Fréttablaðið - 08.04.2022, Blaðsíða 14
14 Íþróttir 8. apríl 2022 FÖSTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 8. apríl 2022 FÖSTUDAGUR
Það er ekki
eins og
Kristinn
Freyr sé að
komast á
síðasta
söludag.
Valur
losaði sig
við Kristin
vitandi að
keppinaut-
ar myndu
klófesta
hann.
n Lykilmaðurinn
n Vörn
n Miðja
n Fylgstu með ▲ Komnir/farnir ▼
n Albert segir
n Sókn
n Þjálfari
FH hafnar í 3. sæti
n Spá Fréttablaðsins
1. sæti ?
2. sæti ?
3. sæti FH
4. sæti Breiðablik
5. sæti KR
6. sæti Stjarnan
7. sæti ÍA
8. sæti Leiknir R
9. sæti KA
10. sæti ÍBV
11. sæti Keflavík
12. sæti Fram
Undir stjórn Ólafs Jóhannes-
sonar eru FH-ingar til alls líkleg-
ir. Hafa spilað vel í vetur og hafa
bætt spilamennsku sína frá leik
til leiks. Engin Evrópukeppni
mun trufla FH í ár sem gæti
reynst liðinu vel en hópurinn
er nokkuð þunnskipaður. Ef allt
smellur og lykilmenn hrökkva
í gang gæti FH unnið titilinn.
Kristinn Freyr og Steven Lennon
þurfa að tengja saman.
Kristinn Freyr
Sigurðsson
Kristinn Freyr Sigurðsson er
mættur í Kaplakrika en Valur tók
þá ákvörðun að framlengja ekki
samning hans síðasta haust.
Margir velta því nú fyrir sér hvern-
ig Valur gat tekið þá ákvörðun að
leyfa Kristni að fara vitandi það
að keppinautar liðsins myndu
klófesta hann.
Kristinn blómstraði í Val undir
stjórn Ólafs Jóhannessonar og
þeir leiða nú saman hesta sína í
Hafnarfirði. Ólafur er með meist-
aragráðu í að ná því besta fram
í leikmönnum og allt bendir til
þess að Kristinn muni blómstra
hjá FH í sumar.
Hann hefur verið frábær í vetur,
sér völlinn vel og sendingar hans
eru iðulega fullkomlega tíma-
settar. Kristinn er í þeim gæða-
flokki að hann ætti að keppa
að því að verða besti leikmaður
Bestu deildarinnar í ár.
Albert Brynjar
Ingason
Gengi síðustu sex tímabil
2016 1. sæti | 2017 3. sæti | 2018 5. sæti | 2019 3. sæti | 2020 2. sæti | 2021 6. sæti
n Íslandsmeistarar 2004, 2005, 2006, 2008, 2009, 2012, 2015, 2016 n Bikarmeistarar 2007, 2010
▲ Kristinn Freyr Sigurðsson
▲ Máni Austmann Hilmarsson
▲ Finnur Orri Margeirsson
▲ Ástbjörn Þórðarson
▲ Haraldur Einar Ásgrímsson
▼ Jónatan Ingi Jónsson
▼ Hörður Ingi Gunnarsson
▼ Guðmann Þórisson
▼ Pétur Viðarsson
▼ Hjörtur Logi Valgarðsson
▼ Morten Beck Andersen
Það er eins gott fyrir knattspyrnu-
áhugafólk að fylgjast vel með
Loga Hrafni Róbertssyni í sumar
því tækifærin verða ekkert mikið
fleiri eftir þetta tímabil.
Miðjumaðurinn öflugi sló í gegn
á síðustu leiktíð og verður í lykil-
hlutverki á miðsvæði FH, hefur
gríðarlega hlaupagetu en er einnig
góður á boltann. Erlend lið hafa
sýnt þessum 17 ára gamla leik-
manni mikinn áhuga og skal engan
undra.
FH-ingar vonast til þess að geta
haldið Loga í sínum herbúðum
út tímabilið en það er viðbúið að
erlend félög láti til skarar skríða
í júlí þegar félagaskiptaglugginn
opnast. Þrátt fyrir ungan aldur er
Logi einn af lykilmönnum FH.
Smiðurinn geðþekki, Ólafur
Jóhannesson, er að smíða
spennandi lið í Kaplakrika.
Enginn skal efast um að Ólafur
er í hefndarhug eftir að Valur
rak hann úr starfi haustið 2019
og hann ætlar sér að landa þeim
stóra með FH til að sýna þeim
hvar Davíð keypti ölið.
Ólafur er klókur þjálfari og
með Sigurbjörn Hreiðarsson
sem aðstoðarmann eru þeir
öflugt teymi. Ólafur nær vel til
leikmanna og flækir fræðin ekki
um of, þrátt fyrir að vita meira
um fótbolta en flestir. Lið Ólafs
spila skemmtilegan fótbolta.
Með alla þá gæðaleikmenn sem
FH hefur úr að spila ætti FH að
geta barist um dolluna.
Gunnar Nielsen stendur vaktina
í markinu en upprisa hans hefur
verið áhugaverð. Markvörður-
inn missti stöðu sína undir
stjórn Ólafs Kristjánssonar en
hefur nú gengið í endurnýjun
lífdaganna.
