Fréttablaðið - 23.06.2022, Page 16
Guðrún Erla Leifsdóttir, ávallt
kölluð Erla, er framkvæmdastjóri
Timberland á Íslandi. Erla og
eiginmaður hennar, Samúel Guð-
mundsson, keyptu 50 prósenta
eignarhlut í TBLSHOP Ísland ehf.
árið 2018 og eignuðust það að
fullu á síðastliðnu ári. Samúel er
stjórnarformaður en reksturinn er
alfarið í höndum Erlu. Þá sér dóttir
þeirra, Sæunn Sunna Samúels-
dóttir, um markaðsmálin. Maggý
Lárentsínusdóttir, dóttir Erlu
hefur líka hjálpað til við afgreiðslu
á álagstímum, en hún stundar
nám í hjúkrunarfræði. Svo hefur
barnabarn þeirra, Esekíel Örn, 14
ára, fengið að stíga sín fyrstu spor
í afgreiðslu í Timberland og vann
meðal annars á opnunardaginn.
Starfsmannahópurinn er þéttur og
segir Erla að hún líti nánast á hann
eins og litla fjölskyldu.
„Þeir sem hafa unnið hjá Tim-
berland hafa yfirleitt starfað í
nokkur ár og líður vel hjá okkur,“
segir Erla, stolt af starfsmanna-
hópnum sínum.
Vatnsheldir leðurskór í hálfa öld
Timberland varð heimsþekkt
fyrir „The Original Yellow Boot“
sem kom á markað 1973 og var
fyrsti vatnsheldi leðurskórinn sem
gerður hafði verið.
„Næsta ár verður stórt, þegar
The Yellow Boot verður 50 ára.
Hönnun og smíði skónna tók mörg
ár. Takmarkið var að gera vatns-
helda leðurskó, því á þeim tíma
voru ekki til vatnsheldir skór eins
og við þekkjum í dag. Þetta var
ekki auðvelt, ég hef heyrt að þeir
hafi sett skóna ofan í bala fullan
af vatni þegar þeir luku störfum
á kvöldin og tóku þá svo upp að
morgni til að athuga hvernig til
tókst. Að lokum fannst þessi frá-
bæra aðferð, að festa leðrið á skóna
án þess að gata það, sem varð
grunnurinn að vinsældum skónna.
Síðan hafa auðvitað komið ýmsar
aðrar gerðir af skóm og alltaf eitt-
hvað nýtt og spennandi ár hvert.“
Timberland á Íslandi í 20 ár
„Ég veit nú ekki hvenær fyrst var
farið að selja Timberland skó á
Íslandi en Timberland opnaði
fyrstu verslun sína í Kringlunni
2002 og naut strax mikilla vin-
sælda. Árið 2011 opnaði verslunin
á Laugavegi í gömlu en fallegu húsi
sem var aðeins 56 fermetrar. Því
miður þurfti að loka Laugaveg-
inum árið 2015 vegna skipulags-
breytinga í miðbæ Reykjavíkur.
Það var því tímabært að stíga nýtt
skref á tuttugu ára afmæli Tim-
berland á Íslandi og opna nýja
glæsilega Timberland verslun í
Smáralind,“ segir Erla.
Miklar vinsældir á Íslandi
Timberland náði fljótlega góðri
fótfestu á Íslandi og hafa skórnir
náð ótrúlegum vinsældum. Margir
höfðu kynnst þeim erlendis; Boots
í Bandaríkjunum og handsaum-
uðu bátaskónum í Evrópu.
„Ég held að vinsældir þeirra á
Íslandi séu svona miklar vegna
þess að fólk veit að þetta eru sterkir
og góðir skór. Það koma stundum
menn til okkar í Kringluna og
segjast vera búnir að eiga skóna í 10
til 15 ár, og þá kannski kominn tími
á endurnýjun! Ég segi líka oft þegar
fólk er að leita sér að „þægilegum“
skóm að þeir séu allir „þægilegir“,
það er bara misjafnt hvað hentar
hverjum og einum, því fætur okkar
eru auðvitað afar misjafnir.“
Sorglegt að missa gamla húsið
Nú eru verslanirnar tvær á besta
stað. Timberland í Kringlunni
hefur verið rekin frá árinu 2002, en
árið 2011 var opnuð lítil Timber-
land verslun á Laugavegi.
