Fréttablaðið - 08.04.2022, Side 28
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar
í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@
frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir og amma,
Kristín Gunnarsdóttir
Lyngási 1d, Garðabæ,
lést á Landspítala, laugardaginn 2. apríl.
Útförin fer fram frá Garðakirkju,
miðvikudaginn 13. apríl kl. 15.00.
Wim van der Aa
Jónína Guðrún Arnardóttir Jakob Ohayon
Benedikt Ármann Arnarson
Daníel Moshe Ohayon
Keren Lilja Ohayon
Theodór Fannar Benediktsson
Viktor Máni Benediktsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Björn Baldursson
Víðilundi 23, Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð 4. apríl.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 12. apríl kl. 13.00.
Athöfninni verður streymt á Facebooksíðunni
Jarðarfarir í Akureyrarkirkju - beinar útsendingar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Asparhlíð fyrir
kærleiksríka umönnun.
Steinunn Guðmundsdóttir
Baldur Björnsson Matthildur Guðbrandsdóttir
Guðmundur Björnsson Edda Magnúsdóttir
Anna Margrét Björnsdóttir Reynir Viðarsson
Telma Björnsdóttir Guðmundur Helgason
afa- og langafabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
sonur, bróðir, mágur og afi,
Smári Hreiðarsson
Heiðarholti 28, Keflavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu laugar-
daginn 2. apríl. Útför hans fer fram frá
Háteigskirkju mánudaginn 11. apríl klukkan 13.
Anna Lind Kristjánsdóttir Einar Björgvinsson
Halldóra R. Guðmundsdóttir Halldór K. Halldórsson
Hreiðar Smárason
Guðjón Smárason
Erla Bjarnadóttir
Arndís Hreiðarsdóttir
Sverrir Hreiðarsson Margrét Ragnarsdóttir
barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristveig Björnsdóttir
Valþjófsstöðum,
lést mánudaginn 4. apríl.
Útförin fer fram frá Snartarstaðakirkju
laugardaginn 16. apríl klukkan 15.00.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hvamms fyrir
einstaka alúð og umhyggju.
Sigurður Halldórsson Ingunn St. Svavarsdóttir
Björn Halldórsson Elisabeth Hauge
Halldór G. Halldórsson Anna Soffía Svavarsdóttir
Kristján Þ. Halldórsson Sigríður Kjartansdóttir
Guðrún Halldórsdóttir Höskuldur Tryggvason
Rannveig Halldórsdóttir Guðmundur Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þórey Eiríksdóttir
frá Egilsseli,
Eiríksgötu 9, Reykjavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Droplaugar-
stöðum þriðjudaginn 29. mars sl.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 11. apríl
og hefst athöfnin kl. 13.00. Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Droplaugarstaða fyrir einstaka umönnun og aðhlynningu.
Guðmundur Snorrason Sigríður Elsa Oddsdóttir
Eiríkur Snorrason
Ragnheiður Snorradóttir Theodór Guðfinnsson
Sigríður Snorradóttir Kjartan Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær og mest elskandi faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Gísli Marteinsson
Hallgerðargötu 3, Reykjavík,
varð bráðkvaddur 3. apríl.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 13. apríl kl. 13.
Gísli Þór Gíslason Berglind Ósk Tómasdóttir
Ninja Ýr Gísladóttir Corin John Wright
Myrra Ösp Gísladóttir Hjalti Örn
Kristmundur Gíslason
og afabörn.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Doris J. Tomasson
Miðleiti 3, Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 5. apríl.
Útförin verður auglýst síðar.
Edda Gunnarsdóttir Bárður Hafsteinsson
Karl Gunnarsson Ása Helga Ragnarsdóttir
Rúna Gunnarsdóttir
Ása Gunnarsdóttir Anders Oppheim
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Okkar ástkæri eiginmaður,
stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
Jón Hreinsson
Lækjarvaði 1,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
Landspítalanum v/ Fossvog,
föstudaginn 1. apríl. Útför fer fram í
Fossvogskirkju mánudaginn 11. apríl kl. 13.
Blóm og kransar eru afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast
Jóns er bent á menntasjóð Rúnars Mar
(0113-18-751447, kt. 110307-2920).
