Ægir - 2021, Blaðsíða 18
18
Bergþór Baldvinsson, framkvæmdastjóri Nesfisks, segir gott að losna við millilandanir og stytta tímann við löndum.
Orkusparnaður og meira úthald
„Orkusparnaður í skipinu er
umtalsverður miðað við togara af
svipaðri stærð. Hitt er svo stærð
skipsins sem gerir að verkum að
við losnum við millilandanir. Þá er
fiskurinn flokkaður á bretti niður
lest, sem flýtir mjög fyrir löndun.
Við það lækkar kostnaður og hægt
verður að halda skipinu úti í fleiri
daga,“ segir Bergþór Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Nesfisks, sem er
eigandi Baldvins Njálssonar.
Skipið hóf strax veiðar með stuttum
túrum nú fyrir jólin en gert er ráð fyrir
fullu úthaldi eftir áramótin. Veiðiferðirn-
ar nú í desember fóru í að prufukeyra
skipið, veiðar og vinnslu og segir Berg-
þór það hafa gengið vel. Hann segir að
skipið kosti rúma fimm milljarða, en
kostirnir við hönnum þess lækki rekstr-
arkostnað og auki mögulegt úthald.
Auk Baldvins Njálssonar gerir Nes-
fiskur út ísfisktogara, dragnótarbáta og
smærri báta. Fyrirtækið rekur einnig
frystihús í Garðinum, ferskfiskvinnslu á
tveimur stöðum í Sandgerði og rækju-
vinnslu á Hvammstanga. Um 350 manns
vinna hjá fyrirtækinu.
Bergþór segir að staðan á mörkuðum
hafi lagast þrátt fyrir að áhrifa Covid
gæti enn. Verð á sjófrystum afurðum sé
til dæmis mjög gott. Nánast í hámarki.
Aðrir markaðir séu að jafna sig. Eins og
er sé framtíðin björt, hvað svo verða
kunni. Aðstæður séu fljótar að breytast.
Simberg ehf óskar Nesfiski í Garði og áhöfn til hamingju
með nýtt og glæsilegt fiskiskip Baldvin Njálsson GK 400
Akralind 2 - 201 Kópavogur