„Því miður varð að loka þeirri
verslun 2015 þegar húsið var selt
og ráðgert var að breyta skipulagi
á lóðinni. Það var frekar sorglegur
endir, því Timberland passaði svo
frábærlega í þetta litla gamla hús
sem á sínum tíma var eitt mest
myndaða hús borgarinnar og
stundum kallað „Jólahúsið“ þegar
fyrrum eigendur skreyttu það með
hvítum seríum fyrir jólin og var
það alveg geysilega fallegt.“
Björt og stílhrein
„Svo sérkennilegt sem það er að
Timberland passaði vel í 100 ára
hús á Laugavegi, þá passar það
eiginlega enn betur í Smáralind.
Verslunin er mjög björt og stíl-
hrein og bæði föt og skór njóta
sín einstaklega vel í þessum nýju
húsakynnum. Það er ótrúlega
mikil breyting frá Kringlunni,
sem er kannski ekki skrítið því
innréttingarnar eru upprunalegar
og 20 ára gamlar. Viðskiptavinir
Smáralindar hafa tekið okkur
opnum örmum en undanfarin ár
hefur fólk oft spurt hvort við séum
ekki líka í Smáralind. Það var því
tími til kominn að opna hér líka,
þó mörgum finnist mikið að hafa
tvær Timberland verslanir í ekki
stærra samfélagi. “
Netverslun fyrir nútímann
Rétt fyrir Covid opnuðu hjónin
netverslun sem reyndist mikið lán.
„Fljótlega eftir að við hjónin
hófum afskipti af rekstri Timber-
land á Íslandi vildum við opna
netverslun, okkur fannst það
einfaldlega hljóta að svara kröfum
nútímans. Við réðumst í hönnun
og uppsetningu netverslunarinnar
sem var tilbúin korter í Covid. Það
varð okkar lán, að vera komin á
netið áður en faraldurinn hófst
fyrir alvöru og bjargaði okkur eins
og mörgum öðrum verslunum á
erfiðum tímum, því það voru ekki
margir á ferðinni í Kringlunni
á meðan stífustu samkomutak-
markanirnar ríktu. Í byrjun var
þetta allt handvirkt en í fyrra
tengdum við birgðakerfið okkar
við netverslunina, sem ætti að gefa
öruggari og betri svörun. Svona
kerfi eru samt alltaf í stöðugri
endurnýjun og við reynum að
svara kröfum markaðarins í sam-
keppni við erlenda risa. Okkar
sérstaða er samt alltaf þjónustan
og persónuleg aðstoð þegar fólk er
í vanda varðandi stærðir og fleira.
Þar njótum við góðs af þekkingu
og reynslu starfsfólksins og sér-
staklega Margitu Keire, verslunar-
stjóra í Kringlunni, sem á marga
góða kunningja og vini meðal
fastra viðskiptavina okkar en hún
hefur starfað hjá Timberland á
Íslandi frá árinu 2013.“
Leitast við að láta gott af sér leiða
Timberland leggur mikla áherslu
á samfélagsábyrgð og sjálfbærni í
öllum rekstrinum.
„Við leggjum mikla áherslu á að
koma á framfæri þeim markmið-
um og aðgerðum sem Timberland
vinnur að, en það er til dæmis að
framleiðslan verði kolefnisjöfnuð
árið 2030. Þessu takmarki hyggj-
ast þeir meðal annars ná með
því að endurnýta plast, ull, leður,
nælon og hvaðeina sem notað er í
framleiðslunni. Timberland hefur
um áratuga skeið verið leiðandi í
umhverfis- og samfélagsmálum
bæði í gegnum framleiðsluna,
með stuðningi við bændur og
framleiðendur og einstökum verk-
efnum þar sem börn og fullorðnir
fá gefins skó og f leira. Fjöldi
verkefna er í gangi um allan heim.
Hér á landi höfum við leitast við
að láta gott af okkur leiða með
aðstoð við ýmis mannúðarmál,
við höfum því miður ekki enn
látið verða af því að vinna að skóg-
ræktar- eða landræktarstarfi en
okkur dreymir um að fara með
starfsfólkinu að gróðursetja eða
vinna að hreinsun á einhverjum
svæðum,“ segir Erla.
„Það er gaman að segja frá því
að við höfum haldið í upphaflegu
innréttingarnar í Kringlunni á
meðan margar verslanir hafa skipt
öllu út tvisvar til þrisvar, þetta vil
ég þakka því vandaða starfsfólki
sem unnið hefur hjá félaginu og
gengið vel um innréttingarnar og
passað upp á þær í gegnum árin.“
Starfsfólkið dýrmætast
Leyndardómurinn á bak við vel-
gengni Timberland er starfsfólkið.
