Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Blaðsíða 22

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Blaðsíða 22
Siglfirðingablaðið22 bæði mér og mörgum fleirum talsverðum heilabrotum. Þeir bræður Guðmundur og Arnar Ingólfssynir hófu æfingar upp úr 1970, ásamt Þorleifi Halldórssyni (Þolla) í Túngötu 2 þar sem faðir þeirra bræðra rak á þeim tíma rafmagnsverkstæði. Við yngri guttarnir stóðum stundum fyrir utan og hlustuðum og vorum nokkuð sammála að einhverra vegna væri þessi samsetning ekki alveg að gera sig. Það gekk reyndar eftir því eftir að auglýstur var dansleikur í Alþýðuhúsinu hjá Brandi fóru engar frekari sögur af hljómsveitinni, en það var sagt að aðeins hefðu mætt þrír á ballið, sumir sögðu sjö. En það var nafnið sem eins og fyrr segir sem vakti nokkra athygli, en bandið nefndist FART. Spurningin var hvort það var sótt í dönskuna og þýddi þá hraði, eða var kannski komið úr engilsaxnesku sem þýddi þá reyndar allt annað. Texti Leó R. Ólason. Heimildarmenn: Ragnar Antonsson, Friðfinnur Hauksson, Þorleifur Halldórsson, Birgir Ingimarsson og Stefán Friðriksson. Ein af nafnlausu hljómsveitunum: Birgir Ingimarsson, Leó R. Ólason, Óskar Elefsen og Guðni Sveinsson. Jólaball Siglfirðingafélagsins verður haldið í sal KFUM og KFUK við Holtaveg fimmtudaginn 27. desember og hefst kl. 17.00. Hljómsveitin Fjörkarlarnir spilar og syngur og Hurðaskellir og Stúfur bróðir hans mæta með góðgæti handa börnunum. Heitt kakó og vöfflur í boði Jólaballsnefndarinnar. Látið sjá ykkur! Jólakveðjur frá Siglfirðingafélaginu Jólaball 2018

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.