Fréttablaðið - 08.04.2022, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 08.04.2022, Blaðsíða 11
Guðmundur Steingrímsson n Í dag Sígildir sigurvegarar Risa Eitt Sett var nýlega valið besti nýliðinn á Nammitips. Eitt Sett er að sjálfsögðu líka til sem unaðslegt páskaegg. Annar sigurvegari er okkar sígilda og ómótstæðilega Nóa Kropp sem var valið mest ávanabindandi nammið á Nammitips. Hvort eggið ætlar þú að fá þér? N Ó I SÍ R Í US Nú þegar önnur afturrúðan á bíl okkar hjóna, Renault Mégane árgerð 2008, er föst niðri og það er frost í lofti – og því ekki eins gaman að keyra með rúðu opna eins og ella gæti verið á góðum sumardegi eða í hlýrra landi – get ég ekki varist þeirri hugsun að það sé eitthvað til í því að bílakostur heimilisins sé ekki eins og best verður á kosið. Þessarar hugsunar gætti einnig í vetur þegar sú hin sama bifreið tók upp á því að spóla í slabbi upp Hellisheiðina, rétt eftir Bláfjallaaf- leggjarann, þar sem ég hefði haldið að hallinn í landslaginu væri alls ekki svo mikill að nokkur bifreið myndi spóla. Þegar það gerðist svo nokkru síðar að rúðuþurrkurnar og framljósin biluðu á sama tíma í hellidembu í myrkri úti á landi, þá horfðum við hjónin á hvort annað og hugsuðum hið sama: Við höfðum náð ótvíræðum lágpunkti í okkar bílamálum. Þessar vangaveltur vegna bíla- vandræða þróuðust smám saman í vikunni í vissar vangaveltur um stöðu mína í samfélaginu. Einkum hef ég velt fyrir mér hvar ég mögu- lega stend í samanburði við þann hóp Íslendinga sem boðið var að kaupa á sérstökum vildarkjörum hluti í Íslandsbanka á dögunum og græða á því umsvifalaust nokkurt fé. Rétt í þann mund er ég reyndi að toga bílrúðuna árangurslaust upp með valdi núna einhvern morguninn, skaust sú hugsun upp í hugarhvelið, án efa undir áhrifum frá ferskum fréttaflutningi af almennri óánægju með áðurnefnda hlutabréfasölu, að ég væri alveg örugglega ekki það sem kallað er fagfjárfestir. Fjárfestingar heim- ilisins í bílum benda til þess að ég tilheyri ekki þeim hópi. Ég hlýt að vera áhugafjárfestir. Kaup mín á hlutum eru ekki fagleg. Reyndar var bifreiðin mjög ódýr, þannig að mér er kannski ekki alls varnað. Eftir stendur samt hin eðli- lega vangavelta: Ef maður keyrir um á spólandi Renault 2008 með bilaða rúðu, getur maður þá talist fagfjár- festir? Hvað merkir þetta hugtak? Hvað þarf maður að gera til þess að tilheyra þessum hópi? Ég hef heyrt þetta hugtak í gegnum tíðina. Aldrei hef ég samt spáð í það mikið fyrr en nú. Mínar köldustu grunsemdir eru þær, að hugtakið sé einfaldlega notað til þess að gera ráðandi öflum kleift að aðskilja ákveðinn hóp frá öðrum þegar kemur að því að sýsla með fé. Lengi hefur það loðað við svokölluð kapítalísk markaðssamfélög, að eigi fólk peninga – eða skuldi mikla peninga (gildir einu) – sé stefnan sú, meðvitað eða ómeðvitað, að gera því fólki mögulegt að eignast sem mest af meiri peningum. Ríkir verða ríkari. Hugtakið „fagfjárfestir“ er upplagt í þessu skyni. Ef manneskja á mikið fé, eða sýslar auðsýnilega með mikið fé – hvort sem hún á það eða ekki – lítur kerfið svo á að þar fari kunnáttumanneskja með fé. Bílrúður eru þar allar í lagi og ekkert spólerí á Hellisheiðinni. Ég gúgglaði. Á heimasíðu eins fjárfestingarbankans gefur að líta skilgreiningu á því hvað er að vera fagfjárfestir. Þar stendur: „Með fag- fjárfestum er átt við viðskiptamenn sem búa yfir reynslu, þekkingu og sérfræðikunnáttu til að taka sjálfir ákvarðanir um fjárfestingar og meta áhættuna sem þeim fylgir.