Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2018, Qupperneq 26

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2018, Qupperneq 26
Siglfirðingablaðið26 10 ár liðin frá opnun Hótel Laxnes Hótel Laxnes var formlega opn að í september 2008 að viðstöddu fjölmenni. Á hótelinu eru 26 herbergi við allra hæfi, þrjár svítur, herbergi með sérinngangi og eldun ar­ aðstöðu auk tveggja stúdíóíbúða fyrir fatlaða á fyrstu hæð. „Fyrsta skóflustungan var tekin árið 2004 og tók fjögur ár að byggja hótelið, einn nagla í einu,“ segir Albert Rútsson hóteleigandi. „Þegar ég keypti Áslák á sínum tíma sá ég mikil tækifæri í lóðinni hér í kring. Fólk hélt auðvitað að ég væri brjálaður. Fyrst leigði ég skólakrökkum og öðrum stúdíóíbúðinar á neðri hæðinni en svo kom sprengingin í ferðamannaiðnaðnum. Frá þeim tíma höfum við vaxið ört frá ári til árs. Tíminn hefur verið fljótur að líða og hótelið fengið góða dóma. Markaðssetningin fer mikið fram á netinu og hefur gengið vel. Við erum með átta manns í vinnu og svo er Áslákur alltaf opinn til miðnættis. Hótelið stækki í náinni framtíð Búið er að teikna stækkun við hótelið og þá myndi herbergjum fjölga um 40. „Ég á von á því að það gerist í náinni framtíð. Um áramótin tekur við nýr hótelstjóri og fjölskyldan mín mun meira koma inn í reksturinn. Ég er auð­ vitað farinn að eldast en mun þó alltaf fylgist með á hliðar línunni. Aðspurður um hvort hótelið væri ekki til sölu svarar Alli að salan á sínum tíma hafi sem betur fer klikkað. Framtíðin sé björt og aldrei hafi fleiri gestir sótt hótelið. „Við höfum auglýst bæjarfélagið mjög mikið og allt sem það hefur upp á að bjóða. Það er stutt að fara til og frá Reykjavík og margir okkar gesta vilja vera aðeins fyrir utan miðbæinn. Við fáum t.d. mikið af gestum frá Þýskalandi, Englandi, Ameríku og nú eru Japanir að flykkjast hingað.“ Vegleg gjöf til björgunarsveitarinnar Í tilefni af 10 ára afmæli hótelsins ákvað Alli að gefa björgunarsveitinni Kyndli 100.000 kr. og 300 eintök af ævisögu sinni sem kom út fyrir skömmu. Það má því segja að gjöfin til Kyndils geti orðið að andvirði einnar milljónar. Þú færð Siglfirðingablaðið sent til þín vegna þess að þú ert meðlimur í Siglfirðingafélaginu. Allir sem fæddir eru á Siglufirði eða hafa einhvern tímann skráð sig í félagið eða verið skráðir af öðrum í félagið eru félagsmenn. Siglfirðingafélagið er átthagafélag með um 2400 félagsmenn sem búsettir eru á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppákomum og sendir félagsmönnum tvö blöð á ári, eitt að vori og annað að hausti. Félagsgjöld í félaginu eru í dag kr. 1.500 og eru ákveðin á árlegum aðalfundi félagsins. Stjórn Siglfirðingafélagsins vill gjarnan hafa þig áfram í félaginu en í ljósi nýrra reglna um persónuvernd viljum við benda félagsmönnum á að hægt er að segja þig úr félaginu hvenær sem er með því að senda tölvupóst á stjorn@siglfirdingafelagid.is. Upplýsingarnar um félagsmenn varðveitast í gagna­ grunni félagsins og verða aldrei sendar til þriðja aðila í markaðstilgangi. Við vonumst eftir að hafa þig áfram í okkar frábæra félagi! Siglfirðingafélagið í ljósi nýrra reglna um persónuvernd

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.