Fréttablaðið - 31.05.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 31.05.2022, Blaðsíða 2
Sumarið er að koma Sumarfrí getur valdið streitu og vanlíðan hjá fólki með ADHD. Sálfræðingur segir mikilvægt að undirbúa fríið vel og gera ráð fyrir slökun í dagskránni. Þá er mikilvægt að veita börnum með ADHD skýrar upplýsingar um það sem fram undan er. birnadrofn@frettabladid.is SAMFÉLAG Drífa Björk Guðmunds- dóttir sálfræðingur segir sumarfrí geta valdið mikilli streitu og jafn- vel vanlíðan hjá bæði börnum og fullorðnum einstaklingum með ADHD. Hún flytur erindi á fræðslu- fundi á vegum ADHD samtakanna á morgun þar sem hún mun benda á ýmis hagnýt ráð til lausnar. Spurð að því á hvaða hátt sumar- frí geti valdið streitu og vanlíðan hjá einstaklingum með ADHD segir Drífa það ólíkt meðal barna og full- orðinna. „Börn með ADHD geta átt erfitt með að byrja á einhverju sjálf og þurfa oft aðstoð við það,“ segir hún. „Þau eiga oft erfitt með að byrja á leik og haldast ekki lengi við svo það kemur oft upp að þeim leiðist. Ef þau eru ekki með stanslaust pró- gramm geta þau orðið mjög eirðar- laus,“ bætir Drífa við. Hún segir vanlíðan gjarnan koma upp hjá börnum með ADHD þegar þau séu ekki með rútínu og prógramm líkt og í sumarfríum. „Þau keyra sig gjarnan upp í mikla spennu og í kjölfarið kemur spennu- fall. Maður heyrir það oft frá for- eldrum barna með ADHD að sama hvað sé gert séu börnin vanþakklát en þá er það ekki endilega vanþakk- læti heldur spennufall því þau eiga erfitt með tilfinningastjórnun,“ segir Drífa. Hún segir mikilvægt að veita börnunum skýrar upplýsingar um það sem fram undan er, þá séu þau frekar undirbúin. „Og ekki bara að leiðin liggi í þennan skemmtigarð eða eitthvað slíkt heldur líka það sem gerist eftir á, að svo sé farið heim til að hvíla sig til dæmis, þá eru þau undirbúin undir það að skemmtunin vari ekki að eilífu.“ Hjá fullorðnum með ADHD segir Drífa það algengt að fólk keyri sig út í fríinu. „Mörg þeirra ætla sér að gera svo mikið í fríinu að það verður ekk- ert frí. Fólk er jafnvel búið að fresta öllu þangað til það fer í frí og ætlar svo að klára allt þá,“ segir hún. Drífa segir það mikilvægt að fólk með ADHD útbúi grófa dagskrá fyrir fríið sem veiti því yfirsýn, þá sé mikilvægt að dagskráin inni- haldi einnig tíma til slökunar. „Þetta snýst um að gera hlutina sýnilega og skýra. Draga úr streitu, einfalda hlutina og undirbúa sig.“ Þá bendir hún á að mikilvægt sé að forgangsraða og sýna sjálfum sér mildi. „Til dæmis þegar verið er að pakka niður fyrir ferðalag má velta því fyrir sér hvað sé það versta sem getur gerst ef maður gleymir ein- hverju. Farseðillinn, passinn og ein- hverjir peningar eru númer eitt, tvö og þrjú en ef þú gleymir tannbursta eru ekki hundrað í hættunni,“ segir hún. Fyrirlesturinn fer fram í húsnæði ADHD samtakanna klukkan 19.30 annað kvöld og eru allir velkomnir. n Sumarfrí valdi streitu hjá einstaklingum með ADHD Drífa Björg sálfræðingur segir það mikilvægt að fólk með ADHD útbúi grófa dagskrá fyrir fríið sem veiti því yfirsýn. Þá sé mikilvægt að dagskráin inni- haldi einnig tíma til slökunar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM með og án rafmagns lyftibúnaði Komið og skoðið úrvalið Skútustaðaskóli hýsir nú Land- græðsluna, Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarð. MYND/UST Starfsfólk Reykjavíkurborgar vandaði sig við að gróðursetja litskrúðugu sumarblómin á Austurvelli í blíðskaparveðri gærdagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK ser@frettabladid.is NORÐURLAND Sú f or n f r æ g a menntastofnun, Skútustaðaskóli í Mývatnssveit, fékk í gær nýtt hlutverk þegar skrifstofur Land- græðslunnar, Umhverfisstofnunar og Vatnajökulsþjóðgarðs voru þar opnaðar með formlegum hætti. Guðlaug u r Þór Þórða r son, umhverfis-, orku,- og loftslags- ráðherra, opnaði húsið formlega og hafði á orði að skrifstofurýmið hefði heppnast sérstaklega vel og gæfi góða tilfinningu fyrir áfram- haldandi uppbyggingu á nýju hlut- verki gamla Skútustaðaskóla. Skólastarf í Mývatnssveit var um langa hríð rekið bæði á Skútu- stöðum og í Reykjahlíð, en var sameinað á síðarnefnda staðnum á miðjum síðasta áratug síðustu aldar. n Ríkisstarfsmenn taka yfir húsnæði Skútustaðaskóla kristinnhaukur@frettabladid.is SAMGÖNGUR Síðasta áætlunar- f lugið milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur var flogið í gær. Þetta er í þriðja skiptið á tveimur árum sem flugið stöðvast og hefur faraldurinn spilað þar inn í. En það eru Ernir og Icelandair sem hafa sinnt f luginu undanfarin ár. Innviðaráðuneytið veitti styrk til að koma flugi milli lands og Eyja aftur á laggirnar eftir faraldurinn. Þá hafa Eyjamenn einnig getað nýtt sér 40 prósenta afslátt af fargjöldum í gegnum Loftbrúarverkefnið. Nú telur ráðuneytið ekki forsendur til að styrkja flugið áfram. n Ekkert flug til Vestmannaeyja Flug hefur verið stop- ult undanfarin tvö ár. helenaros@frettabladid.is DÓMSMÁL Sindri Þór Sigríðarson var í gær sýknaður af kröfum Ing- ólfs Þórarinssonar í meiðyrðamáli í Héraðsdómi Reykjavíkur. Málið var höfðað vegna ummæla er lutu að samræði við börn. Sindri Þór mætti við uppsöguna og var að vonum ánægður með niður- stöðu málsins. Hann lét ummælin falla á samfélagsmiðlum í fyrra- sumar. Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður Ingólfs, segist ætla að ráðleggja Ingó að áfrýja dóminum til Landsréttar. n Sindri sýknaður af kröfu Ingós Ummælin féllu á sam- félagsmiðlum í fyrra- sumar. 2 Fréttir 31. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.