Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Síða 17
Siglfirðingablaðið 17
Þann 13. október sl. var stytta af
Gústa guðsmanni vígð á Ráð
hústorginu á Siglufirði.
Undanfarin ár hafa forsvarsmenn
Sigurvins – Áhugamannafélags
um minningu Gústa guðsmanns á
Siglufirði unnið að því að láta gera
styttu af Gústa og koma henni
fyrir á Ráðhústorginu.
Í forystu Sigurvins hafa verið
Vigfús Þór Árnason, fyrrverandi
sóknarprestur og bæjarfulltrúi
á Siglufirði, Kristján L. Möller,
fyrrverandi alþingismaður,
ráðherra og bæjarfulltrúi á
Siglufirði og Hermann Jónasson
framkvæmdastjóri.
Ágúst Gíslason frá Dýrafirði
Ágúst Gíslason, sem oftast var
nefndur Gústi guðsmaður á
Siglufirði, var fæddur í Hvammi
í Dýrafirði árið 1897. Hann lést
árið 1985 og var kvaddur hinstu
kveðju frá Siglufjarðarkirkju.
Skilnaðarræðu Krists flutti
Gústi sjálfur í eigin jarðarför
en Siglfirðingurinn Karl Eskil
Pálsson, fréttamaður á RÚV,
hafði tekið lestur Gústa upp á
Ráðhústorginu. Til Siglufjarðar
kom Gústi til að stunda sjó
mennsku.
Árið 1948 urðu stundaskil í lífi
Gústa en þá gerðist atburður í lífi
hans sem átti eftir að móta allt
hans líf. Um þann atburð notaði
Gústi eftirfarandi orð: „Ég hitti
Guð á Akureyri árið 1948 en þar
samdist svo með okkur, Guði og
mér, að ég keypti bát með honum
og færi í útgerð þar sem öllum
afla yrði varið til kristniboðs.“
Og aflann, sem hann dró, til
kristniboðs hann gaf
Gústi réðist í þessa útgerð og
keypti bát sem hann nefndi
Sigurvin. Hann gerði bátinn
út fyrir kristniboð allan sinn
starfsdag. Ánægjulegt er að vita
að báturinn hans, Siguvin, er
varðveittur á Síldarminjasafninu á
Siglufirði. Þar er einnig listaverk
af Gústa gert af Aðalheiði S.
Eysteindóttur listamanni. Stytta
af Gústa á Ráðhústorginu
mun án efa benda fólki á að
leggja leið sína á hið glæsilega
Síldarminjasafn og að skoða
björgunarbát Siglfirðinga sem ber
nafnið Sigurvin en í stafni hans er
biblían hans Gústa varðveitt.
Vígsla styttu af
Gústa Guðsmanni
Gústi brýnir raust sína yfir siglfirskum gutta.