Ægir

Árgangur

Ægir - 2021, Blaðsíða 30

Ægir - 2021, Blaðsíða 30
30 ir máli og verður með þakklæti meðtek- ið.“ Með 20% af loðnukvótanum Stefán segir að þegar hann hafi komið til Vestmannaeyja fyrir 25 árum hafi Ís- félagið verið með um 10% af loðnukvót- anum en það hlutfall er nú 20% og búið að vera í nokkuð mörg ár. „Það hefur markvisst verið unnið að því að auka veiðiheimildir fyrirtækisins í uppsjávarfiski. Frá því fyrir síðustu aldamót hefur félagið bæði aukið hlut- deild sína og fleiri fiskitegundir komið inn í myndina. Undir lok síðustu aldar voru menn farnir að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld og svo kom makríll- inn eftir aldamótin. Þetta er gjörbreyt- ing á öllum rekstraraðstæðum í uppsjáv- arveiðum og -vinnslu á Íslandi. Það eru komnir verðmætir stofnar inn í veiðina og nú er hægt að stunda veiðar á upp- sjávarfiski nánast óslitið allt árið.“ Markaðir hagstæðir nú En það er ekki nóg að veiða, það þarf að vinna fiskinn og selja hann. Stefán segir að markaðir þar sem afurðir úr uppsjáv- arfiski eru seldar, hafi styrkst. Það eigi bæði við um fóðurframleiðslu fyrir lax- eldið þangað sem mjöl og lýsi er selt og markaði í Austur-Evrópu, þangað sem megnið af afurðum úr uppsjávarfiski er selt. „Efnahagsástandið þar er miklu betra en það var fyrir 20 árum. Það er því grátlegt að Rússlandsmarkaður sé okkur lokaður, loksins þegar við fáum stóra vertíð. Auk þess hafa fyrirtækin fjárfest mikið í öflugum skipum með mikla kæli- getu, sem bætir meðferð aflans og einnig hefur orðið mikil tæknivæðing í vinnsl- unni. Tæknin hefur tekið við af manns- hendinni, bæði hafa afköstin aukist gríð- arlega og fólki fækkað, en jafnframt eru störfin orðin léttari en sérhæfðari. Um- ræðan hefur aldrei verið meiri um tækniframfarir, m.a. fjórðu iðnbylting- una, og allt mun þetta hjálpa okkur við að auka verðmæti þeirra nytjastofna sem við erum að vinna með. Það er svo margt sem er hægt að gera nú á tímum sem var útlokað fyrir 10 árum, hvað þá 20 árum. Mér finnst fólk í dag ræða miklu meira um framtíðina og tækifærin. En sumt sem talað er um er ekki eins einfalt og fólk heldur að það sé við fyrstu sýn. Vel menntuð þjóð er mikil auðlind, sem sjávarútvegur hefur og verður að nýta sér, ef við ætlum að vera meðal þeirra þjóða sem búa við mestu lífsgæðin,“ seg- ir Stefán. Hann segir að ekki megi gleyma því að við séum að stjórna veiðum úr okkar nytjastofnum á vísindalegum grunni eft- ir bestu getu. Tækninni eigi eftir að fleygja fram á næstu árum og verða til þess að við getum stýrt sókninni í stofn- ana betur og dregið úr óvissu. Meiri og betri rannsóknir muni auka þekkinguna og verðmætin sem við náum úr hverjum stofni. Þarna sé gríðarlega margt sem hægt sé að gera betur. Þörfin fyrir matvæli eykst stöðugt „Svo fleygir tækninni fram í skipum og orkunýtingu og umræðan um umhverf- is- og samfélagsmál hefur aldrei verið meiri. Við erum alls ekki komin að ein- hverjum lokapunkti í rekstri félaganna. Það er alltaf hægt að gera betur. Pró- fessor Sigurjón Arason hefur bent á að eftir nokkur ár verði „aukaafurðirnar“ eins og hann vill reyndar alls ekki kalla þær, orðnar aðalafurðir og það sem er aðal í dag verði þá aukaafurðir. En í öllu þessu verðum við að hafa það í huga að Floti og vinnsla Floti félagsins eru fjögur uppsjáv- arskip, togari, togbátur og línu- bátur. Þetta eru Álsey, Heimaey, Sigurður og Suðurey í uppsjávar- veiðunum, togarinn er Ottó N. Þorláksson, togbáturinn er Dala- Rafn og krókabáturinn er Litlanes sem er gerður út frá Þórshöfn. Vinnslan er bæði í Eyjum og Þórshöfn. Á báðum stöðum er botnfiskvinnsla, vinnsla á upp- sjávarfiski og fiskimjölsverksmiðj- ur.  Hér sést næst á myndinni yfir hús og athafnasvæði Ísfélags Vestmannaeyja.  Loðnuvinnsla í fullum gangi.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.