Fréttablaðið - 31.05.2022, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 31.05.2022, Blaðsíða 40
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Kristbjargar Þórisdóttur n Bakþankar Einu sinni spurði ég systur mína sem hafði mikið verið í ævintýra- ferðum hvort það væri ekki erfitt að hætta þeim eftir að hún átti dóttur sína. Hún leit á unga dóttur sína og svaraði „jú, það voru vissulega ævintýraferðir en þetta er ævin- týri á hverjum degi.“ Eftir að ég eignaðist börnin mín skil ég þetta enn betur. Á Íslandi er talið að tólf til fimmtán þúsund konur þjáist af sjúkdómnum endómetríósu þó einungis um þrjú þúsund séu greindar. Tíundi hver einstaklingur sem fæðist í kvenlíkama þjáist af sjúkdómnum. Endómetríósa lýsir sér þannig að endómetríósufrumur setjast á yfirborðsþekju á hinum ýmsu líffærum, bregðast við mán- aðarlegum hormónabreytingum líkamans, valda bólgum og blöðrur og samgróningar geta myndast. Þetta veldur miklum sársauka. Engin lækning er til. Fyrir utan sársauka getur sjúk- dómurinn meðal annars valdið þvagblöðru- og þarmavandamálum auk hárrar tíðni af ófrjósemi. Sjúk- dómurinn getur haft áhrif á alla þætti lífsins – nám, starfsframa, efnahag, sambönd og almennt heil- brigði og velferð. Mikilvægt er að aðgengi sé að meðferð sérfræðings til þess að greina endómetríósu og meðhöndla það sem hægt er. Það vakti undrun mína þegar ung kona sem er mér nákomin sagði mér frá því nýlega að hún væri á leið í aðgerð hjá sérfræðingi í sjúk- dómnum sem myndi kosta hana 700 þúsund krónur. Getum við ekki tryggt betra aðgengi að þessari aðgerð án sligandi kostnaðar? Þannig getum við bætt líðan, lífsgæði og aukið möguleika kvenna með endómet- ríósu að njóta þess mikla ævintýris sem foreldrahlutverkið er. Mér skilst að málið sé í farvegi hjá ráð- herra heilbrigðismála og vonandi fæst úrlausn fljótt. (sjá endo.is). n Endómetríósa WWW.SVEFNOGHEILSA.IS ENGJATEIGI 17-19, REYKJAVÍK S:581 2233 BALDURSNESI 6, AKUREYRI S: 461 1150 OPIÐ: VIRKA DAGA.......KL. 10:00 -18:00 LAUGARDAGA....KL. 12:00 - 16:00 UMBOÐSAÐILAR: HÚSGAGNAVAL, HÖFN Í HF. BARA SNILLD, EGILSSTAÐIR Svefn heilsa& VERSLANIR: 25-50% afsláttur af völdum vörum og 10% afsláttur af öllu í verslun, nema vörum í umboðssölu. FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ! TAK-MARKAÐMAGN Í BOÐI! MEÐ ORKULYKLI FRÍTT KAFFI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.