Fréttablaðið - 08.04.2022, Síða 20
Við viljum leið-
rétta þetta og gefa
krökkum tækifæri til að
stunda áhugamálið í hóp
af jafnöldrum og veita
ástríðu þeirra í heil-
brigðan farveg.
RÍSÍ, eða Rafíþróttasamtök
Íslands, voru stofnuð í lok árs
2018 af fimm einstaklingum
sem allir höfðu brennandi
áhuga á að búa til umhverfi á
Íslandi fyrir rafíþróttafólk, en
ekki síst byggja upp heilbrigt
starf í kringum rafíþróttir
fyrir börn og unglinga.
jme@frettabladid.is
Einstaklingarnir fimm voru þau
Ólafur Hrafn Steinarsson, Hafliði
Örn Ólafsson, Ólafur Nils Sigurðs-
son, Víkingur Fjalar Eiríksson
og Melína Kolka Guðmunds-
dóttir. „Öll höfum við að ýmsu
leyti tekið þátt í þessum heimi í
gegnum tíðina. Hafliði og Ólafur
Nils skipulögðu rafíþróttamót
kringum League of Legends (LoL),
Counter Strike og ýmis lön, Melína
stofnaði Tölvuleikjasamfélag
íslenskra kvenna og hélt viðburði í
gegnum Ground Zero og Víkingur
hafði mikla reynslu af að keppa
í þessum heimi í mörg ár,“ segir
Ólafur Hrafn, sem starfar nú sem
formaður RÍSÍ.
Þroskandi áhugamál
„Við vildum taka saman allan þann
lærdóm sem við höfum öðlast á
eigin ferli sem tölvuleikjaspilarar.
Ýmislegt hefði mátt betur fara,
eins og að spila of lengi fram eftir,
slæm líkamsstaða og fleira, en það
var enginn til að kenna okkur. Nú
erum við komin á fullorðinsár
og höfum lært að til eru betri og
skemmtilegri leiðir, sérstaklega til
að nálgast keppnishliðina. Upp-
haflegt ætlunarverk RÍSÍ var því að
fræða almenning um okkar sýn og
kynna raf íþróttir sem gilt áhuga-
mál sem stuðlaði að jákvæðum
ávinningi iðkenda, með heilbrigðri
ástundun á réttum forsendum. Ég
hef oft sagt að stærstu mistökin
hafi verið að setja tölvuna inn í
herbergi fyrir 30-40 árum. Lengi
hefur ekki verið hægt að stunda
tölvuleikjaáhugamálið í raunveru-
legum félagsskap í raunheimum.
Við viljum leiðrétta þetta og gefa
krökkum tækifæri til að stunda
áhugamálið í hóp af jafnöldrum og
veita ástríðu þeirra í heilbrigðan
farveg,“ segir Ólafur Hrafn.
„Rafíþróttir eru skilgreindar sem
skipulögð keppni í tölvuleikjum
í heiminum en við vildum ganga
lengra, stilla þeim upp á sérís-
lenskan hátt og tengja inn í íþrótta-
menninguna. Rafíþróttir geta
boðið upp á sömu tækifæri fyrir
iðkendur og önnur áhugamál ungs
fólks. Þær geta gert krökkum kleift
að kynnast jafnöldrum sínum,
eignast vini og fara í keppnisferða-
lög innanlands eða erlendis. Allt
eru þetta þroskandi hlutir sem
hingað til hafa ekki verið tengdir
þessu tiltekna áhugamáli,“ segir
hann.
Stefna á topp fimm þjóðir
Markmið RÍSÍ eru háleit. „Okkar
markmið var að vera á meðal topp
fimm rafíþróttaþjóða heimsins
fyrir árið 2025. Við skilgreindum
fimm grunnstoðir sem þyrfti að
uppfylla til þess:
1. Íslenskir spilarar yrðu að hafa
aðgang að hágæða keppnis
umhverfi, sem keppendur
og áhorfendur. Framleiðsla á
rafíþróttaviðburðum fram að
stofnun RÍSÍ hafði helst farið
fram hjá áhugamannadeildum.
Umhverfið stóð í vegi fyrir því
að fólk sem hafði efasemdir eða
fordóma um rafíþróttir, gæti
skipt um skoðun. Í dag er þetta
breytt. Hágæða útsendingar
með spilurum í mynd í sjónvarpi
auka virði þess að taka þátt í
umhverfinu og trúverðugleika
þess.
2. Byggja þyrfti upp stöðugt
keppnisumhverfi þar sem
íslenskir spilarar hefðu ástæðu
og hvatningu til þess að æfa allt
árið og keppa reglulega. Í dag
er keppnisumhverfið á Íslandi
orðið ríkt. Við erum með sjö
deildir í Counter Strike og átta
lið í hverri deild. Deild er haldið
úti í Rocketleague í samstarfi
við Rocketleague Íslands. Við
erum með almenna bikarinn í
Overwatch og Valorant, deild og
landsliðsverkefni er haldið úti
í FIFA, Framhaldsskólaleikana,
firmamótið og margt fleira.
