptum foreldra og iðkenda en í bæklingunum má finna fróðleik um áhrif og styrkleika rafíþróttafólks ásamt drögum að rafíþróttasáttmála fjölskyldunnar og nútímaorðabók tölvuleikja- spilara, svo eitthvað sé nefnt, segir Arinbjörn. „Bæklingurinn er aðgengilegur með því að skanna QR-kóða sem fylgir greininni en bæklingurinn fer einnig í fría dreifingu í verslunum ELKO á næstu dögum.“ ■ Nútímaorðabók Tölvuleikjaspilara Hér má sjá nokkur orð úr orða- bókinni (sjá meðfylgjandi mynd af orðabókinni): ■ BRB: Be Right Back ■ GG: Goog Game ■ BM: Bad Manners ■ Noob: Nýliði ■ ROFL: Rolling on the Floor Laughing Sjá fleiri dæmi í Fræðslubækl- ing ELKO á elko.is/bladid 10% afsláttur af alienware vörum KAUPUAKI: 2 klst. tölvuleikjaspilun í Arena kynningarblað 3FÖSTUDAGUR 8. apríl 2022 R AFÍÞRÓTTIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.