Fréttablaðið - 23.06.2022, Page 12

Fréttablaðið - 23.06.2022, Page 12
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@ frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Þjónusta við aldraða landsmenn hefur verið í skötulíki á mörgum sviðum og stirt og óþjált kerfi hins opinbera hefur oft og tíðum verið bein- línis mann- fjandsam- legt. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is ser@frettabladid.is Friðað Ekki taldi ríkið sig hafa efni á því að kaupa eina helstu náttúruger- semi þjóðarinnar, Fjaðrárgljúfur í Skaftárhreppi og nýtti þar ekki forkaupsrétt sinn í þeim efnum. En klókur má ráðherra umhverf- ismála vera með því að koma sér í samband við kaupandann að landinu mikla í austri og gera við hann svolítinn samning um friðun svæðisins með þeim skilmálum að almenningur megi þar stunda frjálsa för. Þetta heitir að ná sínu fram án þess að borga krónu fyrir það. Spurning hvort viðkomandi ráðherra eigi að flytja sig yfir í fjármálaráðu- neytið. Greiðsla Annars fer hver og einn lands- maður – svo og allir útlending- arnir sem hér eru að fylla dali og heiðar – að verða síðastur til að komast frítt inn á téðar náttúrugersemar. Það er af því að þegar Íslendingar fá eitthvað á heilann ganga þeir alla leið í þráhyggjunni. Og viti menn, ef einn land- eigandi byrjar á því að rukka inn á perluna sína, þá fara aðrir af stað. Ef eitthvað er víst á Íslandi, þá er það svo. Þess vegna setja nú Mývetningar sig í stellingar í þessum efnum – og þegar gjalds- kúrinn verður reistur bæði við Hveraröndina og Hverfjall, í anda Kersins, hefst skúravæð- ingin fyrst fyrir alvöru. ■ Aukið var við framboð leiguíbúða í vikunni þegar Hús- næðis- og mannvirkjastofnun úthlutaði fyrri úthlutun stofnframlaga fyrir árið 2022. Þetta er mikilvæg inn- spýting í framboð á leigumarkaði en á þessu ári hafa 550 hagkvæmar leiguíbúðir verið teknar í notkun, það eru 40% af öllum nýjum íbúðum sem komið hafa á markað á árinu. Landsbyggðin er stór þátttakandi í uppbyggingu á leiguhúsnæði sem styrkt eru með stofn- framlögum. Mikil eftirspurn hefur verið eftir stofnframlögum en á síðasta ári náðist þó ekki að úthluta öllu því fjár- magni sem heimildir voru fyrir í fjárlögum. Var skortur á byggingarhæfum lóðum einna helst skýringin. Stofn- framlög skapa hvata til að auka framboð af leiguhús- næði og er framlag ríkis og sveitarfélaga til kaupa eða byggingar á íbúðum til leigu fyrir einstaklinga sem eru undir tekju- og eignamörkum. Það er sérlega ánægju- legt að sjá að yfir 30 sveitarfélög víða um land samein- ast um þessa mikilvægu lausn með því að setja á stofn sameiginlegt óhagnaðardrifið leigufélag og veita þar með sterka viðspyrnu gegn hækkunum á leigumarkaði. Það er ríkisstjórninni mikið hagsmunamál að stuðla að bættri stöðu fólks. Í gegnum stofnframlög hafa nú þegar verið byggðar 1.550 íbúðir og er annað eins í byggingu. Í fyrri úthlutun ársins 2022 hefur HMS úthlutað 2,6 milljörðum til uppbyggingar á 328 íbúðum en því til viðbótar bætist við framlag frá sveitar- félögum. Leiguíbúðirnar dreifast víða um land og hefur hlut- fall íbúða á landsbyggðinni aldrei verið hærra, eða 46%. Af þeim 328 íbúðum sem úthlutun ársins nær til stendur til að byggja 279 nýjar íbúðir en kaupa 49 nýjar og eldri íbúðir. Íbúðirnar verða allar að standast kröfur um hagkvæmni, en með því eru stjórnvöld að skapa hvata fyrir aukið framboð slíkra íbúða. Sameiginleg sýn ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu íbúða til samræmis við þörf til næstu ára mun skipta sköpum til að ná og halda jafnvægi á húsnæðismarkaði. ■ Leigumarkaður í jafnvægi Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra Steinhella 17a / 221 Hafnarfjörður / s. 577 5050 / www.gluggasmidjan.is gæða veka PLaSTgLuggar • Útlit eins og timburgluggar • Henta mjög vel í gluggaskipti! • Þarf ekki að skrapa og mála eins og timburglugga! Gott verð og stuttur afhendingartími! Það er ánægjulegt að heyra af aðgerðaáætlun stjórnvalda í mál- efnum eldra fólks á Íslandi, en hún var tilkynnt með nokkurri viðhöfn á Kjarvalsstöðum á þriðjudag. Þar undirrituðu ráðherrar fjármála, félagsmála og heilbrigðismála yfirlýsingu um heildar- endurskoðun á þjónustu við þennan stóra hóp landsmanna. Stjórnvöld á öllum tímum þurfa gagnrýni og aðhald, en það verður einnig að hrósa þeim þegar það á við. Og það er við hæfi af þessu tilefni þegar blásið er í herlúðra og málaflokkurinn fær þá athygli sem hann á skilið. Þjónusta við aldraða landsmenn hefur verið í skötulíki á mörgum sviðum og stirt og óþjált kerfi hins opinbera hefur oft og tíðum verið beinlínis mannfjandsamlegt þegar kemur að kjörum þessa fólks sem margt býr við einmanaleika og geðlægð – og getur fyrir vikið ekki notið efri áranna. Þessi sleifarháttur hefur ekki síst stafað af því að kerfin, sem kunna að vera ágæt út af fyrir sig, tala ekki saman. Málefni eldra fólks er að finna í ekki færri en fjórum ráðuneyt- um og opinber þjónusta við hópinn er ýmist á hendi ríkisins eða sveitarfélaga. Þar hefur vandinn legið um langt árabil – og nú loksins á að taka á honum með því að samhæfa þjónustuna við aldraða svo þeir verði ekki strandaglópar á mörkum ríkis og bæja. Þá á einnig að taka á húsnæðisvanda fólks á þessum aldri, en hann hefur verið ærinn á undanliðnum áratugum og versnað á allra síðustu árum, ekki síst sakir þess að þær úrlausnir sem eru í boði eru ýmist of dýrar eða úr takti við væntingar eldra fólks á nýrri öld. Allt of margt af því er beinlínis innlyksa í sérbýli sínu, gjarnan of stóru, af því það er aftarlega á biðlistum eftir öðru úrræði. Og ástæðu þess má rekja til þess að enn aðrir búa allt of lengi á hjúkrunarheimilum, sem er ein kostnaðarsamasta heilbrigðisþjónustan, af því að ekki er öðrum dvalarúrræðum til að dreifa. Loks hírist hópur fólks á göngum spítalanna sem hefur í engin önnur hús að venda. Það er ekki seinna vænna að taka til hendinni í þessum mikilvæga málaflokki. Mannfjöldaspá Hagstofunnar gerir ráð fyrir því að tuttugu prósent þjóðarinnar verði eldri borgarar árið 2039 og tuttugu og fimm prósent hennar verði í þeim hópi árið 2059. ■ Aðgerðir, loksins SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 23. júní 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.