Fréttablaðið - 25.05.2022, Síða 30

Fréttablaðið - 25.05.2022, Síða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Gúrý og börnin okkar skildu ekkert af hverju ég væri að gráta en þetta voru auðvitað bara gleðitár. HOUSTON hornsófi Fallegt koníakslitað bonded leður. 275 x 210 x 85cm. Fullt verð: 249.900 kr. Nú 199.920 kr. SÓFADAGAR Lýkur 30. maí AUSTIN sófi 3ja sæta stillanlegur sófi. Hægra og vinstra sæti eru hallanleg með skammel. Miðjusæti niðurfellanlegt og verður að borði. 198 x 95 x 98 cm. Fullt verð: 299.900 kr. Nú 239.920 kr. Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða eða aðgang að útsölum á undan öðrum með því að skrá þig á póstlista Dorma. BARCELONA svefnsófi Vandaður og veglegur ítalskur svefnsófi. Svefnflötur. 194x140x13 cm. Stærð á sófa: 193 x 93 x 100 cm. Fullt verð: 199.900 kr. Nú 159.920 kr. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Gullsmiðurinn Jónas Breki Magnússon var fenginn til að smíða skartgrip tengdan dauðanum fyrir konunglega sýningu í Sønderborg-höll þar sem verk hans fangaði auga Benedikte prinsessu við opnunina í apríl. toti@frettabladid.is „Ég rokkaði þetta verkefni. Þótt ég segi sjálfur frá,“ segir gullsmiðurinn Breki Magnússon sem var, ásamt 29 öðrum gull- og silfursmiðum og listafólki búsettu í Danmörku, feng- inn til þess að gera verk sérstaklega fyrir skartgripasýninguna Makabre Mesterværker sem var opnuð í Søn- derborg-höll í Danmörku í síðasta mánuði og stendur út október. Eins og yfirskrift sýningarinnar ber ef til með sér þá hverfist hún um samspil dauðans og skartgripa í ýmsum menningarheimum og á ólíkum tímum. „Mér hefur aldr- ei áður verið boðið að gera verk á skartgripasýningu,“ segir Breki sem telur víst að þetta sé með stærstu sýningum sem íslenskum gullsmið hafi verið boðið að taka þátt í. Breki er enda heldur betur á heimavelli þegar drungi og dauðinn eru annars vegar eftir að hafa lengi sérhæft sig í hauskúpuhringum og höfuðkúpa er einmitt þungamiðjan í verkinu Freydis, her path to the afterlife in Valhalla. Þar vinnur hann með ferðalag Freydísar Eiríksdóttur rauða til Valhallar og sækir í forna norræna menningu með tengingum við galdrastafinn Vegvísi, víkinga- skip og margrómuð veisluhöld í Valhöll. Dauðinn kallar Hjónin Breki og Gúrý Finn- bogadóttir, fata- og skart- gripahönnuður, hafa búið og starfað í Danmörku um langt árabil og voru þar í tals- verðum kóvíð-hremmingum þegar óvænt og kærkomið kallið eftir skarti á sýning- una kom að handan, ef svo má segja. „Faraldurinn var í hámarki í lok október 2020 þegar sex ára leigan á verkstæðinu okkar á Hjøbro Plads í Kaupmanna- höfn rann út og leigusalinn vildi tvöfalda leiguna með endurnýj- uðum samningi. Þetta var auðvitað galið þannig að þremur dögum seinna vorum við f lutt frá Højbro Plads og búin koma verkstæðunum okkar beggja fyrir í geymslu.“ Þarna þótti Breka heldur farið að syrta í álinn en örfáum vikum seinna fékk hann Facebook-skila- boð frá Ninu nokkurri Hald, mikilli áhrifakonu í gullsmíðabransanum, konunglegum sýningarstjóra og höfundi f jölda skartgripabóka. Meðal annars um krúnudjásnin. „Hún hringdi síðan í mig og sagð- ist vera að undirbúa eina stærstu konunglegu skartgripasýningu sem hún hefði haldið og að hún vær búin að vera að fylgjast með mér á Facebook og Instagram í mörg ár og vildi endilega fá mig til þess að vera í hópi þeirra sem yrðu fengnir til að gera verk á þessa sýningu í Sønder- borg-höll 2022. Grét af gleði Ég brast í grát eftir þetta símtal. Gúrý og börnin okkar skildu ekkert af hverju ég væri að gráta en þetta voru auðvitað bara gleðitár vegna Hauskúpa Breka rokkar í Sønderborg-höllinni Breki og hauskúpan hans njóta sín í botn í höllinni. MYND/AÐSEND Billed-Bladed gerir grein fyrir áhuga Bene- dikte prinsessu sem horfðist í tóftir við haus- kúpu Breka. þess að þarna var ég verkstæðislaus með mjög lítið að gera í faraldrinum og hugsaði með mér að núna fengi ég að vera með dönsku skartelít- unni,“ segir. Breki hófst síðan ekki handa á nýju verkstæði þeirra hjóna fyrr en í maí 2021. „Ég vinn best undir pressu og tók allan mánuðinn og um 250 vinnustundir í að hanna og gera verkið,“ segir Breki sem þurfti, eins og öll hin, að skila verkinu í júní í fyrra. Konungleg athygli Benedikte prinsessa, systir Mar- grétar Þórhildar Danadrottningar, opnaði síðan sýninguna í apríl og sást þar sýna verki Breka áhuga. „Tæpum tveimur vikum eftir að sýningin var opnuð kom heil opna um hana í Billed Bladet og þar sést Benedikte prinsessa stara á mitt verk,“ segir Breki sem fékk býsna góða kynningu á síðum blaðsins. „Það er líka gaman að segja frá að Cartier hafði samþykkt að lána eitt verk á sýninguna en nokkrum mán- uðum fyrir opnun sýningarinnar var boðið dregið til baka í tölvu- pósti til sýningarstjórans vegna þess að sýningin væri of óhugnanleg fyrir þetta þekkta merki.“ n FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut 26 Lífið 25. maí 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.