Fréttablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 14
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Síðasta síldartunnan frá Dale til
Íslands er loks á leiðinni til lands-
ins eftir áratuga dvöl í Hrífudal.
arnartomas@frettabladid.is
Í norska bænum Dale í Dalsfirði voru
síldartunnur framleiddar og seldar til
Íslands áratugum saman, fram á níunda
áratug síðustu aldar. Árið 1986 var
flutningaskipið Suðurland á leið úr höfn
Dalsfjarðar með síðustu sendinguna til
Íslands þegar tunna féll fyrir borð og
hafnaði í sjónum. Tunnuna rak á land við
Hrífudal þar sem maður að nafni Petter
Jonny Riverdal bjargaði henni og hefur
varðveitt hana á á heimili sínu síðan.
Nú er tunnan væntanleg heim til
Íslands sem hluti af íslensk-norsku sam-
starfsverkefni. Eftir hátíðlega athöfn í
norska sendiráðinu mun þessi síðasta
síldartunna ferðast norður á Siglufjörð
þar sem hún verður afhent Síldarminja-
safni Íslands.
Bernskuslóðir landnemans
Tunnuvörðurinn og Hrífdælingur-
inn Petter Jonny hefur sjálfur sterkar
taugar til Íslands en auk þess að gæta
síldartunnunnar hefur hann einnig
haft umsjón með styttu Ingólfs Arnar-
sonar í Hrífudal. Sú er afsteypa af stytt-
unni sem stendur á Arnarhóli og var
afhjúpuð 1961 af Bjarna Benediktssyni
þáverandi forsætisráðherra. Staðsetning
styttunnar er engin tilviljun en bernsku-
slóðir Ingólfs eru taldar vera í Hrífudal.
Það var árið 2008 þegar Björn Bjarna-
son, fyrrverandi ráðherra, heimsótti
Hrífudal að hugmyndin kviknaði, að
koma síðustu síldartunnunni frá Dale
til Íslands. Peter Jonny og fjölskylda
verða heiðursgestir norska sendiráðsins
á sunnudag þar sem sögu tunnunnar
verður fagnað í hópi valinkunnra gesta.
Það verður mikil hátíðarstund en Petter
Jonny hefur aldrei áður fengið tækifæri
til að heimsækja Ísland þrátt fyrir mik-
inn áhuga á sögulegum tengslum Íslands
og Noregs.
Íslandsvinur í fjarvinnu
„Við erum rosalega peppuð fyrir þessu,“
segir Silje Beite Løken hjá norska sendi-
ráðinu. „Við erum oft í menningarsam-
starfi og það er í uppáhaldi hjá okkur
þegar við finnum tengsl á milli landanna
sem hægt er að styrkja með svona verk-
efni.“
Þegar tillaga að verkefninu var borin
fram af íslenska sendiráðinu í Noregi
segir Silje að norska sendiráðið hafi ekki
látið á sér standa.
„Við sögðum strax já því okkur fannst
þetta svo merkilegt, bæði út af land-
námstengslunum við Hrífudal og líka út
af sögunni í kringum síldarárin,“ segir
hún og bætir við að það sé gaman að fá
Petter Jonny með í för. „Hann er mikill
Íslandsvinur án þess að hafa komið
hingað áður. Ég reikna með að hann
verði enn meiri Íslandsvinur þegar hann
fer heim aftur!“ n
Hrífdælingur fylgir síðustu
síldartunnunni heim
Afsteypa styttu landnámsmannsins Ingólfs Arnarsonar í Hrífudal. MYND/PETTER JONNY
Petter Jonny með
tunnuna góðu.
MYND/
STEINAR BAUGE
Við sögðum strax já því
okkur fannst þetta svo
merkilegt, bæði út af
landnámstengslunum
við Hrífudal og líka út af
sögunni í kringum
síldarárin.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðmunda Hjartardóttir
Grundarfirði,
lést að Dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Fellaskjóli í Grundarfirði, þann 17. maí
síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá
Grundarfjarðarkirkju, föstudaginn 27. maí, kl. 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á minningarsjóð Fellaskjóls.
