Fréttablaðið - 31.05.2022, Síða 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Kristbjargar
Þórisdóttur
n Bakþankar
Einu sinni spurði ég systur mína
sem hafði mikið verið í ævintýra-
ferðum hvort það væri ekki erfitt að
hætta þeim eftir að hún átti dóttur
sína. Hún leit á unga dóttur sína
og svaraði „jú, það voru vissulega
ævintýraferðir en þetta er ævin-
týri á hverjum degi.“ Eftir að ég
eignaðist börnin mín skil ég þetta
enn betur.
Á Íslandi er talið að tólf til
fimmtán þúsund konur þjáist
af sjúkdómnum endómetríósu
þó einungis um þrjú þúsund séu
greindar. Tíundi hver einstaklingur
sem fæðist í kvenlíkama þjáist af
sjúkdómnum. Endómetríósa lýsir
sér þannig að endómetríósufrumur
setjast á yfirborðsþekju á hinum
ýmsu líffærum, bregðast við mán-
aðarlegum hormónabreytingum
líkamans, valda bólgum og blöðrur
og samgróningar geta myndast.
Þetta veldur miklum sársauka.
Engin lækning er til.
Fyrir utan sársauka getur sjúk-
dómurinn meðal annars valdið
þvagblöðru- og þarmavandamálum
auk hárrar tíðni af ófrjósemi. Sjúk-
dómurinn getur haft áhrif á alla
þætti lífsins – nám, starfsframa,
efnahag, sambönd og almennt heil-
brigði og velferð. Mikilvægt er að
aðgengi sé að meðferð sérfræðings
til þess að greina endómetríósu
og meðhöndla það sem hægt er.
Það vakti undrun mína þegar ung
kona sem er mér nákomin sagði
mér frá því nýlega að hún væri á
leið í aðgerð hjá sérfræðingi í sjúk-
dómnum sem myndi kosta hana
700 þúsund krónur.
Getum við ekki tryggt betra
aðgengi að þessari aðgerð án
sligandi kostnaðar? Þannig getum
við bætt líðan, lífsgæði og aukið
möguleika kvenna með endómet-
ríósu að njóta þess mikla ævintýris
sem foreldrahlutverkið er. Mér
skilst að málið sé í farvegi hjá ráð-
herra heilbrigðismála og vonandi
fæst úrlausn fljótt. (sjá endo.is). n
Endómetríósa
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
ENGJATEIGI 17-19,
REYKJAVÍK
S:581 2233
BALDURSNESI 6,
AKUREYRI
S: 461 1150
OPIÐ:
VIRKA DAGA.......KL. 10:00 -18:00
LAUGARDAGA....KL. 12:00 - 16:00
UMBOÐSAÐILAR:
HÚSGAGNAVAL, HÖFN Í HF.
BARA SNILLD, EGILSSTAÐIR
Svefn heilsa&
VERSLANIR:
25-50% afsláttur af völdum vörum og
10% afsláttur af öllu í verslun, nema
vörum í umboðssölu.
FYRSTIR KOMA
FYRSTIR FÁ!
TAK-MARKAÐMAGN Í BOÐI!
MEÐ ORKULYKLI
FRÍTT
KAFFI