Fréttablaðið - 23.06.2022, Side 22
Hornstrandir eru vinsæll
áfangastaður göngugarpa á
sumrin. Þangað er einungis
hægt að komast á bát og
mikil kyrrð og friðsæld ríkir
þar í fallegri náttúru.
sandragudrun@frettabladid.is
Lydía Ósk Óskarsdóttur stendur
vaktina á Hornströndum í sumar
ásamt þremur öðrum. Hún stendur
einnig vaktina í Hornstrandastofu,
nýrri gestastofu á Ísafirði, sem
er upplýsingamiðstöð um Horn-
strandir og sýning um svæðið.
„Við erum tvær sem skiptumst
á að vera á gestastofunni og fara
á svæðið sem landverðir. Svo eru
tvö sem eru bara á svæðinu. Við
sem skiptumst á erum í tvær vikur
í einu á Hornströndum. Við erum
með hús á Hesteyri, en ríkið keypti
nýlega húsið sem var verslunarhús
á staðnum. Við erum búin að inn-
rétta búðina sem móttöku fyrir
gesti,“ segir Lydía.
„Við erum líka búin að útbúa
vatnssalerni fyrir gesti sem ekki
var áður. Við erum komin með
einstaklega flotta og fína aðstöðu
á Hesteyri. En svo erum við með
aðra aðstöðu í Höfn í Hornvík. Þar
erum við með hús og vatnssalerni
og við aðstoðum líka gesti þar. Svo
eru tjaldstæði og kamrar á fleiri
stöðum á Hornströndum,“ útskýrir
hún.
Lydía segir að það sé alltaf fullt
af fólki sem komi á Hornstrandir á
sumrin en landverðirnir eru þar frá
1. júní og út ágúst.
„Þetta er á sama tíma og bátarnir
eru að fara yfir. Við fylgjumst að,“
segir Lydía.
Þrátt fyrir að það sé alltaf eitt-
hvað fólk á Hornströndum ríkir þar
mikil friðsæld að sögn Lydíu.
„Þetta er það stórt svæði. Þú
mætir kannski 4-5 á leiðinni frá
Hesteyri og alla leið yfir í Hornvík.
Allir eru meðvitaðir um að fólk er
bara að njóta náttúrunnar,“ segir
hún.
„Það er ekki mikið af Íslend-
ingum á svæðinu í júní. Þeir ferðast
meira í júlí þegar það er orðið
hlýrra og minni snjór. En land-
vörður sem gekk frá Hesteyri yfir
í Hornvík á mánudaginn var mjög
hissa að sjá hvað það var mikið af
tjöldum í Hlöðuvík. Það var líka
fullt af fólki á tjaldstæðinu í Horn-
vík, en það eru fáir í dag. Veðrið
hefur mikið að segja. Íslendingar
fara frekar ef veðrið er gott.“
Fjölbreytt starf
Lydía segir starfið á Hornströndum
fjölbreytt. Á Hesteyri taka land-
verðirnir á móti gestum í fjörunni,
leiðbeina göngufólki og kynna því
reglur friðlandsins. „Við kennum
þeim til dæmis hvernig á að
umgangast refinn og yrðlingana en
þeir eru að skríða út úr grenjunum
sínum í júní,“ segir hún.
„Við erum líka að slá og gera fínt á
Hesteyri. Svo göngum við göngu-
leiðirnar reglulega. Við förum
kannski í dagsferðir frá Hesteyri
yfir í Aðalvík til að þrífa kamra og
athuga með tjaldsvæðið.“
Lydía segir landverðina einnig
vera í góðu sambandi við heima-
fólkið.
„Það er mikið af sumarhúsum
hér. Þessum gömlu húsum sem
voru hér hefur verið vel við haldið
og fólk notar þau á sumrin, svo hafa
líka verið byggð ný hús. Fólk er hér
sumt allt sumarið,“ segir Lydía.
Á gestastofunni á Ísafirði veita
landverðirnir göngufólki upplýs-
ingar um svæðið, selja göngukort,
aðstoða gesti við að skipuleggja
ferðirnar sínar og fleira.
„Við förum sjálf inn á svæðið og
tökum út göngustíga og skoðum
aðstæður. Það er til dæmis mikill
snjór núna og við bendum fólki
á hvar það á að vara sig. Hvar eru
ár og hvar eru snjóskaflar og hvar
er bratt að fara upp og niður. Við
hvetjum fólk til að fylgja göngu-
kortinu,“ segir Lydía.
„Við erum líka með sýningu hér
á gestastofunni sem er tileinkuð
fólkinu sem bjó á Hornströndum
og lífinu þar. Við leggjum áherslu
á fuglabjörgin og hvernig farið var
þangað að sækja björg í bú.“
Lydía segir landvarðarstarfið
vera besta sumarstarf í heimi.
„Ég held að hinir landverðirnir
séu algjörlega sammála því. Ég er
ættuð úr Jökulfjörðum svo þetta er
svona mitt heima. Mér finnst frá-
bært að fá að vera inni á svæðinu.
Hugsa um það, skoða það og kynn-
ast því betur, og líka hitta fólk og
segja því frá því sem við vitum um
svæðið. Við brennum fyrir þessu og
langar að halda svæðinu góðu og
gera vel við gestina okkar.“ n
Besta sumarstarf í heimi
Sældarlíf landvarðarins í kyrrðinni á Hornströndum. Lydía segir að þrátt fyrir
fjölda ferðamanna sé landsvæðið stórt og því ríki þar mikil ró og friður.
Hornbjarg séð frá Höfn í Hornvík. Fjöldi göngugarpa leggur leið sína á Hornstrandir á sumrin að njóta náttúrunnar.
Southcoast Adventure, staðsett á Hvolsvellir sérhæfir sig í sérsnið-
num einka- og lúxusferðum og alls kyns dagsferðum um Ísland.
Upplifðu Ísland á nýjan og einstakan hátt. Southcoast Adventure
býður uppá sérferðir fyrir hópa sem eru sérsniðnir til að hæfa
öllu m. Ferðirnar sem við bjóðum uppá geta verið hluti af viðameiri
hópeflis- eða hvata-ferð í samstarfi við önnur fyrirtæki eða staðið
einar og sér sem stuttar dagamuns ferðir.
Engir dagar eru eins og það er alltaf spennutilfinning fyrir næsta
degi og hvaða ævintýrum hann kann að hafa í för með sér.
Opnar áætlunarferðir
eða einkaferðir
Hrafnagilshátíð
16.-17. júlí
Hrafnagilshverfi, Eyjafjarðarsveit
Komið og fáið ykkur rölt í hverfinu.
Markaðir og margt fleira.
Nánar auglýst á esveit.is
Kvenfélagið Iðunn
Sigluörður
© Linda Boga
Velkomin til
Ólafsfjarðar
Velkomin til
Siglufjarðar
FJALLABYGGD.IS
STÓRKOSTLEG NÁTTÚRFEGURÐ
EINSTAKAR GÖNGULEIÐIR Í
STÓRBROTINNI NÁTTÚRU
NÁLÆGÐIN VIÐ NÁTTÚRUNA
ÁVALLT INNAN SEILINGAR
BLÓMSTRANDI MENNINGARLÍF,
SÖFN, GALLERÍ OG SETUR
Ólafsarðarvatn
© Ida Semey
4 kynningarblað 23. júní 2022 FIMMTUDAGURFERÐAST UM ÍSLAND