Athöfninni verður streymt á YouTube-síðu
Grundarfjarðarkirkju.
Hafsteinn
Hermann og Elísa Anna
Ingi Hans og Sigurborg Kristín
Hjördís og Sævaldur Fjalar
Guðmundur H. og Margrét
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Pétur Sveinsson
fv. rannsóknarlögreglumaður,
Prestastíg 9, Reykjavík,
lést á líknardeild Landakots
fimmtudaginn 12. maí. Útför hans fer fram
frá Guðríðarkirkju föstudaginn 27. maí klukkan 10.
Hjartans þakkir til Heru og starfsfólks Landakots
fyrir ljúfa og yndislega umönnun.
Streymt verður frá athöfninni. Hlekk á streymi má nálgast
á www.mbl.is/andlat.
Bjarney K. Friðriksdóttir
Jón, Edda, Sveinn, Bergrún, Arnfríður, Arngrímur, Pétur Ingi,
Sara Dögg, Guðný, Friðrik, Stella, Davíð, Anna Birna,
afa- og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn, fyrrum
eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur,
tengdasonur, bróðir og mágur,
Jón Ágústsson
þroskaþjálfi,
lést fimmtudaginn 19. maí umvafinn
fjölskyldu sinni. Jarðarförin fer fram frá
Guðríðarkirkju mánudaginn 30. maí kl. 13.
Guðrún Sigríður Ólafsdóttir
Brynhildur Guðmundsdóttir
Þengill Fannar Jónsson Elín Jónsdóttir
Þorgils Máni Jónsson
Ingileif Valdís Jónsdóttir
Rannveig Pálmadóttir
Ólafur Leifsson
Pálmi Ágústsson
Guðrún Fema Ágústsdóttir Gunnar Valur Sveinsson
Sigurður Már Ólafsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Kristjana Kristjónsdóttir
frá Ólafsvík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir
mánudaginn 23. maí.
Hún verður jarðsungin frá Ólafsvíkur-
kirkju laugardaginn 28. maí kl. 14.
Guðlaug J. Steinsdóttir Guðmundur Gísli Egilsson
Leidy Karen Steinsdóttir Jóhann Magni Sverrisson
Randver Agnar Steinsson Kristín I. Rögnvaldsdóttir
Ragnheiður G. Steinsdóttir Gunnar Björn Gíslason
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Lilja Magnúsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
föstudaginn 20. maí.
Jarðsungið verður fimmtudaginn 2. júní
frá Háteigskirkju kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Kristniboðssambandið.
Guðbjörn Baldvinsson Ingibjörg Sigurðardóttir
Lilja Baldvinsdóttir
Kristján Árni Baldvinsson
Magnús Þ. Baldvinsson Bettina Wilhelmi
Halldór Baldvinsson Katrín Garðarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
amma og langamma,
Guðbjörg Anna Pálsdóttir
Rjúpnasölum 10, Kópavogi,
lést í faðmi fjölskyldunnar
föstudaginn 22. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Hreiðar Sigurbjarnason
Ingibjörg Torfadóttir
Ragna Sigríður Reynisdóttir
ömmu- og langömmubörn.
1986 Hands Across America: 6,5 milljónir manna mynda
mannlega keðju í þágu baráttu gegn hungri, fátækt
og heimilisleysi.
1986 600 farast þegar ferju hvolfir á ánni Meghna í
Bangladess.
1987 Mesti jarðskjálfti á Suðurlandi síðan 1912 verður í
Vatnafjöllum, suður af Heklu, hann er 5,7 stig.
1995 Ísafjarðarkirkja er vígð.
2000 Ísrael dregur herlið sitt frá Líbanon eftir 22 ára her-
setu.
2001 Erik Weihenmayer verður fyrsti blindi maðurinn
sem kemst á tind Everestfjalls.
2008 Knattspyrnufélagið Valur vígir Vodafonevöllinn við
Hlíðarenda.
2008 Geimfarið Phoenix lendir á Mars.
2013 Hallsteinsgarður í Grafarvogi er vígður.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 25. maí 2022 MIÐVIKUDAGUR