„Ég held óhætt að segja að án
starfsfólksins værum við ekki upp
á marga fiska. Það hefur verið gæfa
okkar að hafa frábært starfsfólk
sem leggur metnað í að sinna
kröfum viðskiptavina og veita frá-
bæra þjónustu. Það krefst auðvitað
mikillar þolinmæði og samvisku-
semi að þjálfa upp nýtt starfsfólk
og kenna ungu fólki að meta þau
gildi sem eru í hávegum höfð hjá
Timberland. Mér sýnist þær Mar-
gita í Kringlunni og Katla, sem
nú er verslunarstjóri í Smáralind,
vera mjög ákveðnar og samstíga
í því að sú frábæra þjónusta sem
við höfum veitt í Kringlunni verði
einnig veitt í Smáralind,“ segir Erla.
Góður starfsmannahópur er
gulls ígildi, að mati Erlu.
„Katla Jóhannsdóttir, sem er
verslunarstjóri í Timberland í
Smáralind, er frábær starfsmaður.
Hún er rétt nýorðin tvítug og rúll-
ar því upp að vera verslunarstjóri.
Hún hóf störf hjá Timberland
aðeins 15 ára gömul og sýndi strax
á fyrsta degi að þarna var frábær
sölumaður á ferð. Hún hefur svo
unnið hjá okkur með skólanum
og á sumrin og því þekkir hún
vörurnar vel og getur óhikað
mælt með þeim hvar sem er og
hvenær sem er. Hún er einstak-
lega ábyrgðarfull, harðdugleg og
samviskusöm, hefur mikið frum-
kvæði, tekur áskorunum fagnandi
og leysir öll þau verkefni sem mér
dettur í hug að leggja fyrir hana.
Það er ómetanlegt að hafa svona
starfsmann í litlu fyrirtæki þar
sem fáar hendur þurfa að sinna
mörgum ólíkum verkefnum. Hún
hafði auðvitað frábæra fyrirmynd
í Margitu Keire, en þær hafa unnið
saman þessi ár og eru mjög góðar
vinkonur. Katla stundar nám við
Háskólann í Reykjavík á við-
skiptabraut og mun halda áfram
að sinna náminu í haust og við
erum því að leita að nýjum versl-
unarstjóra í hennar stað.“
Timberland ekki bara skór
Vöruúrvalið í verslununum er
gríðarlega fjölbreytt og vandað.
„Í verslunum okkar í Kringl-
unni og Smáralind bjóðum við
skó fyrir alla fjölskylduna og
höfum mjög breitt úrval, þó það
sé mjög mikill munur á fram-
boðinu haust og vor. Á sumrin eru
sandalar og léttir gönguskór áber-
andi en á veturna leðurskór og
stígvél eða boots. Auk þess höfum
við fjölbreytt úrval af frábærum
herrafatnaði, bolum og skyrtum
sem framleiddar eru úr lífrænni
bómull og hör, ullarpeysur og sl.
vetur fengum við meira að segja
endurunna ull. Yfirhafnirnar
eru léttar á sumrin en þyngri
og þykkari á veturna. Framboð
á kvenfatnaði er einungis brot
af því sem herrafatnaðurinn er.
Upphaflega var það fjölskylda
sem hóf að framleiða Timberland
skóna, en árið 2011 var fyrirtækið
selt til VF Corporation sem er
með höfuðstöðvar í Bandaríkj-
unum, en fyrirtækið er leiðandi í
framleiðslu á skóm og fatnaði og
framleiðir meðal annars Napa-
pijri, North Face, Vans, Dickies og
f leira.“
Veit fátt ánægjulegra en við-
skiptavin með bros á vör
Erla er bæði meyr og full þakklætis
fyrir þær viðtökur sem verslanir
þeirra hafa fengið.
„Þakklæti yfir að hafa fengið að
taka þátt í rekstri Timberland á
Íslandi og gefa þeim fjölmörgu sem
til okkar koma tækifæri til þess að
nota þessar frábæru vörur. Með
því teljum við okkur líka leggja
okkar af mörkum við að framfylgja
markmiðum Timberland um betri
nýtingu auðlinda og grænni heim
fyrir alla. Ég veit fátt ánægjulegra
en viðskiptavin sem fer út með
bros á vör eftir að hafa fundið sína
óskaskó.“ ■
Ný verslun Timberland í Smáralind er björt og stílhrein og með glæsilegt vöruúrval. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Hinir heims-
frægu og sívin-
sælu Timber-
land skór fást
vitaskuld í úrvali
í Smáralind, sem
og Timberland
fatnaður og
fylgihlutir.
Hjónin Erla Leifsdóttir og Samúel Guðmundsson eru eigendur Timberland á
Íslandi og opna nú nýja verslun í tilefni 20 ára afmælisins. MYND/AÐSEND
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
2 kynningarblað A L LT 23. júní 2022 FIMMTUDAGUR