Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Blaðsíða 19

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Blaðsíða 19
Siglfirðingablaðið 19 Poppað á Sigló - þriðji hluti Tímarnir breytast. Við upphaf nýs áratugar breyttist margt og þar á meðal tónlistin. Nýir áhrifavaldar komu til sögunnar með nýja strauma og stefnur. Bítlarnir voru hættir og margir samtíðamenn þeirra voru búnir að gera sína bestu hluti. Woodstook tónleikarnir, rokkóperan Jesus Crist Superstar, hljómsveitir á borð við Cream, Who, Santana, Led Zeppelin Deep Purple, Black Sabbath, Queen, Creedence og auðvitað margir fleiri voru fulltrúar hinna nýju tíma. Þetta þýddi mikinn vendipunkt hjá mörgum ungpopparanum og það þurfti að hugsa margt upp á nýtt, og þá voru nokkrir nýfermdir unglingar norður á Sigló þar engin undantekning. Við guttarnir litum upp til eldri hljómsveitartöffarana í bænum, enda voru þeir helstu áhrifavaldarnir í okkar nærumhverfi. Það var um þetta leyti sem ég eignaðist minn fyrsta plötuspilara. Ekki man ég tegundarheitið, en þetta var mónógræja í leðurlíkisklæddum trékassa með loki sem var hægt að smella yfir hann eftir að rafmagnssnúran hafði verið gerð snyrtilega upp. Síðan voru höldur á einni hliðinni á trékassanum sem leit þá út eins og ferðataska af allra minnstu og fornfálegustu gerð. Þennan plötuspilara átti ég í nokkur ár og reyndist hann mun betur en útlitið benti til. Framan af átti ég lítið sem ekkert af plötum, en það breyttist snarlega einn daginn. Nokkur áróður var rekinn af litlum hópi ungra manna og kvenna fyrir þróaðra rokki hinna nýju tíma og það óvirðulega nafn “kúlutyggjópopp” var notað á niðurlægjandi hátt um þá sem enn voru svo “púkó”, að þeir hlustuðu á Hermann Hermits og álíka súkkulaðidrengi. En hver vill vera púkó? Ekki ég, sungu Stuðmenn hérna um árið og þannig var það með marga á þessum viðkvæma aldri. Þórhallur Ben var einn þeirra sem ákvað að selja megnið af gömlu plötunum sínum og byrja nýtt tónlistarlíf. Ég keypti af honum fullt af “kúlutyggjói” á 300 kall stórar plötur og 100 kall litlar sem ég á flestar enn. Þarna voru nokkrar frumútgáfur Stones og Bítlanna, en einnig fínar skífur með Kinks, Bee Gees, Dave Clark Five, Beach Boys, Searchers og fleirum. Það varð í framhaldinu mín sakbitna sæla að hlusta á kúlutyggjópoppið næstu árin og hafði ég mikla unun af, en ég var auðvitað ekkert að flagga því. Þórhallur og gítargoðin. Um Þórhall er það að segja að ein af fyrstu plötunum sem hann keypti eftir þetta, voru Woodstock hljómleikarnir og sátum við stundum heima hjá honum eftir skóla og hlustuðum með galopin eyrun á þennan nýja tón sem nú hafði verið sleginn. Þá var Electrick Ladyland með sjálfum Jimi Hendrix næst á innkaupalistanum og dag einn var hringt í Hverfitóna sem var þá ein aðal plötubúðin í Reykjavík og spurt um þetta meistaraverk. Því miður var hún uppseld í augnablikinu, en myndi sennilega koma með næstu sendingu eftir tvær vikur. Ég man að þetta voru mikil vonbrigði, því á þessum árum er alltaf erfitt að þurfa að bíða. En konan í búðinni mælti með annarri plötu með nýrri óþekktri hljómsveit sem var spáð mikilli velgengni og bætti því við að þeir sem hlustuðu á Hendrix myndu líka fíla þessa. Með hálfum huga samþykkti Þórhallur að festa kaup á plötu nýliðanna, en spurði auðvitað hvað hljómsveitin héti. Led Zeppelin var svarið og fyrsta skífa þeirrar hljómsveitar lagði í kjölfarið af stað til Siglufjarðar í póstkröfusendingu frá Hverfitónum til Þórhallar Ben. Þegar krafan hafði verið leyst út á pósthúsinu var farið með hana upp á Þormóðsgötu og platan sett undir nálina. Það var ekki Æskulýðsheimilið á Siglufirði eða Æskó.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.