Fréttablaðið - 31.05.2022, Blaðsíða 17
FASTEIGNIR.FRETTABLADID.IS
Fasteignablaðið
Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali.
Grensásvegur 3 • 2 hæð • 108 Reykjavík • Sími 530 6500 • heimili@heimili.is • heimili.is
Ráðgjöf varðandi húsnæðisskipti, erfðaskrá, kaupmála
eða dánarbúskipti. Lögmaður þér við hlið við sölu fasteignar
án þess að greiða aukalega fyrir þá þjónustu.
BÚUM VEL veitir nýja tegund þjónustu. Kynntu þér málið.
Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður | Tryggvagötu 11, 2. hæð
Sími 783 8600 | elin@buumvel.is | www.buumvel.is
Sérhæfð lögfræðiþjónusta
með áherslu á 60+
Híbýli fasteignasala, s. 585-
8800, kynnir í einkasölu: Afar
glæsilegt og vandað einbýlis-
hús á þremur hæðum ásamt
kjallara. Húsið er mjög vel
staðsett, steinsnar frá miðbæ
Hafnarfjarðar, Hellisgerði og
höfninni.
Húsinu hefur verið einkar vel við
haldið í gegnum árin og töluvert
endurbyggt. Húsið var málað að
utan árið 2021. Frárennslis-, ofna-
og neysluvatnslagnir endurnýj-
aðar. Rafmagnstafla endurnýjuð
og raflagnir yfirfarnar og endur-
nýjaðar eftir þörfum. Hvíttað
eikarparket lagt á 1. og 2. hæð.
Árið 1991 – Eldra þak rifið og
nýtt þak byggt með hærra porti
og kvistum. Útveggir einangr-
aðir með steinull og klæddir með
borðaklæðningu og aluzink-báru-
járni. Eldra burðarvirki yfirfarið
og styrkt eftir þörfum. Gluggar
endurnýjaðir. Gólf í kjallara lakkað
og kjallaraveggir steyptir.
Nánari lýsing:
Aðalhæð: Fallegur, skjólsæll
og sólríkur timburpallur er við
inngang (suður- og austurhlið)
hússins. Forstofa/hol: Steinskífa
á gólfum, fataskápur. Eldhúsið var
endurnýjað 2014, hvít innrétting,
parket á gólfi, granítborðplötur,
eldunar eyja áföst við vegg, gott
skápapláss, gluggi.
Borðstofan er opin við eldhús,
parket á gólfi. Rúmgóð og björt
setustofa, parket á gólfi, opin við
eldhús. Gestasnyrting við forstofu,
steinskífa á gólfi, upphengt salerni,
gluggi.
Efri hæð: Hjónasvíta á sérgangi.
Rúmgott hjónaherbergi með park-
eti á gólfi, fataskápar. Tveir gluggar,
þaðan er útsýni til austurs.
Baðherbergi er framan við
hjónaherbergi, f lísar á veggjum
og gólfi, innrétting með tveimur
vöskum, flísalagður sturtuklefi,
upphengt salerni. Stórt alrými
með parketi á gólfi. Mögulegt væri
að breyta því skipulagi og stúka af
tvö rúmgóð svefnherbergi.
Rishæð: Vinnurými við stiga,
parket á gólfi, tveir gluggar á gafli,
væri unnt að setja upp vegg og
stúka af sem sér herbergi. Svefn-
herbergi 2: Rúmgott herbergi,
parket á gólfi, tveir gluggar í gafli
með fallegu útsýni, fataskápur.
Svefnherbergi 3: Einnig gott
herbergi, parket á gólfi, útsýni til
suðurs, fataskápur. Baðherbergi:
Flísar á veggjum og gólfi, f lísalagð-
ur hornsturtuklefi, handklæðaofn.
Kjallari: Veglegt þvottahús,
steypt og lökkuð gólf, góð innrétt-
ing og vinnuborð, skolvaskur. Stór
geymsla inn af þvottahúsi, steypt
gólf, gluggi. Þar inn af er önnur
geymsla (köld), útgengt þaðan í
kjallaratröppur.
Lóðin við húsið er fullfrágengin,
garðurinn er afgirtur og mjög
snyrtilegur, teiknaður af Stanislas
Bohic. Timburpallar eru við húsið,
tyrft er að hluta, falleg gróðurker
með tréverki í kringum setja
mikinn svip á garðinn. Hellulögð
innkeyrsla vestan við húsið, pláss
fyrir tvo bíla. n
Nánari upplýsingar á skrifstofu
Híbýla í síma 585-8800. Vinsam-
legast bókið skoðun á eigninni
hjá: Ingibjörgu Þórðardóttur, lög-
giltum fasteignasala, s. 864-8800
/ ingibjorg@hibyli.is. Ólafur Már
Ólafsson, löggiltur fasteignasali, s.
865-8515 / olafur@hibyli.is.
Fallegt hús með mikinn sjarma
Húsið er rúm-
gott og uppgert
á undanförnum
árum.
Húsið stendur í miðbæ Hafnarfjarðar, á fallegum stað nálægt Hellisgerði.
Eldhús og stofa er opið rými.