Fréttablaðið - 08.04.2022, Blaðsíða 4
borgarleikhus.is F Y R R
V E R
A
N D I
Frumsýning
á morgun
Dómsmálaráðherra segir
markmið sameiningar sýslu-
mannsembætta ekki að færa
núverandi starfsemi undir eitt
þak á höfuðborgarsvæðinu.
Hann vill að sveitarstjórnar-
fólki auðnist að sjá hin miklu
tækifæri í málinu. Bæjarstjóri
Vestmannaeyja segir fólk í
Eyjum á móti breytingunni.
gar@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA „Nú reynir á íbúa og
sveitarstjórnir um land allt, að sjá
og hagnýta öll tækifærin sem felast
í þeim óumflýjanlegu breytingum
sem eru að verða á samfélaginu,“
segir Jón Gunnarsson dómsmála-
ráðherra í bréfi til Sambands
íslenskra sveitarfélaga um fyrir-
hugaða sameiningu allra níu sýslu-
mannsembætta í eitt.
„Með þessu bréfi vil ég freista þess
að vekja athygli ykkar sveitarstjórn-
armanna um allt land á þessu mikil-
væga verkefni til að tryggja að ykkur
auðnist að sjá þau miklu tækifæri
sem felast almennt í stafrænni veg-
ferð hins opinbera og þá sérstaklega
fyrirhuguðum breytingum á lands-
byggðinni,“ segir Jón Gunnarsson.
„Núverandi stofnanauppbygging
með níu aðskildum umdæmum og
sjálfstæðum forstöðumönnum er
hamlandi í þeirri vegferð að bæta
þjónustuna við almenning. Til að
festa framsækna og öfluga þjónustu
ríkisins í heimabyggð, þarf að ráðast
í viðamiklar breytingar,“ segir Jón.
Að því er segir í bréfi Jóns er
markmiðið að efla núverandi starf-
semi með öf lugum og nútíma-
legum þjónustueiningum. „Óbreytt
skipurit með níu umdæmum, sem
afmörkuð eru með ósýnilegum
múrum með níu stjórnendum í
níu sjálfstæðum stofnunum fer illa
saman við þessi markmið,“ ítrekar
hann í bréfi sínu.
„Til að eyða öllum vafa vil ég taka
það skýrt fram að markmið þeirra
aðgerða sem hér hafa verið boð-
aðar eru ekki að færa núverandi
starfsemi, sem sinnt er á 27 stöðum
um land allt, undir eitt þak á höfuð-
borgarsvæðinu. Þvert á móti er
markmiðið að efla núverandi starf-
semi og styrkja þær starfsstöðvar
sem eru að þjónusta almenning um
land allt.
Kveður Jón breytingarnar „hvorki
hraðsoðnar né byggja á lítt ígrund-
uðum hugmyndum“ heldur á vönd-
uðum greiningum og úttektum.
Stafræn vegferð sé stærsta og mest
spennandi byggðamál samtímans.
Undanfarin ár hafi ríkið verið á
fleygiferð í innleiðingu á stafrænni
þjónustu. „Samfélagslegar aðstæð-
ur og tækninýjungar gera auknar
kröfur til hins opinbera og kalla á
grundvallarbreytingar á skipulagi
sýslumannsembættanna.“
Bréf dómsmálaráðherra var lagt
fram í bæjarráði Vestmannaeyja í
gær.
„Bæjarráð ítrekar fyrri afstöðu
sína til málsins og leggst alfarið
gegn þessum breytingum. Bæjar-
ráð mun fylgja þeirri afstöðu eftir
á þessum fundi með ráðherra,“
undirstrikaði bæjarráðið í bókun.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri muni
eiga fund með dómsmálaráðherra
2. maí.
„Við erum ósátt við þessar breyt-
ingar. Þetta er þriðji ráðherra Sjálf-
stæðisflokksins fer fram með þessar
nánast sömu tillögur sem við teljum
að veiki sýslumannsembættið hér
í Eyjum,“ segir Íris bæjarstjóri sem
væntir skýringa á fundi sínum með
dómsmálaherra. n
Sameinar ekki starfsemi sýslumanna
á einum stað á höfuðborgarsvæðinu
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri segir breytingu myndu veikja sýslumannsembættið í Vestmannaeyjum. MYND/AÐSEND
Jón Gunnars-
son, dómsmála-
ráðherra
kristinnhaukur@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Ásmundur Frið-
riksson, þingmaður Sjálfstæðis-
f lokksins, hefur aftur lagt fram
þingsályktunartillögu um lögleið-
ingu kannabislyfja í lækningaskyni.
