Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2018, Qupperneq 2

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2018, Qupperneq 2
Siglfirðingablaðið2 Ágætu Siglfirðingar! „Tímans djúpi er öld sem alda eða gári á stærri báru; mannsins æfi er hún hafið yztu lands milli stranda. (Bjarni Jónsson frá Vogi). Siglufjörður, bærinn okkar, býst í hátíðarbúning í dag. Tilefnið er, að heil öld er nú liðin síðan þessi afskekkti fjörður var lögiltur sem verslunarstaður. Í hundrað ár er hann, lengst af sem fámennur og fátækur búinn að heyja lífsbaráttu sína hér “úti við Dumbshafið kalda” og taka mörgum og margvíslegum framförum og stakkaskiptum.“ Svo komst Hannes Jónasson, ritstjóri Fram að orði, í blaðinu þann 20. maí 1918. Og síldarbærinn fagnar í ár 100 ár kaupstaðar afmæli og 200 ára verslunar afmæli. Margt hefur á dagana drifið, síldin komið og síldin farið, íbúafjöldinn farið úr 420 manns upp í 3200 manns og svo aftur í dag tæp 1200 manns. Siglfirðingafélagið og Vildarvinir Siglufjarðar réðust í gerð kvikmyndar í samvinnu við RÚV til að sýna 100 ára sögu kaupstaðarins sem sýnd verður í sjónvarpinu í haust. Þar verður reynt að sýna sögu fólksins sem byggði bæinn og bestu lofgjörð honum syngur, eins og Bjarki Árnason segir í laginu um Siglufjörð. Þar er líka rifjað upp þegar að Siglufjörður og síldin skiptu svo miklu máli í ríkisrekstrinum að leigubíll var sendur frá Stein dóri til Siglufjarðar, til að ná í bókhald Síldar­ útvegsnefndar og til öryggis bókhald einkasölu Áfengis verslunar ríkisins á Siglufirði til að hægt væri að ná saman fjárlögum og vita hvaða brýr og vegi mætti leggja. Gunnar Trausti Forsíðumyndin: Myndin er úr skógræktar­ paradís Sigl firðinga. „Jóhannslundur“ heitir eftir Jóhanni Þorvaldssyni, skóla­ stjóra og skóg ræktarfrömuði sem átti drýgstan þátt í skóg ­ ræktinni í Skarðsdal. Myndina tók Thomas Fleckenstein. SIGLFIRÐINGABLAÐIÐ FRÉTTABLAÐ SIGLFIRÐINGAFÉLAGSINS ÚTGEFANDI OG ÁBYRGÐ: SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ RITSTJÓRI: Gunnar Trausti Fr á rit st jó ra NÚ REYNIR Á YKKUR! Viðburðir á vegum Siglfirðingafélagsins á undan­ förnum árum hafa alla jafna verið vel sóttir og allir sammála um að félagið sé mikilvægur vettvangur til að hitta aðra Siglfirðinga og halda tengslin. Nokkur hundruð manns sækja hefðbundnar uppákomur hjá félaginu á hverju ári; Kaffidaginn, jólaballið, mynda­ sýningar o.fl. Félagið er eitt stærsta og öflug asta átt­ hagafélag landsins og þannig viljum við halda því. En þessir viðburðir skipuleggja sig ekki sjálfir og við þurfum fleira fólk til starfa. Það liggur fyrir að það verða breytingar á stjórn Siglfirðingafélagsins á aðalfundinum 30. október nk. Til þess að félagið geti haldið uppi öflugri starfsemi þá þurfum við að fá fleiri til starfa. Við hvetjum ykkur því til að mæta á aðalfundinn og bjóða fram krafta ykkar. Hvort sem er í stjórn eða í nefndir. Aðalfundurinn verður að þessu sinni haldinn í safnaðarheimili Bústaðakirkju þar sem aðgengi er þægilegt og næg bílastæði. Fyllum salinn 30. október kl. 20 og sýnum í verki að við berum hag félagsins okkar fyrir brjósti. Við sem þetta skrifum erum búin að standa í stafni félagsins mjög lengi. Það er nauðsynlegt að fá fleira fólk að borðinu og því biðlum við til félagsmanna að leggja félaginu lið. Sjáumst á aðalfundinum 30.okt. nk. Rakel Fleckenstein Björnsdóttir, formaður Jónas Skúlason, varaformaður Allir Siglfirðingar og aðrir fastagestir hvattir til að gera sér glaðan dag með Alla Rúts og starfsmönnum. Sími 566 8822 · hotellaxnes@hotellaxnes.is

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.