3. Til þess að verða best í heimi
yrðu íslenskir spilarar að æfa
rafíþróttir á heilbrigðan og
skipulagðan hátt. Það stefna
ekki allir spilarar á atvinnu
mennsku eða keppni á hæsta
stigi. Við viljum byggja umgjörð
í kringum vegferð í áttina að
keppni, þannig að upplifun allra
verði sem jákvæðust. Í dag æfa
1.5001.700 krakkar rafíþróttir
reglulega hjá yfir sextán íþrótta
félögum um land allt. Um 3%
krakka á aldrinum 616 ára á
Íslandi æfa rafíþróttir sem er
hærra hlutfall en nokkurs staðar
annars staðar í heiminum. Við
getum því með góðri samvisku
sagt að við höfum náð einu af
markmiðunum okkar.
4. Við vildum útrýma fordómum
gagnvart tölvuleikjum og
opna á umræðuna. Við finnum
fyrir merkilega miklum mun á
almennu viðhorfi fólks gagnvart
tölvuleikjum eftir vegferðina.
Við eigum góða og reynslumikla
þjálfara á Íslandi í íþróttafélög
unum og þeirra starf heldur
krökkunum lengur inni í raf
íþróttastarfinu en annars staðar
í heiminum.
5. Rafíþróttir geta nýst til kennslu
á hagnýtri þekkingu. Þetta er
glænýr iðnaður sem er byggður
á internetinu. Bransinn krefst
notkunar samfélagsmiðla og þá
þarf að kunna að búa til efni til
að eiga samskipti við aðdáend
ur. Í skólunum eru rafíþrótta
deildir og áfangar sem snúast
um að kenna krökkum að
búa til rafíþróttalið, vörumerki,
leiðir til að koma því á framfæri,
stofna rásir, framleiða efni fyrir
YouTube og stuðla að vexti á
vörumerkinu.“
Sérhannað keppnisumhverfi
Í eðli sínu eru rafíþróttir vissu-
lega þannig gerðar að þær eru á
færi allra, óháð aldri, kyni eða
líkamlegri getu. En það þýðir ekki
að það sé besti grundvöllurinn
fyrir æfingar og keppnir í raf-
íþróttum. „Stefnan í dag er sett á
að keyra af stað yngriflokkamót
í raf íþróttum sem er einstakt
verkefni á heimsvísu. Mótin verða
hönnuð frá grunni með aldur
þátttakenda í huga. Hingað til
hefur verið auðveldast að halda
risastórt mót sem allir taka þátt í.
En það er lítil hvatning í því fyrir
14 ára byrjanda að detta úr leik á
fyrstu mínútu því hann er að spila
á sama velli og atvinnumenn í rafí-
þróttum.
Mér eru líka ofarlega í huga
einar fyrstu samræður mínar við
Melínu um konur og rafíþróttir.
Ég var mjög spenntur yfir að loks
væri grundvöllur fyrir æfingum
og keppni þar sem kynjaskipting
væri óþörf. Hún var f ljót að kippa
mér niður á jörðina. Því hvernig
væri það fyrir stelpu að byrja í raf-
íþróttum þar sem fyrir væru átján
strákar og engar stelpur? Mörgum
liði ekki vel að ganga inn í þannig
umhverfi. Því þyrfti að vera til sér
umhverfi fyrir stelpur þar sem
þeim liði vel og hefðu rými til að
fóta sig, sérstaklega á meðan enn
eru fordómar gegn því að stelpur
spili tölvuleiki. Þá fattaði ég að þó
að við getum gert eitthvað, þá er
það ekki alltaf besta lausnin.“
Rafíþróttir veita tækifæri
„Við höfum heyrt hugljúfar
sögur af stelpum og strákum sem
hafa fundið sig í rafíþróttum og
blómstrað eftir að fá viðurkenn-
ingu og samþykki. Þau voru allt í
einu tilbúin til að taka þátt í alls
konar starfi og verkefnum sem þau
vildu ekki áður. Þau voru virkari
í tímum í skólanum, eignuðust
f leiri vini, fengu betri einkunnir
og f leira. Tölvuleikjaáhugamálið
hætti að snúast bara um spilun og
náði líka yfir hópavinnu, æfingar
og umræður um strategíur og
f leira. Þetta gerir rosalega mikið
fyrir tölvuleikjaáhugamálið. Í stað
þess að loka möguleikum fyrir
tölvuleikjaspilara þá opnar starfið
fyrir þeim heim sem var ekki til
áður.“ ■
Séríslensk leið í rafíþróttum
Ólafur segir að
markmiðin sem
RÍSÍ setti sér séu
vel á veg komin
og Ísland geti
vel orðið ein
af fimm efstu
þjóðunum í raf
íþróttum.
MYND/AÐSEND
4 kynningarblað 8. apríl 2022 FÖSTUDAGURR AFÍÞRÓTTIR