Regína Sigurgeirsdóttir
Rúnar Mar Regínuson
Jón Þór Sigmundsson
Elínborg Anna Erludóttir
Viktor Máni Bogguson Jónsson
Í dag verður haldið upp á
Alþjóðadag Rómafólks í
Veröld – húsi Vigdísar.
arnartomas@frettabladid.is
Alþjóðadagur Rómafólks verður haldin
í fyrsta sinn á Íslandi í Veröld – húsi Vig-
dísar á föstudag.
Dagsetningin er engin tilviljun, en
þann 8. apríl 1971 var fyrsta heimsþing
Rómafólks haldið í útjaðri London. Af því
tilefni verður boðið upp á fjölbreytta dag-
skrá á föstudag með aðkomu Rómafólks
með það að markmiði að veita innsýn í
menningu þess.
„Vigdísarstofnun hefur á undanförn-
um árum staðið fyrir mismunandi rann-
sóknarverkefnum sem tengjast menn-
ingu Rómafólks,“ segir Sofiya Zahova,
sérfræðingur í málefnum Rómafólks.
„Stofnunin hefur beitt sér fyrir verk-
efnum sem tengjast fjöltyngi og minni-
hlutatungumálum á borð við rómísku
og stuðlað að rannsóknum sem tengjast
þeim.“
Sofiya segir að á Íslandi búi stór hópur
Rómafólks sem fari fjölgandi.
„Það er mikið af fólki sem tilheyrir
samfélagi Rómafólks sem býr hér og
starfar eins og aðrir innflytjendur,“ segir
hún. „Hér á landi er flestir af rómískum
uppruna frá löndum á borð við Rúmeníu,
Búlgaríu og öðrum löndum Austur-Evr-
ópu.“
Á meðal þeirra sem koma fram verða
rithöfundar sem stofnuðu Parmisara,
samtök rómískra rithöfunda í Tékklandi.
Ljósmyndasýningin Invisible Power
verður einnig opnuð þar sem kastljósinu
er beint að Rómakonum auk þess sem
tónlistarfólk sem mun flytja rómíska
tónlist.
„Þessir listamenn munu sýna Íslend-
ingum og öðrum gestum hve fjölbreytt
menning Rómafólks getur verið en
margir þekkja aðeins til tónlistarinnar,“
segir Sofiya. „Staðalímyndin um sígauna
sem ólæsa og ómenntaða er rótgróin og
við vonumst til að veita innsýn í hversu
fjölþætt og nútímaleg menning þeirra er
í raun. Dagskráin er skipulögð með þátt-
töku Rómafólks til að gefa öllum áhuga-
sömum tækifæri til að kynnast menn-
ingu þess betur.“ n
Menningu Rómafólks fagnað
Frá Alþjóðlegri
ljóðahátíð Róma-
fólks í Rúmeníu.
MYND/SOFIYA
ZAHOVA
Ilona Ferková,
rithöfundur, tekur
þátt í dagskránni
í dag.
MYND/PETR ZEWLAKK
VRABEC
Staðalímyndin um
sígauna sem ólæsa og
ómenntaða er rótgróin og
við vonumst til að veita
innsýn í hversu fjölþætt
og nútímaleg menning
þeirra er í raun.
1571 Guðbrandur Þorláksson er vígður biskup á Hólum,
29 ára gamall.
1703 Manntal er tekið á Íslandi um þetta leyti. Það er
fyrsta manntal heims sem nær til heillar þjóðar.
1838 Áætlunarsiglingar með gufuskipum hefjast milli Bri-
stol og New York.
1898 Kristján konungur IX. er áttræður og er af því tilefni
haldin stórveisla í Reykjavík.
1957 49 punda stórlax veiðist í þorskanet við Grímsey.
1989 Bónus opnar fyrstu verslun sína við Skútuvog í
Reykjavík. Eigandi er Jóhannes Jónsson.
1999 Bill Gates verður ríkasti einstaklingur heims vegna
mikilla hækkana á hlutabréfum í Microsoft.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 8. apríl 2022 FÖSTUDAGUR