Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2018, Side 26
Siglfirðingablaðið26
10 ár liðin frá opnun
Hótel Laxnes
Hótel Laxnes var formlega opn að
í september 2008 að viðstöddu
fjölmenni.
Á hótelinu eru 26 herbergi við
allra hæfi, þrjár svítur, herbergi
með sérinngangi og eldun ar
aðstöðu auk tveggja stúdíóíbúða
fyrir fatlaða á fyrstu hæð.
„Fyrsta skóflustungan var tekin
árið 2004 og tók fjögur ár að
byggja hótelið, einn nagla í einu,“
segir Albert Rútsson hóteleigandi.
„Þegar ég keypti Áslák á sínum
tíma sá ég mikil tækifæri í lóðinni
hér í kring. Fólk hélt auðvitað að
ég væri brjálaður.
Fyrst leigði ég skólakrökkum og
öðrum stúdíóíbúðinar á neðri
hæðinni en svo kom sprengingin
í ferðamannaiðnaðnum. Frá
þeim tíma höfum við vaxið ört
frá ári til árs. Tíminn hefur verið
fljótur að líða og hótelið fengið
góða dóma. Markaðssetningin
fer mikið fram á netinu og hefur
gengið vel. Við erum með átta
manns í vinnu og svo er Áslákur
alltaf opinn til miðnættis.
Hótelið stækki í náinni framtíð
Búið er að teikna stækkun við
hótelið og þá myndi herbergjum
fjölga um 40. „Ég á von á því að
það gerist í náinni framtíð. Um
áramótin tekur við nýr hótelstjóri
og fjölskyldan mín mun meira
koma inn í reksturinn. Ég er auð
vitað farinn að eldast en mun þó
alltaf fylgist með á hliðar línunni.
Aðspurður um hvort hótelið væri
ekki til sölu svarar Alli að salan
á sínum tíma hafi sem betur fer
klikkað. Framtíðin sé björt og
aldrei hafi fleiri gestir sótt hótelið.
„Við höfum auglýst bæjarfélagið
mjög mikið og allt sem það hefur
upp á að bjóða. Það er stutt að
fara til og frá Reykjavík og margir
okkar gesta vilja vera aðeins fyrir
utan miðbæinn.
Við fáum t.d. mikið af gestum frá
Þýskalandi, Englandi, Ameríku
og nú eru Japanir að flykkjast
hingað.“
Vegleg gjöf til
björgunarsveitarinnar
Í tilefni af 10 ára afmæli
hótelsins ákvað Alli að gefa
björgunarsveitinni Kyndli
100.000 kr. og 300 eintök af
ævisögu sinni sem kom út fyrir
skömmu. Það má því segja að
gjöfin til Kyndils geti orðið að
andvirði einnar milljónar.
Þú færð Siglfirðingablaðið sent til þín vegna þess
að þú ert meðlimur í Siglfirðingafélaginu.
Allir sem fæddir eru á Siglufirði eða hafa einhvern
tímann skráð sig í félagið eða verið skráðir af
öðrum í félagið eru félagsmenn. Siglfirðingafélagið
er átthagafélag með um 2400 félagsmenn sem
búsettir eru á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum
uppákomum og sendir félagsmönnum tvö blöð
á ári, eitt að vori og annað að hausti. Félagsgjöld
í félaginu eru í dag kr. 1.500 og eru ákveðin á
árlegum aðalfundi félagsins.
Stjórn Siglfirðingafélagsins vill gjarnan hafa þig
áfram í félaginu en í ljósi nýrra reglna um
persónuvernd viljum við benda félagsmönnum á að
hægt er að segja þig úr félaginu hvenær
sem er með því að senda tölvupóst á
stjorn@siglfirdingafelagid.is.
Upplýsingarnar um félagsmenn varðveitast í gagna
grunni félagsins og verða aldrei sendar til þriðja
aðila í markaðstilgangi.
Við vonumst eftir að hafa þig áfram
í okkar frábæra félagi!
Siglfirðingafélagið
í ljósi nýrra reglna um persónuvernd