Fréttablaðið - 31.05.2022, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 31.05.2022, Blaðsíða 11
Auk M og F verður hægt að nota stafinn X ragnarjon@frettabladid.is ÞÝSKALAND Stjórnvöld í Þýskalandi hafa komist að samkomulagi um að nútímavæða þýska herinn fyrir 100 milljarða evra, eða um 13,8 trilljónir íslenskra króna. Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, hefur verið ötull talsmaður aukn- ingar á hernaðargetu landsins síðan Rússland réðst inn í Úkraínu fyrr á þessu ári. Erfitt hefur þó reynst að mynda samstöðu um málið innan þingsins. Með þessu er Þýskaland að standa við samkomulag sitt við aðildarríki NATO um að 2 prósent eða meira af landsframleiðslu skuli varið til varnarmála á ári hverju en hingað til hefur framlag Þýskalands verið í kringum 1,5 prósent. Síðan í kalda stríðinu hefur her Þýskalands minnkað með reglubundnum hætti en hann telur nú 200.000 hermenn í stað 500.000 í kringum 1990. Þverpólitísk samstaða var nauð- synleg til þess að fjármagna inn- spýtinguna en framlagið verður fjármagnað með aukinni skuld- setningu landsins. Í stjórnarskrá Þýskalands eru sett fram skýr mörk um skuldsetningu en til að gera breytingar á henni verða tveir þriðju hlutar þingsins að gefa vilyrði sitt. Hið aukna fjármagn verður notað til að nútímavæða hernaðargetu Þýskalands en einnig til framleiðslu og kaupa á hergögnum. n Þýskaland eykur verulega framlög til hernaðarmála Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, vill færa þýska herinn inn í nútímann. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA emd@frettabladid.is BANDARÍKIN Kynsegin New York- búar þurfa brátt ekki lengur að auð- kenna sig sem karlkyns eða kven- kyns á ríkisútgefnum skilríkjum, þar á meðal ökuskírteinum. Í samræmi við ný lög í fylkinu um kynviðurkenningu, sem taka gildi þann 24. júní næstkomandi, er bókstafurinn „X“ nú tiltækur sem skráning á kyni á ökuskírteinum, ökuleyfum, eða hvers kyns per- sónuskilríkjum sem gefin eru út af New York-fylki. Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, segir þessa breytingu þarfa. „Hver einasta manneskja, óháð kynvitund eða tjáningu, á það skilið að eiga persónuskilríki sem endur- spegla hver hún/hann/hán er,“ segir Hochul. Þeir New York-búar sem þegar eru með gild ökuskírteini eða persónu- skilríki geta breytt skráningu kyns síns úr „M“ eða „F“ í „X“. Og þeir sem eru að sækja um persónuskilríki eða ökuskírteini í fyrsta skiptið hafa nú þrjá valkosti þegar kemur að skrán- ingu kyns. n Kynna nýjan bókstaf í ökuskírteini fyrir kynsegin fólk Með nýjum lögum um kyn- viðurkenningu getur kynsegin fólk nú fengið bókstafinn X skráðan á öku- skírteini eða persónuskilríki. MYND/TWITTER skatturinn@skatturinn.is Upplýsingaver er opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Niðurstöður álagningar 2022 eru nú aðgengilegar á þjónustuvefnum skattur.is Barnabætur, vaxtabætur og inneignir verða greiddar út 1. júní. Athygli er vakin á því að sérstakur barnabótaauki verður greiddur út 1. júlí. Upplýsingar um greiðslustöðu veitir Skatturinn og sýslumenn utan höfuðborgarsvæðisins. Kærufrestur rennur út 31. ágúst 2022. Álagningu skatta á einstaklinga er lokið skattur.is Upplýsingar um álagningu eru veittar í síma 442 1414. Svör við fyrirspurnum um innheimtu eru veitt í síma 442 1000. skattur.is birnadrofn@frettabladid.is NEPAL Yfirvöld í Nepal gáfu í gær út tilkynningu þess efnis að líkams- leifar allra farþega f lugvélar sem fórst í Himalajafjöllum á sunnudag, fyrir utan eins, væru fundnar. Flugvélin, sem var á vegum flug- félagsins Tara Air, hrapaði í lélegum veðurskilyrðum en þéttskýjað var þegar atvikið átti sér stað. Nepalski herinn fann vélina í gær. Sextán Nepalar voru um borð í vélinni ásamt tveimur Þjóðverjum og fjórum Indverjum. Ekki er talið líklegt að farþeginn sem enn er leit- að finnist á lífi. Reuters greinir frá. n Höfðu fundið alla farþega nema einn ÞRIÐJUDAGUR 31. maí 2022 Fréttir 11FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.