“ Nú er það svo, eins og hér hefur verið ýjað að, að sterkur þráður í mér er reiðubúinn að taka undir það, sérstaklega í þessari viku, að ég sé engan veginn fær um að taka sjálfur ákvarðanir um fjárfestingar. Hins vegar verð ég að segja að það er ákaflega sterkur þráður í mér einnig sem finnst þetta fagfjárfestatal ótta- legt bla. Listi var birtur. Hverjir fengu að kaupa. Þar eru alls konar nöfn. Þegar grannt er skoðað sést að undir alls konar fánum sigla þar peningamenn jafnvel með allt niðrum sig út af mútumálum og öðru, og slóð óráðsíu, sérstaklega eftir að þeim tókst þó nokkrum í fagmennsku sinni í samfloti með öðrum að setja hér heilt fjármála- kerfi á hliðina fyrir um áratug eða svo. Málið er það að mér finnst ég skilja ágætlega hugtökin „lang- tímafjárfestir“ og meira að segja „kjölfestufjárfestir“. Þá er leitað að fjárfestum sem vitað er að muni hlúa að fjárfestingunni til langs tíma, og fylgja eigninni í gegnum súrt og sætt. En „fagfjárfestir“, hins vegar, sérstaklega eftir að þessi listi var opinberaður, það er hugtak sem óneitanlega birtist mér, ekki síst vegna sögunnar, sem merkingar- laust orðskrípi. Hún er hins vegar lúmsk og sterk þessi tilhneiging kapítalískra markaðssamfélaga til að vilja, þrátt fyrir allt tal um jöfnuð, gera hina ríku ríkari. Það er ætíð stefnan. Þetta hugsaði ég um leið og ég fann til límband og klippti til svartan ruslapoka til að setja í bíl- gluggann. n Áhugafjárfestir Flutningskerfi raforku skiptist í grófum dráttum í tvennt. Ann- ars vegar er meginflutningskerfið, f lutningslínur á 132 kV og 220 kV spennu sem liggja milli landshluta. Byggða línuhringurinn (132 kV) telst til meginflutningskerfisins og einnig t.d. 220 kV línurnar frá Þjórsársvæð- inu inn á SV-hornið. Hins vegar eru svo landshlutakerfin, sem tengjast meginflutningskerfinu og flytja raf- orkuna til dreifiveitna innan hvers landshluta. Dæmi um landshluta- kerfi er 66 kV kerfið á Suðurlandi. Í þingsályktun um stefnu stjórn- valda um lagningu raflína segir að meginreglan, við lagningu nýrra flutningslína eða endurnýjun eldri í landshlutakerfum raforku, skuli vera að notast við jarðstrengi – að því gefnu að það sé tæknilega mögu- legt og kostnaðarhlutfall miðað við loftlínu sé innan ákveðinna marka. Í meginflutningskerfinu skuli loft- lína hins vegar vera meginreglan, en svo eru talin upp atriði sem réttlæta það að jarðstrengskostur sé metinn. Þessi skipting er í öllum aðalatriðum sambærileg stefnu um lagningu raf- lína í öðrum löndum. Spennustigið í landshlutakerfunum er að jafnaði lægra (66 – 132 kV) en í meginflutn- ingskerfinu (132 – 220 kV), eins og kemur fram hér að ofan, og áskoran- ir, tengdar rekstri jarðstrengslagna, aukast með hækkandi spennustigi. Þingsályktunin tekur sérstaklega fram að skoða þurfi hvort það sé tæknilega raunhæft að leggja