Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 24
Starri Freyr Jónsson starri @frettabladid.is Ferðavagnahópur einhleypra 50-70 ára er Facebook hópur þar sem einhleypir eigendur ferðavagna skipuleggja ferða- lög, kynnast nýju fólki og njóta náttúrunnar saman. Facebook-hópurinn Ferðavagna- hópur einhleypra 50-70 ára var settur á fót vorið 2021. Hugmyndin að stofnun hans kviknaði heima hjá Hildi Maríu Herbertsdóttur á fallegu vorkvöldi þar sem hún hug- leiddi hvort hún ætlaði að ferðast að mestu ein komandi sumar eins og sumarið áður, þar sem hún er ein- hleyp. „Mér hugnaðist það reyndar ekki vel. Þá kviknaði hugmyndin um að stofna hóp fyrir einhleypt fólk á mínum aldri sem hefði brennandi áhuga fyrir því að fara í útilegur í ferðavagninum sínum og langaði í ferðafélaga af báðum kynjum. Það er auðvitað mun skemmtilegra að hafa félagsskap, þó ekki væri nema fáeina félaga hverju sinni til að spjalla við, skreppa með í sund, ganga um nágrennið og grilla saman á kvöldin. Svo gætum við líka hjálpast að ef upp kæmu viðfangsefni tengd ferðavögnunum og deilt lausnum.“ Þrír útgangspunktar Fyrsta skrefið var að stofna sérstakan Facebook-hóp en það kunni hún ekki á þessum Útilegubakterían er dásamleg Sigurbjörg Þorláksdóttir (t.v.) hefur hjálpað Hildi Maríu með skipulagið. Í dag telur hópurinn 115 meðlimi og er konur í meirihluta. Hluti hópsins í útilegu síðasta sumar. Hildur María er fremst á myndinni. MYNDIR/AÐSENDAR Það er alltaf létt og góð stemning hjá hópnum yfir sumartímann. tímapunkti. „Ég vissi að ég vildi hafa þrjá útgangspunkta. Mark- hópurinn ætti að vera einhleypt fólk á tilteknu aldursbili og það yrði að eiga ferðavagn eða ferðabíl en tjaldferðalangar ættu hins vegar ekki heima í þessum hópi. Út frá því ákvað ég að hafa þrjár við- eigandi spurningar sem fólk þyrfti að svara, umsækjendur þyrftu að samþykkja reglur hópsins ásamt því að vera með mynd af sér á Facebook svo við sæjum hver væri að sækja um inngöngu. Ég birti svo einfaldlega auglýsingu í nokkrum opnum Facebook hópum og fékk einnig leyfi til birtingar í ein- hverjum lokuðum hópum.“ Umsóknir hrúguðust inn Á þessum tímapunkti kom Sigur- björg Þorláksdóttir til sögunnar. „Ég var svo stálheppin að hún var meðal þeirra fyrstu sem sóttu um en ég þekkti hana ekkert á þeim tímapunkti. Við höfum síðan oft gert grín að því okkar í milli að vegna þess að hún svaraði ekki spurningunum hafnaði ég umsókninni hennar strax. Fljót- lega kom í ljós að ástæðan var ágalli í forritinu og því sá hún ekki spurningarnar þegar hún sótti um inngöngu. Sigurbjörg spurði hvort hún gæti ekki aðstoðað mig og þar með var hún orðin með- stjórnandi sem er frábært, því hún er mun klárari í tölvumálum en ég. Á þessum tíma hrúguðust umsóknirnar inn og því frábært hafa hana með.“ Vantar fleiri karla Viðtökurnar voru mjög góðar strax í byrjun. „Það er greinilega mikil þörf og áhugi meðal einhleypra á hópi eins og þessum og við erum stoltar af framtakinu. Í dag eru meðlimirnir 115 og konur eru í meirihluta í hópnum. Okkur finnst hins vegar eðlilegt að hafa sem jafnast kynjahlutfall og viljum því nota tækifærið og hvetja karla sem uppfylla skilyrðin til að sækja um inngöngu þó að konur séu auð- vitað velkomnar líka.“ Fyrsta sumarið og fram á haust fór nýstofnaður hópurinn í margar ferðir um suður- og vesturhluta landsins, að sögn Hildar. „Við dvöldum á tjaldsvæði í Hval- firði, á Borg í Grímsnesi, í Reyk- holti, á Faxa, á Þorlákshöfn og heimsóttum sum þeirra oftar en einu sinni. Við höfum ekki farið lengra en í tveggja klukkustunda akstursleið frá Reykjavík fram að þessu og vitum ekki enn hvort við gerum það. Af því leiðir að margir í hópnum sem búa úti á landi taka ekki þátt en við höfum hvatt alla meðlimi hópsins til þess að efna til ferða hvar sem er á landinu og láta okkur hin vita af þeim.“ Stundum gripið í gítarinn Fyrsta ferð sumarsins í ár var farin síðustu helgina í maí, en þá fór hópurinn í Árnes. „Venjan er að skoða veðurspána dagana áður en ákveðið er hvert stefnan skuli tekin hverju sinni. Þess vegna erum við ekki með fyrir- fram ákveðna ferðaáætlun fyrir sumarið.“ Hún segir einstaklega heilandi og ánægjulegt að vera í svo mikilli nánd við náttúruna í hópi vina sem finnst það líka. „Mikil stemmning hefur oft skapast og stundum hefur einhver gripið í gítarinn. Við hvetjum bæði nýja félaga og eldri til að skella sér í sem flestar útilegur með okkur. Útilegubakterían er dásamleg og við vonum að sem flestir smitist af henni. Svo hefur verið afar gefandi og skemmtilegt að kynnast mörgu sómafólki í þessum ferðalögum okkar.“ ■ Nánar á Facebook undir Ferða- vagnahópur einhleypra 50-70 ára. 6 kynningarblað 23. júní 2022 FIMMTUDAGURFERÐUMST UM ÍSLAND

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.