Samkvæmt tillögunni eiga heil-
brigðis-, menningar- og viðskipta-
ráðherra að setja á fót starfshóp um
frumvarp um málið.
Sams konar tillaga Ásmundar í
febrúar í fyrra vakti nokkra athygli,
einkum hjá þingflokki Pírata sem
töldu Ásmund óvæntan banda-
mann í málinu. Hann hefur til þessa
verið talinn með íhaldssamari þing-
mönnum.
Ásmundur er ekki einn með til-
löguna heldur styðja hann fjórir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins. n
Ásmundur leggur
aftur fram tillögu
um kannabislyf
Ásmundur Frið-
riksson, þing-
maður Sjálf-
stæðisflokksins
bth@frettabladid.is
ALÞINGI „Mér finnst mestu skipta
að við byggjum upp traust á banka-
sölu, svona ferli verður að vera
hafið yfir tortryggni. Ég hef meiri
áhyggjur af því heldur en erfiðleik-
um innan ríkisstjórnarinnar,“ segir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar.
Eigi að síður segir hún blasa við að
ríkisstjórnin sé í meiri erfiðleikum
á skömmum tíma en samanlagt allt
síðasta kjörtímabil. Hún hafi klúðr-
að furðu mörgu á skömmum tíma.
Ráðherrar VG hljóti að sitja og horfa
í forundran á samstarfsfólk sitt.
Hvað varði Íslandsbankasöluna
segir Þorgerður Katrín óendanlega
sárt að horfa upp á tortryggni sem
nú hafi skapast.
„Það væri best upp á traustið
að þingið gerði rannsókn á þess-
ari sölu, enda er Alþingi með víð-
tækari heimildir til rannsóknar en
Ríkisendurskoðun,“ segir Þorgerður
Katrín. n
Klúðrað mörgu á
skömmum tíma
gar@frettabladid.is
DÓM SM ÁL Lögmenn tónlistar-
fyrirtækjanna Warner og Universal
sendu engin gögn til Hæstaréttar
Bandaríkjanna vegna lagastuldar-
máls Jóhanns Helgasonar. Um þetta
tilkynntu lögmennirnir daginn áður
en frestur til þess rann út um mán-
aðamótin. Mun það ekki óalgengt
í slíkum málum á því stigi sem mál
Jóhanns er nú.
Eftir að dómstóll í Los Angeles
vísaði frá máli Jóhanns vegna meints
stuldar á laginu Söknuði og áfrýj-
unardómstóll staðfesti þá frávísun,
skaut lögmaður Jóhanns málinu til
Hæstaréttar. Telur lögmaðurinn
málið eiga þangað erindi því áfrýj-
unardómstólar í landinu notist nú
við ólíkar aðferðir við mat í laga-
stuldarmálum. Hæstiréttur þurfi að
skera úr um hvaða aðferð skuli beitt.
Eins og áður hefur komið fram
er alls óvíst að Hæstiréttur fallist á
að taka mál Jóhanns til efnismeð-
ferðar. Gefið hefur verið út að málið
verði skoðað 22. apríl næstkomandi.
Þá gæti rétturinn til dæmis ákveðið
að hafna því að taka málið fyrir eða
gefið út að það verði athugað nánar
og þá hugsanlega óskað eftir við-
brögðum frá lögmönnum Universal
og Warner.
Norski tónlistarmaðurinn Rolf
Løvland sem sendi frá sér lagið You
Raise Me Up árið 2001 sem Jóhann
heldur fram að sé stæling á lagi hans
Söknuði frá 1977 hefur ekki gripið til
varna í dómsmálinu vestan hafs þótt
honum hafi verið stefnt ásamt tón-
listarfyrirtækjunum. n
Andstæðingar Jóhanns skila auðu til Hæstaréttar
Jóhann Helgason tónlistarmaður.
4 Fréttir 8. apríl 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