jarð- streng frekar en loftlínu, enda er það grundvallarforsenda. Jarðstrengur er þannig uppbyggður að þegar sett er á hann spenna getur hann haft óæskileg áhrif á rekstur kerfisins, til að mynda á spennugæði, vegna svokallaðs launafls sem myndast í strengnum vegna uppbyggingar hans. Það eru ýmsir þættir sem spila þarna inn í, svo sem rekstrar- spenna kerfisins, lengd jarðstrengs og styrkur kerfisins á viðkomandi svæði. Kerfisstyrkurinn er mjög mis- jafn milli landshluta og helstu þættir sem hafa áhrif á hann eru nálægð við virkjanir (og stærð þeirra) og möskvun kerfisins. Af þeim sökum er svigrúm til jarðstrengslagna afar misjafnt milli landsvæða og nauð- synlegt að skoða og meta hvert tilvik fyrir sig. Innbyrðis áhrif Jarðstrengslögn í einni línu getur haft áhrif á möguleika til jarð- strengslagna í annarri línu á sama svæði. Því er nauðsynlegt að vinna ítarlega kerfisgreiningu í hverju tilfelli, eins og áður segir. Þessi inn- byrðis áhrif eiga einnig við á milli spennustiga, til dæmis milli megin- flutningskerfis (220 kV) og undir- liggjandi landshlutakerfis (66 kV). Þannig getur jarðstrengslögn í 220 kV línu í meginflutningskerfinu, þó hún sé ekki nema örfáir kílómetrar, haft þau áhrif á undirliggjandi lands- hlutakerfi (66 kV) að útilokað sé að leggja þar margfalt lengri jarðstreng. Þá er augljóst að verið er að fórna meiri hagsmunum fyrir minni, auk þess sem beinlínis er gengið gegn stefnu stjórnvalda, þ.e. landshluta- kerfin eiga að njóta forgangs þegar kemur að úthlutun þeirra takmörk- uðu gæða sem jarðstrengir í f lutn- ingskerfinu eru. Sem dæmi um þessi innbyrðis áhrif má taka greiningu sem Landsnet hefur unnið, þar sem samspilið milli áhrifaþáttanna er þannig að 3 km langur jarðstrengs- kafli í 220 kV línu í meginflutnings- kerfinu kemur í veg fyrir lagningu um 40 km langs 66 kV jarðstrengs í undirliggjandi landshlutakerfi. Umhverfislegur ávinningur þess að leggja 40 km jarðstreng í 66 kV línu í landshlutakerfi frekar en 3 km jarðstreng í 220 kV línu í megin- flutningskerfinu á sama svæði, er óumdeildur. Sýnileiki 40 km af 66 kV loftlínu er mun meiri en sýni- leiki 3 km af 220 kV loftlínu, auk þess sem 66 kV línan hefur áhrif á mun stærra landsvæði og fleiri land- eigendur. Þar kemur einnig að þætti sveitarfélaganna og samfélagslegri ábyrgð þeirra. Það er afar mikilvægt að sveitarfélagið horfi á hagsmuni heildarinnar. Það eru eðlisfræði- lögmál sem ráða því hversu mikið er hægt að leggja af jarðstrengjum á hverju svæði fyrir sig. Það er þáttur sem verður að taka með í reikning- inn, til dæmis í skipulagsvinnu. Lagning jarðstrengja í f lutn- ingskerfum og rekstur þeirra er áskorun sem öll raforkuflutnings- fyrirtæki standa frammi fyrir. Við hjá Landsneti hvetjum almenning til að láta sig þessi mál varða. Það er afar mikilvægt að umræðan sé upp- lýst og byggð á rökum. Við fögnum því að fá tækifæri til þess að skýra út hluti og ræða saman á málefna- legum grunni. n Jarðstrengir í flutningskerfinu – sýnd veiði en ekki gefin? Magni Þór Pálsson verkefnastjóri rannsókna hjá Landsneti FÖSTUDAGUR 8. apríl 2022 Skoðun 11FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.