Ljóst er að Ólafur Jóhannes-
son vill bæta miðverði í hópinn
en eins og staðan er í dag verða
það Finnur Orri Margeirsson og
Guðmundur Kristjánsson sem
standa munu vaktina í hjartanu.
FH keypti hægri bakvörðinn
Ástbjörn Þórðarson frá Keflavík
á dögunum og hefur hann
smollið eins og flís við rass hjá
FH. Vinstra megin er svo Ólafur
Guðmundsson sem keyptur
var frá Breiðabliki í fyrra. Ólafur
hefur sýnt miklar framfarir og
gert vel í Hafnarfirði.
Á miðsvæði FH er nokkur
breidd og ef mark má taka á
undirbúningstímabilinu verður
einn launahæsti leikmaður
liðsins, Björn Daníel Sverrisson,
á meðal varamanna í upphafi
móts. Logi Hrafn Róbertsson
kom sterkur inn í liðið á síðustu
leiktíð og hefur vaxið sem leik-
maður í vetur.
Með Loga á miðjunni verður
að öllum líkindum Eggert
Gunnþór Jónsson en hann
hefur spilað stærstan hluta af
mínútum FH á undirbúnings-
tímabilinu.
Kristinn Freyr Sigurðsson
hefur svo komið frábærlega inn
í liðið og matað sóknarmenn
félagsins af stakri snilld. Krist-
inn gæti verið lykill að því að FH
berjist um sigur í deildinni.
FH-ingar urðu fyrir blóðtöku á
dögunum þegar Jónatan Ingi
Jónsson var seldur til Noregs.
Ólafur Jóhannesson vill bæta
við kantmanni áður en mótið
fer af stað vegna þess.
Matthías Vilhjálmsson fær
það hlutverk að leiða línuna,
framherjinn öflugi þarf þó að
sýna betri frammistöðu en á
síðasta ári.
Steven Lennon virkar svo í
fínu formi komandi inn í mótið,
Skotinn hefur í áraraðir verið
einn skemmtilegast og besti
leikmaður deildarinnar. Á hinum
kantinum verður það svo Oliver
Heiðarsson sem fær traustið til
að byrja með. Oliver er kröftug-
ur leikmaður sem gæti kallað
það besta fram í Kristni ef Oliver
ógnar inn fyrir línu andstæðing-
anna. Staðan gæti breyst ef FH
bætir við sóknarmanni.
Í fyrstu leikjum undirbúningstíma-
bilsins fannst mér þetta ekki sann-
færandi hjá FH. Þeir voru hægir en
þeir eru það lið sem hefur vaxið
hvað mest á undirbúningstíma-
bilinu. Í hverjum leik hefur maður
séð bætingu, það er meiri hraði í
leik þeirra. Eftir að Kristinn Freyr
komst inn í þetta hefur það breytt
miklu, hann gefur liðinu rosalega
mikið. Rætt hefur verið um að
þá vanti miðverði í hóp sinn en í
vetur hafa þeir lítið fengið á sig af
mörkum.
Það er í raun alveg ótrúlegt að
Valur hafi ekki einu sinni boðið
Kristni Frey nýjan samning. Það
er ekki eins og hann sé að komast
á síðasta söludag, Kiddi er á besta
aldri. Hann gefur mikið af sér, hann
er leiðtogi þarna í FH. Kannski var
það samt farsæl lausn fyrir hann
að skipta um umhverfi og fá nýja
áskorun. Ég held að koma hans
muni líka gera mikið fyrir Matthías
Vilhjálmsson í fremstu línu. Matti
var á síðasta ári að koma djúpt á
völlinn til að komast í boltann en
Kristinn á að sjá um það að mata
Matta í sumar. Ég held að Matti
muni skora meira en í fyrra þar sem
hann skoraði sjö deildarmörk.
Þeir þurfa að bæta við sig mið-
Koma Kristins mun verða til þess að Matthías skorar meira
verði og hægri kantmanni. Það
er blóðtaka fyrir þá að missa Jón-
atan Inga Jónsson svona skömmu
fyrir mót. Þrátt fyrir að vera oft í
krummafót upp við markið þá var
mikil ógn af Jónatani og hann skap-
aði mikinn usla í vörn andstæð-
inganna. Þá vantar svo miðvörð
en miðjumennirnir Guðmundur
Kristjánsson og Finnur Orri hafa
spilað þarna í vetur.
Helsti sty rk leik i FH er svo
Ólafur Jóhannsson og hans hund-
tryggi aðstoðarmaður, Sigurbjörn
Hreiðarsson. Þeir tveir færa liðinu
mikið, Óli er þarna til að berjast
um þá titla sem í boði eru. Þeir hafa
komið með stemmingu í kringum
FH sem hefur vantað síðustu ár.
Þeir eru það sem þessi hópur þurfti.
Það er stígandi í liðinu og góð liðs-
heild. Breiddin er ekki sú mesta og
því gætu meiðsli komið sér illa fyrir
FH í sumar. n
Ólafur Jóhannesson er refur sem kann að vinna titla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK