Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Side 8

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Side 8
Siglfirðingablaðið8 Ómetanleg gjöf Hvað er svona merkilegt við það að vera Siglfirðingur! Hvað er það í genum okkar Siglfirðinga sem gerir okkur svona trygga heimabyggðinni. Eru það fjöllin? Er það skammdegið eða er það sú mikla samkennd, tryggð og kærleikur sem allir hafa að leiðarljósi í samskiptum sínum og einkennir Siglfirðinga nær og fjær. Um aldamótin 1900 var einvörðungu ein gata á Siglufirði, Gránugatan. 10 ­ 15 árum síðar eru skráðar 24 götur í bænum. Afi minn var í fyrstu bæjarstjórn Siglufjarðar 1919, faðir minn sat einnig í bæjarstjórn um 1950, Grána, Rauðkutórarnir, Stóriboli, Skarðsmótin, Malarvöllurinn, Æskulýðsheimilið, Júlli Júll og gólfið í sundlauginni. Öll eigum við slíkar minningar úr fortíðinni. Í erindi í ljóðinu „Úti er ævintýri“ eftir Ólaf Ragnarsson, fyrrverandi formann Siglfirðingafélagsins, bregður hann upp sýn á augnablik úr sinni æsku: Hafir þú barnsskónum slitið í blómstrandi síldarbæ og unnið á iðandi plönum áttu þitt ævintýri um ókomna tíð, átt merlandi minningasafn í sálu þinni og sinni. Vildarvinir Siglufjarðar Siglfirðingafélagið ásamt um 30 bakhjörlum stofnaði Vildarvini Siglufjarðar, takið eftir þann 20. maí 2008 eða fyrir nákvæmlega tíu árum síðan. Tilgangur Vildarvina er að vinna að áhugaverðum menningar – og félagslegum verkefnum á Siglufirði og stuðla að eflingu byggðarinnar á sviði ferðaþjónustu og annarrar atvinnu starfsemi. Þegar kom að því að hefja undirbúning að gjöf handa afmælisbarninu fyrir fimm árum beindist hugur okkar fljótt að þeim miklu menningarverðmætum sem fólust í því kvikmyndaefni sem félagar í Kvikmyndaklúbbnum Linsunni tóku um miðja síðustu öld. Má þar nefna myndir frá starfsemi Prentsmiðju Siglufjarðar, starfsemi Tunnuverksmiðjunnar og starfseminni í Æskulýðs­ heimilinu. Síðast en ekki síst er það þó „fólkið sem byggði bæinn“. Myndefni úr sögu Siglufjarðar En hvernig var hægt að nýta það? Fram kom hugmynd um að gera kvikmynd um sögu Siglufjarðar og nýta til þess framangreint efni. Þessi hugmynd þróaðist síðar yfir í gerð sjónvarpsþátta í samvinnu við RÚV. Gengið hefur verið frá samstarfssamningi um framleiðslu 5 sjónvarpsþátta, Siglufjörður í 100 ár, og er vinna við gerð þeirra langt komin. Þættirnir verða á dagskrá RÚV næsta vetur. Annar hluti gjafarinnar er svo stafrænt afrit af öllu því myndefni sem við höfum safnað. Þar má nefna myndir margra Siglfirðinga s.s Njarðar Jóhannssonar, Tomma Hallgríms, Gumma Jóns., Óla Ragnars o.fl. Einnig höfum við fengið efni úr safni RÚV og þætti frá Ingva Hrafni á ÍNN um Siglufjörð. Þá má geta þess að í samvinnu við Utanríkisráðuneytið höfðum við upp á myndefni í Noregi sem tengist síldarsögunni og hefur það verið afritað. Að lokum má nefna að við höfum undirritað samning við Kvikmyndasafn Íslands sem tryggir aðgengi að skoðunarhæfu efni tengdu sögu Siglufjarðar. Er þar um 63 filmur að ræða. Horft í eina og hálfa viku Síðustu fimm ár höfum við leitað og knúið dyra til að afla þessa efnis. Þetta hefur kostað blóð, svita og tár og nokkuð af fjármunum sem styrktaraðilar okkar og bakhjarlar hafa verið svo frábærir að leggja fram. Fyrir það erum við afar þakklát. Gaman er að geta þess að alls tekur um eina og hálfa vinnuviku að horfa á efnið í heild sinni. Við lítum svo á að þessu verki sé ekki lokið og tryggja þurfi farveg fyrir eigendur myndefnis, sem ekki náðist að safna hér, til að koma því í varðveislu á stafrænu formi hér á Siglufirði. Við vonum að efnið geti nýst komandi kynslóðum til dægrastyttingar og til vinnslu heimildamynda og er okkur þá hugsað til nemenda í framhaldsskólanum á Tröllaskaga. Í upphafi vitnaði ég í „minningasafn“ í ljóði fyrirmyndar okkar krakkanna í barnaskóla Siglufjarðar, Ólafs Ragnarssonar. Hann stofnaði kvikmyndaklúbbinn Linsuna ásamt nokkrum félögum 1963 eða 64. Við vonum og trúum að þetta minningasafn sem við afhendum hér í formi væntanlegra sjónvarpsþátta og þessum fjölda kvikmyndabúta sem varðveittir eru á rafrænu formi í þessari tunnu, verði sem flestum Siglfirðingum og íbúum Fjallabyggðar skemmtilegar minningarperlur. Við vonum að þetta myndefni sem við gefum hér verði notað af virðingu við upphaflega rétthafa þess. Við viljum biðja bæjarstjóra Gunnar Birgisson að koma og taka við þessari gjöf frá Siglfirðingafélaginu og Vildarvinum Siglufjarðar. Útdráttur úr ræðu Guðmundar Stefáns Jónssonar, formanns Vildarvina Siglu- fjarðar, við af hendingu gjafar.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.