Ægir - 2021, Blaðsíða 10
10
Frá árinu 2015 hafa útgerðir 110 fiski-
skipa vítt og breitt um heiminn fest
kaup á DynIce Data höfuðlínukaplin-
um frá Hampiðjunni. Það ár voru
gerðar umtalsverðar breytingar á
hönnun koparskermisins utan um
koparvírinn í innsta kjarna kapalsins
en að öðru leyti hafa breytingar verið
tengdar framleiðsluferlinu og full-
komnun þess. Í upphafi var stefnt að
því að líftími kapalsins yrði 5 ár og
því markmiði er nú náð og gott betur.
Samkvæmt upplýsingum frá Hampiðj-
unni gæti líftíminn raunar reynst
mun lengri en þau 5 ár sem eru nú
staðfest og það kemur í ljós á næstu
árum hver endingartíminn er í raun.
Mikil söluaukning hefur orðið að und-
anförnu til útgerða bandarískra skipa,
sem veiða aðallega alaskaufsa í flottroll,
en segja má að allar flottrollsveiðar kalli
á lausnir eins og DynIce Data höfuðlínu-
kapalinn. Þar eru almennt notaðir tveir
kaplar og annar þeirra notaður fyrir
myndavél á mótum poka og belgs til að
fylgjast með því hvaða fisktegund er að
veiðast.
Stærri veiðiflötur
Einar Bjargmundsson, sölustjóri Hamp-
iðjunnar á Íslandi, segist mjög ánægður
með viðbrögðin við DynIce Data höfuð-
línukaplinum.
„Í samtölum mínum við íslenska skip-
stjórnarmenn hefur komið fram að menn
hafa náð allt að 10-15 metra meiri höfuð-
línuhæð sem jafngildir stærri veiðifleti
sem nemur 1.400 til 2.100 fermetrum með
DynIce Data höfuðlínukaplinum en þeir
náðu áður með vírkapli. Enda svífur
kapallinn yfir vegna þess hversu léttur
hann er og togar upp en dregur ekki
niður höfuðlínuna eins og stálvírinn.
Það munar um minna. Við höfum verið
að selja mönnum 3.000 metra langa höf-
uðlínukapla en skipstjórarnir telja að
2.500 metrar gætu reynst nóg. Ástæðan
er sú að þegar þeir notuðu vírana urðu
menn reglulega að taka allt að 10-15
faðma af endunum vegna þess að þeir
ryðguðu. Tógið ryðgar ekki og það gerir
gæfumuninn,“ segir Einar.
Ótvíræðir kostir
Einn þeirra íslensku skipstjóra sem verið
hafa með DynIce Data höfuðlínukapalinn
er Eyjólfur Guðjónsson á Ísleifi VE sem
segir að hann og Magnús Jónasson, fé-
lagi hans og hinn skipstjórinn á Ísleifi,
gætu ekki verið ánægðari með höfuð-
línukapalinn.
,,Þetta er algjör snilld. Við höfum ver-
ið með DynIce Data frá því 2015. Allar
upplýsingar frá höfuðlínustykkinu og
öðrum nemum skila sér á skjá í brúnni.
Við fáum allar upplýsingar um innkomu í
trollið á tölvumynd og sjáum nákvæma
hæð á höfuðlínunni hverju sinni,” segir
Eyjólfur en hann segir kosti DynIce Data
DynIce Data höfuðlínu-
kapallinn reynist vel
Skipstjórarnir á Ísleifi VE, þeir Eyjólfur Guðjónsson og Magnús Jónasson segja að DynIce Data höfuðlínupakapallinn sé
„hrein snilld“ en búið er að nota hann þar um borð síðustu sex ár.
DynIce Data höfuðlínukapallinn er nú notaður hjá útgerðum 110 fiskiskipa vítt
um heim