Fréttablaðið - 31.05.2022, Blaðsíða 16
„Hjá Nóa Síríus starfar öflugt vöru-
þróunarteymi sem hittist í hverri
viku til að fara yfir hugmyndir að
nýjungum og smakka alls kyns
samsetningar af sælgæti og er ég
svo heppin að vera hluti af því
teymi,“ segir Alda Björk Larsen,
markaðsstjóri Nóa Síríus. „Það
er líka gaman að segja frá því að
okkar dyggu viðskiptavinir eru
mjög duglegir að gefa sér tíma
til að senda okkur hugmyndir
að nýjungum ásamt því að segja
okkur frá þeim vörum sem þeir
sakna hvað mest og erum við alltaf
að leitast eftir því að uppfylla óskir
okkar viðskiptavina.“
Nóa Kropp með
appelsínubragði komið aftur
„Það hefur skapast ákveðin hefð
hjá okkur fyrir því að koma með
fjölmargar nýjungar og þá oft
einungis í takmörkuðu magni, svo
fólk geti notið meiri fjölbreytni
en ella. Margir bíða spenntir
eftir sumrinu og því sem kemur
á markað og heyrum við oft af
einstaklingum sem hamstra
uppáhaldsvörurnar sem koma í
takmörkuðu magni,“ segir Alda.
„Við byrjuðum sumarið í ár með
því að fagna 10 ára afmæli Nóa
Kropps með appelsínubragði, en
það var fyrsta sumartegundin sem
kom á markað hjá okkur og hún
sló algjörlega í gegn.
Það er greinilegt að margir
hafa beðið spenntir eftir því að
það komi aftur á markað, því við
höfum fengið fjölda beiðna um
að fá það aftur. Því var það okkur
sönn ánægja að bjóða upp á það
í sumar og hafa viðtökurnar ekki
látið á sér standa, því það seldist
upp,“ segir Alda. „Við ákváðum því
að bregðast við og ætlum að auka
við magnið til að gleðja okkar við-
skiptavini.“
Bíó stemmning í
Kroppinu í sumar
„Sumar-Nóa Kroppið í ár er Bíó
Kropp. Þessi vara hefur fengið
alveg frábærar viðtökur og við
erum virkilega glöð yfir hve vel
tókst til, en við höfum komið með
nýjar bragðtegundir af Nóa Kroppi
í tíu ár og það er því ekki alveg jafn
auðvelt og í byrjun,“ segir Alda.
„Þessi nýja bragðtegund sam-
einar að mörgu leyti upplifun sem
margir elska, poppkorn og súkku-
laði. Það er eitthvað við að blanda
Síríus rjómasúkkulaðinu saman
við stökkar kexkúlur með salt- og
smjörbragði sem er svo ómót-
stæðilegt. Það er líka ákveðin bíó
stemmning við þetta bragð og fyrir
sannkallaða sælkera mæli ég með
því að blanda Bíó Kroppinu saman
við popp. Það er algjör snilld!“
Sumarið kom með Hvelli
„Það má segja að sumarið hafi
komið með Hvelli, en þessi
skemmtilega vara, Tromp Hvellur,
kom á markað í fyrrasumar í
tveimur útfærslum og sló heldur
betur í gegn. Við fögnum því að
geta boðið þá aftur í sumar og eru
þeir komnir í verslanir í tveimur
útfærslum, Tromp Hvellur með
kókosfyllingu og Tromp Hvellur
með piparfyllingu,“ segir Alda.
„Þessi vara sameinar alla krafta,
stökka krispið í silkimjúka Síríus
súkkulaðinu, sem er algjörlega
einstakt, á móti sterka piparfyllta
lakkrísnum sem leikur við bragð-
laukana. Þetta er ein af sumar-
vörunum okkar og ég hvet fólk
til að drífa sig í næstu verslun og
smakka, enda er þetta í takmörk-
uðu magni.“
Litríkt og fallegt nýtt
súkkulaðistykki
„Í síðustu viku kynntum við
til leiks einstaklega litríka og
skemmtilega sumarnýjung, Síríus
rjómasúkkulaði með litríkum
súkkulaðiperlum. Þessi vara er
bæði bragðgóð og einstaklega
falleg og eiga viðskiptavinir okkar
ekki eftir að verða sviknir af þessu
skemmtilega og litríka súkkulaði,“
segir Alda. „Síríus Súkkulaðiperlu
hnapparnir okkar eru ein vin-
sælasta varan í blandbörunum og
því ákváðum við að koma til móts
við þennan hóp með þessari vöru
í sumar. Platan er einstaklega vel
heppnuð og litríku perlurnar skína
vel í gegn í henni.“
Alltaf eitthvað spennandi í gangi
„Trítlarnir okkar hafa líka notið
gífurlegra vinsælda og höfum við
komið með sumarútgáfu af Trítl-
unum síðustu þrjú ár,“ segir Alda.
„Í ár komum við með súper súra
Trítla, þeir eru í ótrúlega fallegum
pastellitum og eru einstaklega
bragðgóðir.
Við lumum á einni snilld enn
í sumar sem kemur á markað í
kringum miðjan júní, en það er í
tengslum við samstarf okkar við
Bestu deildina í fótbolta,“ segir
Alda. „Við erum einstaklega stolt
af því samstarfi og að styðja við
okkar frábæra íþróttafólk.
Því má með sanni segja að það
sé alltaf eitthvað spennandi í
gangi hjá okkur hjá Nóa Síríus og
við hlökkum til að kynna fleiri
nýjungar fyrir þjóðinni, en við
ætlum ekkert að gefa eftir þó að
Síríus súkkulaðið hafi verið með
þjóðinni í yfir hundrað ár,“ segir
Alda.
Hráefnið vottað
af Cocoa Horizons
„Það er líka gott að hugsa til þess
að frá árinu 2013 hefur Síríus
súkkulaðið verið framleitt með
kakóhráefni sem er vottað af
samtökum sem nefnast Cocoa
Horiz ons. Það þýðir að kakóhrá-
efnið fyrir súkkulaðið er ræktað
á ábyrgan hátt með sjálfbærni að
leiðarljósi,“ útskýrir Alda.
„Samtökin Cocoa Horizons
styðja við bændur með því að
bæta lífskjör þeirra og markmið
samtakanna er einnig að efla stöðu
kvenna á svæðinu ásamt því að
bæta aðgengi að menntun, bættri
heilbrigðisþjónustu og öruggu
vatni.“ n
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Alda segir að Nói Síríus ætli ekkert að gefa eftir í nýjungunum þrátt fyrir að hafa verið með þjóðinni í yfir hundrað ár. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGURARI
Nóa Kropp með appelsínubragði er
komið aftur.
Sumar-Nóa Kroppið í ár er Bíó Kropp.
Tromp Hvellur
kom á markað
í fyrrasumar
í tveimur út-
færslum og sló í
gegn.
Síríus rjóma-
súkkulaði með
litríkum súkku-
laðiperlum
er afar vel
heppnað.
Súper súrir Trítlar eru í fallegum past-
ellitum og einstaklega bragðgóðir.
Margir bíða
spenntir eftir
sumrinu og því sem
kemur á markað og
heyrum við oft af ein-
staklingum sem hamstra
uppáhaldsvörurnar sem
koma í takmörkuðu
magni.
Alda Björk Larsen
2 kynningarblað A L LT 31. maí 2022 ÞRIÐJUDAGUR