Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Síða 4
Siglfirðingablaðið4
Afmælishátíð Siglufjarðar
20. maí á Siglufirði
Haldið var upp á tímamótin, 100
ára kaupstaðarafmæli Siglufjarðar
og 200 ára verslunarafmæli, á
afmælisdegi bæjarins 20. maí.
Afmælisnefnd á vegum Fjalla
byggðar hafði veg og vanda að
undirbúningi dagsins og allri
framkvæmd en formaður Sigl
firðingafélagsins átti sæti í
nefndinni. Siglfirðingafélagið og
Vildarvinir Siglufjarðar buðu á
opið hús og færðu bænum veglega
gjöf.
Komu færandi hendi
Meðal viðburða á Siglufirði var
dagskrá fyrir börn í íþrótta húsinu
á laugardeginum, fermingar og
afmælismessa í Siglufjarðarkirkju
á sunnu dagsmorgninum og
hátíðar fundur bæjarstjórnar
Fjallabyggðar og hátíðarkaffi
fyrir bæjarbúa og aðra gesti
í íþróttahúsinu. Þar komu
fram Sturlaugur Kristjánsson,
bæjarlistamaður Fjallabyggðar,
Síldargengið, Kór eldri borgara
og sönghópurinn Gómarnir.
Vildarvinir Siglufjarðar og
Sigl firðingafélagið afhentu
bæjar stjóranum Gunnari Birgis
syni gjafir frá brottfluttum
Siglfirðingum: Síldartunnu
sem innihélt stafræn afrit af
kvikmyndum (8 mm spólum) og
hljóð upptökum úr sögu Siglu
fjarðar, sem Vildar vinir hafa
safnað saman á síðast liðnum
fimm árum, og 5 heimildar
myndaþætti um sama efni sem
RÚV sýnir í sjónvarpinu í vetur.
Stutt sýnishorn úr þáttunum, sem
hlotið hafa nafnið Siglufjörður
saga bæjar, var svo sýnt á stóru
sýningartjaldi.
Stjórn Siglfirðingafélagsins og afmælisnefnd sunnan heiða:
Margrét Birgisdóttir, Rakel Fleckenstein Björnsdóttir, formaður, Guðmundur Stefán
Jónsson, formaður Vildarvina, Gunnar Trausti, Halldóra Jónasdóttir og Jónas
Skúlason. Á myndina vantar Ásdísi Jónu Sigurjónsdóttur og Söndru Hjálmarsdóttur.